Leita í fréttum mbl.is

Jólamót TR og ÍTR: Rimaskóli sigrađi međ fullu húsi í eldri flokki

IMG 6917Mánudaginn 6. desember kl. 17 fór Jólaskákmót Íţrótta-og tómstundaráđs Reykjavíkur og Taflfélags Reykjavíkur í eldri flokki fram. Ţađ var fyrir nemendur úr 8.- 10. bekkjum grunnskóla Reykjavíkurborgar. Verđlaun voru fyrir ţrjár efstu drengjasveitirnar (eđa opnu sveitirnar, ţar sem sveitirnar eru blandađar stúlkum og drengjum) og ţrjár efstu stúlknasveitirnar. Teflt var í einum flokki, 6 umferđir eftir Monradkerfi međ 15. mínútna umhugsunartíma. 11 sveitir voru skráđar til leiks og ţar af 1 stúlknasveit. 

Í samanburđi viđ ţátttökuna í fyrra, ţá voru sveitirnar tveimur fćrri en áriđ 2009 og athygli vakti ađ skólar sem tóku ţátt í fyrra međ góđum árangri voru ekki međ ađ ţessu sinni, svo sem Hólabrekkuskóli sem varđ 2. sćti í fyrra, Fellaskóli, Ölduselsskóli og Hlíđaskóli. Álftamýrarskóli kom sterkur inn mótiđ ađ ţessu sinni međ tvćr sveitir, svo og Rimaskóli sem ekki tók ţátt í eldri flokknum í fyrra. Laugalćkjarskóli var međ tvćr sveitir eins og Engjaskóli, sem var sá eini sem tefldi fram stúlknasveit. Hagaskóli var međ ţrjár sveitir ađ ţessu sinni, en var međ heilar 6 sveitir í fyrra, ţar af eina stúlknasveit.IMG 6906

Nokkur einstefna var í ţessum flokki, ţar sem A-sveit Rimaskóla lagđi hverja sveitina af fćtur annarri međ fullu húsi! Sigurinn vannst örugglega međ 24 vinningum af 24 og lét Ólafur H. Ólafsson skákstjóri ţau orđ falla í lok mótsins ađ ađeins í undantekningartilfellum hafi ţetta gerst áđur. En hann hefur séđ um skákstjórn á ţessum Jólamótum frá árinu 1982! Tveir drengir úr Rimaskólasveitinni áttu einmitt ţátt í sams konar sigri Rimaskóla í yngri flokknum í fyrra! Ţađ eru ţeir Jón Trausti Harđarson og Dagur Ragnarsson sem nú tefldu á 1. og 2. borđi.

Í öruggu 2. sćti var svo Laugalćkjarskóli međ 18 vinninga, sem tefldi fram "nýrri" sveit í ţessum flokki, en Laugalćkjarskóli vann ţetta mót í fyrra međ liđsmönnum sem ađ mestu leyti er komnir upp úr grunnskóla. Í ţriđja sćti var svo A-sveit Hagaskóla međ 13,5 vinning. Sveitirnar frá Hagaskóla setja alltaf skemmtilegan og segja má hátíđlegan svip á keppnina međ sínum hefđbundna klćđnađi, en drengirnir mćta iđulega í hvítri skyrtu og međ bindi eđa slaufu á skákmótiđ.

IMG 6923Eins og áđur sagđi var einungis ein stúlknasveit međ. Ţađ er verđugt verkefni fyrir skólana ađ hvetja stúlkurnar á unglingastiginu til ţátttöku í skákmótum og mćta međ stúlknasveitir ađ ári liđnu til ađ auka keppni í stúlknaflokknum. Stúlkurnar úr Engjaskóla, međ Elínu Nhung Reykjavíkurmeistara stúlkna 2010 á 1. borđi, sátu ţví einar ađ verđlaununum í stúlknaflokki ađ ţessu sinni. 

Jólaskákmótiđ fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Mótsstjóri var Soffía Pálsdóttir, ÍTR. Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson og Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir. Birna Halldórsdóttir sá um veitingar á međan mótinu stóđ.

Heildarúrslit í eldri flokki (8.-10. bekkur) urđu sem hér segir:

  • 1. Rimaskóli A-sveit              24 v. af 24.
  • 2. Laugalćkjarskóli A-sveit   18 v.
  • 3. Hagaskóli A-sveit              13,5 v.
  • 4. Laugalćkjarskóli B-sveit   13 v.
  • 5. Álftamýrarskóli B-sveit     12,5 v.
  • 6. Hagaskóli C-sveit               12 v.
  • 7. Rimaskóli B-sveit               11,5 v.
  • 8. Engjaskóli A-sveit              10,5 v.            
  • 9. Álftamýrarskóli A-sveit     10 v.
  • 10. Hagaskóli B-sveit                        9,5 v.
  • 11. Engjaskóli-stúlkur                        9,5 v.

 

Rimaskóli A sveit:

  1. Jón Trausti Harđarson
  2. Dagur Ragnarsson
  3. Hrund Hauksdóttir
  4. Kristinn Andri Kristinsson

 Laugalćkjarskóli:

  1. Rafnar Friđriksson
  2. Garđar Sigurđarson
  3. Jóhannes Kári Sólmundarson
  4. Ingvar Ingvarsson

 Hagaskóli A-sveit:

  1. Kristján Dađi Finnbjörnsson
  2. Sindri Ingólfsson
  3. Ólafur Haraldsson
  4. Guđmundur Ţ. Guđmundsson

1. varam. Fróđi Guđmundsson

 Engjaskóli-stúlkur:

  1. Elín Nhung Viggósdóttir
  2. Ásdís Ađalsteinsdóttir
  3. Arndís Einarsdóttir
  4. Filipia Geirsdóttir

Myndaalbúm mótsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 8778243

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband