Leita í fréttum mbl.is

NM stúlkur – Pistill 5. umferðar

A-flokkur:
Hallgerður - Amalie Lindestrøm, Danmörku 1-0
Helene B Søndegaard, Danmörku 0-1 

Hallgerður tefldi mjög vel í dag og sigraði andstæðing sinn örugglega (sjá skákina hér að neðan).  Sýndi hún enn og aftur að hún höndlar pressu vel og skilar sínu þegar á þarf að halda.  Niðurstaðan - fyrsti norðurlandameistaratitill okkar stúlkna frá upphafi í höfn. Jóhanna átti einnig mjög góðan dag og landaði öruggum sigri á móti hinni dönsku Helene.   

HallgerdurThorsteinsdottir,Hallgerdur - Lindestrom,Amalie Heiring [B30]
1.e4 c5 2.¤f3 ¤c6 3.¥b5 £c7 4.c3 g6 5.d4 cxd4 6.cxd4 ¥g7 7.¤c3 a6 8.¥a4 b5 9.¥c2 d6 10.¤d5 £b7 11.h3 ¥e6 12.¤f4 ¥d7 13.0–0 e6 14.¦e1 ¥c8 15.d5 Diagram  15...¤d8 16.dxe6 ¤xe6 17.£xd6 ¤e7 18.¥b3 ¤xf4 19.£xf4 0–0 20.¤g5 ¥e6 21.¤xe6 fxe6 22.¥xe6+ ¢h8 23.£g3 £b6 24.¥b3 ¦ac8 25.¥e3 £f6 26.¥g5 1–0  

Lokastaðan:A-flokkur
  1. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 4,5v (10.5 stig)
  2. Erle A. M. Hansen, Noregi 4,5v (10 stig)
  3. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 3v (12 stig)
  4. Elise Forså, Noregi 3 v (10 stig)
  5. Nicole Loginger, Svíþjóð 2.5v
  6. Helene B Søndegaard, Danmörku 1.5v
  7. Amalie Lindestrøm, Danmörku 1v
  8. Caroline L Hansen, Svíþjóð 0v
 
Glæsilegur árangur hjá þeim stöllum í A-flokki, gull og brons. Þær tefldu heilt yfir mjög vel allan tíman og uppskáru eftir því.
  B-flokkur:Hrund – Alise Haukenes, Noregi 1-0Elín – Sára Traber Olsen, Færeyjum 0-1 Hrund tefldi mjög vel á móti Alise frá Noregi og mátaði hana í um 30 leikjum (sjá skákina hér að neðan. Elín lenti í vandræðum fljótlega eftir byrjunina og tapaði gegn hinni færeysku Sáru sem átti mjög góðan dag og landaði góðum sigri. 

HrundHauksdottir,Hrund - Haukenes,Alise [B76]
1.e4 c5 2.¤f3 ¤c6 3.d4 cxd4 4.¤xd4 g6 5.¤c3 ¥g7 6.¥e3 ¤f6 7.¥e2 0–0 8.£d2 d6 9.f3 a6 10.0–0–0 ¤xd4 11.¥xd4 ¥e6 12.¤d5 ¤xd5 13.¥xg7 ¢xg7 14.exd5 ¥d7 15.h4 ¦c8 16.h5 ¦h8 17.h6+ ¢g8 18.£d4 f6 19.g4 ¢f7 20.g5 ¥f5 21.¥d3 ¥xd3 22.¦xd3 ¦e8 23.¦e1 £a5 24.¦e4 £xa2 25.¦a3 ¦xc2+ 26.¢xc2 ¦c8+ 27.¦c3 ¦xc3+ 28.£xc3 b5 29.gxf6 exf6 30.£c7+ ¢f8 31.£g7# Diagram   1–0  

 

B-flokkur 

Lokastaðan:
  1. Jessica Bengtsson, Svíþjóð 4v
  2. Louise Segerfelt, Svíþjóð 3,5v
  3. Sára Traber Olsen, Færeyjum 3v (11 stig)
  4. Hrund Hauksdóttir 3v (10,5 stig)
  5. Maud Rødsmoen, Noregi 2,5v
  6. Alise Haukenes, Noregi 2v
  7. Kristine Larsen, Danmörku 2v
  8. Sif Tylvad Linde, Danmörku 2v
  9. Thea Nicolajsen, Danmörku 1,5v
  10. Elín Nhung 1,5v
 Tvöfaldur sigur hjá sænsku stelpunum í þessum flokki.  Hrund missti af bronsinu með minnsta mun eftir stigaútreikning.  Þessi flokkur var gríðarlega jafn og spennandi og hefði getað endað hvernig sem var.  Það hefði þurft lítið til að bæði Hrund og Elín næðu mun betri sætum en því miður gekk þetta ekki upp í þetta skiptið.  Elín þarf að mæta ákveðnari til leiks og ég hafði það á tilfinningunni við að fylgjast með þessum flokki að Hrund sé síst lakari skákmaður en sænsku stelpurnar.   C-flokkur:

Ásta Sóley – Veronika 0-1


Elin-Veronika
Þær vinkonur fengu það leiðinlega hlutskipti að tefla saman í síðustu umferð.  Að lokum fór svo að Veronika hafði sigur eftir snarpa baráttu. Það er ljóst að þessar stúlkur eru í mikilli framför og eiga án efa eftir að bæta sig hratt á næstu misserum.    


Lokastaðan:
  1. C-flokkur Freja Vangsgaard, Danmörku 4v (10+12,5 stig)
  2. Hanna B Kyrkjebø, Noregi 4v (10+12 stig)
  3. Veronika Magnúsdóttir 3v (13 stig)
  4. Marte B Kyrkjebø, Noregi 3v (12,5 stig)
  5. Mette E Christensen, Danmörku 2,5v
  6. Andrea Keitum, Danmörku 2,5v
  7. Sara Hadi Mirza, Svíþjóð 2v
  8. Ásta Sóley Júlíusdóttir 2v
  9. Hanna Jacobsen, Færeyjum 2v
 Gríðarlega jafn og skemmtilegur flokkur þar sem einungis munaði tveimur vinningum á efstu og neðstu stúlkunum.  Veronika og Ásta Sóley eru algerlega á pari við aðrar stelpur í þessum flokki enda landaði Veronika bronsinu hér.  Þær eiga eflaust eftir að standa sig betur á næstu mótum erlendis þar sem mesta stressið ætti nú að vera farið úr þeim eftir að hafa prufað að tefla í móti erlendis. Norðurlandameistarar

Dönsku mótshaldararnir stóðu sig með mikilli prýði og gekk allt þeirra skipulag upp frá a til ö.  Her sjálfboðaliða sá um að allt gengi smurt og voru allir sjálfboðaliðarnir í mörgum hlutverkum.  Flestir tóku þátt í að vera allt í senn, bílstjórar, aðstoðarmenn á skákstað og mötuneytisstarfsmenn – geri aðrir betur!
 Stelpunum vil ég einnig þakka fyrir frábæra ferð.  Þær stóðu sig með sóma og enda leitun að jafn glaðværum og skemmtilegum hópi.  
Ísland
 Davíð Ólafsson

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 100
  • Frá upphafi: 8778309

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 75
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband