27.1.2011 | 11:29
Selfyssingar lögðu Vinverja
Selfyssingar lögðu Vinverja í æsispennandi viðureign félaganna sem fram fór á Selfossi í gær. Skiptu þá úrslitin í lokaumferðinni öllu máli.
Frásögn Magga Matt, formanns SSON af heimasíðu félagsins lýsir atburðarrásinni afar vel:
Spenna og eftirvænting í loftinu þegar meðlimir SSON tóku í kvöld á móti góðum gestum úr Skákfélagi Vinjar.
Átta vígreifir Vinjarmenn með Arnar Valgeirsson í broddi fylkingar og sjö bardagamenn til halds og trausts, þar af einn vestan af fjörðum kyngimögnuðum og annan sem tekinn var að Ási í Hveragerðum.
Selfyssingar og nærsveitungar stilltu upp liði vanra jaxla í bland við táp og æskugalsa.
Teflt var á átta borðum, 7 mín hraðskákir.
Í fyrstu umferð höfðu Vinjarmenn sigur 5-3 með hvítu mönnunum.
Selfyssingar náðu næstum að jafna í þeirri næstu......
og líka í þeirri þriðju......
Í hálfleik var jafnt að vinningum 16-16.
Lið Vinjar skipuðu:
Hrannar Jónsson
Björn Sölvi Sigurjónsson
Hrafn Jökulsson
Jón Birgir Einarsson
Sigurjón Þór Friðþjófsson
Óskar Einarsson
Inga Birgisdóttir
Arnar Valgeirsson
Lið SSON skipuðu:
Magnús Gunnarsson
Magnús Garðarsson
Magnús Matthíasson
Erlingur Atli Pálmarsson
Úlfhéðinn Sigurmundsson
Þorvaldur Siggason
Ingvar Örn Birgisson
Sigurjón Njarðarson
Baráttan hélt áfram að lonu kökuáti, kaffi- og kóladrykkju og nokkrum vel völdum sígarettum.
Engin viðureign vannst stórt, ennþá...
Barist ótrúlega hart á öllum borðum þrátt fyrir að heita ætti að um vinamót væri að ræða, einungis tvö jafntefli í 64 skákum en það voru viðureignir Úlfhéðins og Hrannars og viðureign Ingu og Magnúsar Matt.
Enn munaði aldrei meira en þetta 2-4 vinningum á liðunum.
Fyrir síðustu umferð voru liðin jöfn að vinningum, 28-28.
Þá gerðist eitthvað óskiljanlegt, eitthvað sem aldrei hefur áður gerst - á skákmóti á Selfossi.
Hvort það var vatnið sem Maggi Garðars kom með frá Icelandic Glacial eða andi Bobby´s sem átti leið um austan að Laugardælum - fæðingarstað Úlla. Ekki gott að segja, auðvitað vildu Vinjarmenn vinna, þeir eru ekkert endilega eins liberal og miklir nice gæjar og þeir líta út fyrir á stundum, en þeir töpuðu í síðustu umferð og Selfyssingar unnu.
............................
8-0 (í bókstöfum: átta-núll)
Þar með fór viðureignin 36-28.
Magnað maður minn.
Bestum árangri Vinjar náðu þeir Björn Sölvi og Hrafn með 6 vinninga, Hrannar skammt á eftir með 5,5
Hjá Selfyssingum náði Magnús Matt 7,5 vinningum, Úlfhéðinn var með 6,5 og Ingvar Örn 5.
Vinjarmenn munu freista þess að hefna ófaranna eftir 3 vikur þegar Selfyssingar halda í borgina.
Þökkum þeim heiðursmönnum kærlega fyrir komuna, þau eru ekki mörg skákfélögin á Íslandi sem geta státað af jafn öflugu og skemmtilegu starfi og Skákfélag Vinjar.
Heimasíða SSONMeginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Íslenskar skákfréttir, Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:33 | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.7.): 1
- Sl. sólarhring: 23
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 8779007
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 102
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.