Leita í fréttum mbl.is

Skák og skemmtun í Vatnaskógi

IMG 7293Ţeir 36 skákkrakkar sem dvöldu í skákbúđum Fjölnis og Skákakademíu Reykjavíkur helgina 9. og 10. apríl komu til baka sćlir og ţreyttir eftir stórskemmtilega og gagnlega dagskrá sem ekkert hlé var gert á nema yfir blánóttina. Skipulagiđ gekk út á skákkennslu og frjálsan leik viđ íţróttir og leiki í ţessum sćlureit sem sumarbúđir KFUM í Vatnaskógi eru. Skákkrakkarnir sem voru međ í för voru á aldrinum 7 - 14 ára og mynduđu ţau einn ćđislegan hóp ađ mati okkar fararstjóranna, Helga Árnasonar frá Fjölni og Stefáni Bergssyni og Andreu M. Gunnarsdóttur frá Skákakademíu Reykjavíkur.

Gist var í Birkiskála sem er nýlegur og er á viđ ţriggja stjörnu hótel. Fljótlega eftir komuna hófst skákkennslan af fullum krafti og náđu leiđbeinendur svo vel til krakkanna ađ kennslutímarnir teygđust hátt í tvćr klukkustundir. Helgi Ólafsson sá um A hópinn en um B og C hópana sáu ţau Stefán Bergsson, Sigríđur Björg Helgadóttir, Ingvar Ásbjörnsson og Hörđur Aron Hauksson. Í frjálsum tíma má segja ađ íţróttahúsiđ hafi heillađ krakkana endalaust. Ţar var bođiđ upp á boltaleiki, tvo stćrđarinnar IMG 7321hoppukastala, borđtennis, snóker og ţytboltaspil. Frjálsi tíminn var líka vel nýttur til ţess ađ tefla tvískák í Birkiskála, til gönguferđa og spila á spil sem krakkarnir komu međ í ferđalagiđ. Úti viđ var skúraveđur en 10 stiga hiti. Međ reglulegu millibili var bođiđ upp á matar-og kaffitíma. Ţar mátti hver ţátttakandi fá sér eins og hann lysti af góđum og velútbúnum mat. Sćlgćtisgerđin Nói-Síríus kórónađi matinn međ velútilátnum nammipokum sem ţeir lögđu til skákbúđanna af miklum rausnarskap. Dagurinn var ađ sjálfsögđu tekinn snemma á sunnudagsmorgni. Ţátttakendur settust ađ tafli eđa fóru í göngutúra fyrir morgunverđ, nýttu frjálsan tíma í íţróttahúsinu og tóku vel til matar síns í hádeginu ţegar pítsur  voru á borđum. Skákbúđunum lauk međ hrađskákmóti sem ţeir Stefán, Ingvar og Hörđur Aron stjórnuđu af yfirvegun. Mótinu lauk međ verđlaunaafhendingu. Nói Síríus gaf 10 páskaegg í verđlaun og afhenti Helgi Árnason ađalskipuleggjandi skákbúđanna verđlaunin ţeim Degi Ragnarssyni, Oliver Aroni Jóhannessyni, Vigni Vatnari Stefánssyni, Jóhanni Arnari Finnssyni og Róbert Leó Jónssyni fyrir fimm efstu sćtin. IMG 7279Ţćr Rimaskólastúlkur Svandís Rós Ríkharđsdóttir, Nansý Davíđsdóttir og Heiđrún Anna Hauksdóttir fengu stúlknaverđlaunin og loks hlaut Mykael Kravchuk verđlaun í yngsta aldursflokki. Tíminn í skákbúđunum hafđi liđiđ áfram eins og draumur en ţreytan var farin ađ segja til sín ţegar sest var upp í rútuna heim á leiđ.

Ađ mati okkar sem stóđum ađ skákbúđunum í Vatnaskógi er mikil ţörf ađ koma skákbúđum á sem föstum liđ í barna-og unglingastarfi skákfélaganna. Áhuginn er óskiptur til stađar og ađstađa til skákbúđa til fyrirmyndar í Vatnaskógi, 70 km leiđ frá Reykjavík. Skákdeild Fjölnis og Skákakademía Reykjavíkur vill ţakka veittan stuđning viđ skákbúđirnar; Íslandsbanki greiddi uppihald Fjölniskrakka, Nói Síríus bauđ upp á velvaliđ nammi og páskaegg, Skáksamband Íslands lánađi töfl, Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands veitti okkur ómetanlega ađstođ. Ingvar, Sigríđur Björg og Hörđur  Aron komu sterk ađ kennslunni og eyddu frjálsa tímanum í leik eđa tafl viđ krakkana. Loks ber ađ nefna Sumarbúđastarf KFUM sem buđu upp á frábćrt samstarf. Ţar ber ađ ţakka ţeim Ársćli framkvćmdarstjóra, Ţóri stađarhaldara og Valborgu matráđsstúlku fyrir frábćra ţjónustu.

Myndaalbúm fararinnar

Helgi Árnason


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 98
  • Frá upphafi: 8778307

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband