7.2.2011 | 08:05
Hrund og Nansý Íslandsmeistarar stúlkna (uppfært)
Hart var barist á Íslandsmóti stúlkna sem fram fór í húsakynnum Skáksambandsins. Rúmlega tuttugu stelpur voru mættar og tefldu átta umferðir í einum flokki en teflt var til verðlauna í yngri og eldri flokki. Nær allar sterkustu skákstelpur landsins á grunnskólaaldri voru mættar til leiks. Hrund Hauksdóttir sýndi nokkra yfirburði yfir aðra keppendur og hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í eldri flokki fyrir síðustu umferð. Í yngri flokki áttu nokkrar stelpur möguleika á titlinum fyrir síðustu umferð. Tara Sóley Mobee hafði komið á óvart og bæði unnið Veroniku Steinunni og Nansý Davíðsdóttur. Hún mætti Sóley Lind Pálsdóttur í síðustu umferðinni og þurfti að lúta í lægra haldi. Því leit allt út fyrir umspil þriggja skákstelpna, Veroniku, Sóleyjar og Töru þar sem Veroniku hafði unnið sína skák. En í þann mund sem þetta var í uppsiglingu tók Nansý Davíðsdóttir upp á því sem engri stelpunni hafði tekist; að leggja forystusauð mótsins, Hrund Hauksdóttur, snyrtilega að velli með laglegri mátfléttu. Með þeim sigri sínum tryggði Nansý sér Íslandsmeistaratitilinn í yngri flokki. Fóru því báðir bikararnir rakleiðis upp í Grafarvog, og ekki þeir fyrstu um helgina. Heildartaflmennskan á mótinu var með mikilli prýði og ljóst að ný kynslóð ungra skákkvenna lítur dagsins ljós. Hlýtur skákhreyfingin í heild sinni að leggja sig alla fram svo áfram megi fjölga í fríðum hópi íslenskra skákkvenna. Mikilvægi þátttöku kvenna í skák er ótvírætt um ókomna tíð.
Verðlaunahafar í eldri flokki:
- Hrund Hauksdóttir 6½ v.
- Donika Kolica 5 v.
- Elín Nhung 4½ v.
- Nansý Davíðsdóttir 6 v.
- Tara Sóley Mobee 5½ v.
- Veronika Steinunn Magnúsdóttir 5½ v.
Lokastaðan:
Röð | Nafn | Skákstig | Flokkur | Vinn. | Stig |
1 | Hrund Hauksdóttir | 1515 | Eldri | 6½ | 39 |
2 | Nansý Davíðsdóttir | 0 | Yngri | 6 | 36½ |
3 | Tara Sóley Mobee | 0 | Yngri | 5½ | 40 |
4 | Veronika Steinunn Magnúsdóttir | 1400 | Yngri | 5½ | 38 |
5 | Sóley Lind Pálsdóttir | 1190 | Yngri | 5½ | 32 |
6 | Donika Kolica | 0 | Eldri | 5 | 37½ |
7 | Hildur Berglind Jóhannsdóttir | 1090 | Yngri | 4½ | 39½ |
8 | Elín Nhung | 1280 | Eldri | 4½ | 37½ |
9 | Sonja María Friðriksdóttir | 1105 | Yngri | 4½ | 31 |
10 | Tinna Rúnarsdóttir | 0 | Yngri | 4 | 36½ |
11 | Svandís Rós Ríkharðsdóttir | 0 | Yngri | 4 | 35 |
12 | Sólrún Freygarðsdóttir | 0 | Yngri | 4 | 33 |
13 | Ástdís Aðalsteinsdóttir | 0 | Yngri | 4 | 32 |
14 | Sara Hanh | 0 | Yngri | 4 | 27 |
15 | Alísa Helga Svansdóttir | 0 | Yngri | 4 | 25½ |
16 | Tinna Sif Aðalsteinsdóttir | 0 | Yngri | 4 | 22½ |
17 | Honey Grace Bargamento | 0 | Yngri | 3½ | 32 |
18 | Ásdís Birna Þórarinsdóttir | 0 | Yngri | 3 | 27 |
19 | Heiðrún Hauksdóttir | 0 | Yngri | 2 | 27 |
20 | Ísey Rúnarsdóttir | 0 | Yngri | 2 | 23 |
21 | Alexandra Björk Magnúsdóttir | 0 | Yngri | 1 | 27 |
22 | Lilja Andrea Sabrisdóttir | 0 | Yngri | 1 | 25½ |
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 1
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 87
- Frá upphafi: 8778273
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.