Leita í fréttum mbl.is

Landsliđsflokkur Íslandsmótsins hefst á föstudag á Eiđum - sá sterkasti í mörg ár

Héđinn í Bad HomburgLandsliđsflokkur Íslandsmótsins í skák fer fram um páskana á Eiđum á Fljótsdalshérađi.  Mótiđ hefst föstudaginn, 15. apríl, kl. 14 og mun Björn Ingimarsson, bćjarstjóri Fljótsdalshérađs, setja mótiđ og leika fyrsta leik ţess.  Tíu af sterkustu skákmönnum landsins taka ţátt.  Íslandsmótiđ nú er ţađ sterkasta í mörg herrans ár en 3 stórmeistarar taka nú ţátt.  Mótiđ er ţađ fyrsta sem haldiđ er á Austurlandi í 21 ár en síđast var ţađ haldiđ á Höfn í Hornafirđi áriđ 1990.  Ţađ mót var sögulegt en ţá sigrađi Héđinn Steingrímsson á mótinu, yngstur allra, 15 ára, og ţađ met stendur enn en fyrsta Íslandsmótiđ var haldiđ fyrir tćpri öld síđan 1913. 

Auk Héđins, teflir einn annar fyrrverandi Íslandsmeistari, Henrik Danielsen, en hann sigrađi á Íslandsmótinu sem fram fór 2009 á Bolungarvík.  Hannes Hlífar Stefánsson, ellefufaldur Íslandsmeistari  tekur ekki ţátt í ár og ver ţví ekki titilinn.   Mótiđ er haldiđ í samvinnu Skáksambands Íslands og henrikdanielsen01Skáksambands Austurlands.  Í ađdraganda mótsins fóru kennarar á vegum Skákskóla Íslands í heimsókn í rúman tug skóla á Austurlandi og bođuđu fagnađarerindiđ.  

Međal annarra keppenda má nefna stórmeistarann Ţröst Ţórhallsson, alţjóđlegu meistaranna Stefán Kristjánsson, Braga Ţorfinnsson og Guđmund Kjartansson.   Ađrir ţátttakendur eru Ingvar Ţór Jóhannesson, Róbert Lagerman, Guđmundur Gíslason og Jón Árni Halldórsson.

Teflt er alla daga á Eiđum og hefst taflmennska ávallt kl. 14 ađ síđustu umferđinni undanskyldri sem hefst kl. 9, laugardaginn 23. apríl.

Skákáhugamenn, ađ Austan, eru hjartanlega velkomnir á skákstađ.  Fyrir ţá sem koma lengra ađ er bent á ađ allar skákirnar eru sýndar beint á vefsíđu SÍ, www.skaksamband.is auk ţess daglegar fréttir af mótinu verđa á www.skak.is.      

Međfylgjandi sem viđhengi er umfjöllun um mótiđ í hérađsblađinu Austurglugganum og mótsblađi Skáksambands Austurlands.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Héđinn rúllar ţessu upp

Gunnar Th. Gunnarsson, 13.4.2011 kl. 01:06

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 8778324

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband