21.9.2010 | 10:29
Ól í skák: Pistill nr. 3
Í gær var Ólympíumótið sett með pompi og prakt Mikið sjóv eins og sjá í meðfylgjandi myndum. Mikið dansað, dansandi taflmenn, og tefld var skák með lifandi mönnum. Ég ætla að sleppa því að upplýsa hvað skák sé hérna á ferðinni. Treysti því að skákáhugamenn þekki stöðumyndina".
Í gær kom í ljós að mér yrði ekki hnikað til á milli hótela. Ég á að vera hóteli FIDE-fulltrúa. Ekkert stórmál þar sem hótelið er í 5 mínútna akstursfjarlægð og leigubílar ódýrir. Ég mun koma á aðalhótelið á morgnana, borða með liðunum og fara með til og frá mótsstað. Hótelið mitt verður fyrst og fremst svefnstaður. Krakkarnir eru á 12. hæðinni, öll á sama gangi, sem auðveldar lífið, og ég er með fínan beis hér frammi á gangi þar sem ég get skrifað pistla.
Leigubílar hér virðast ekki vera þeir skilvirkustu. Í gærkveldi var mér sagt að bíða í 5 mínútur en eftir 20 mínútur brotnaði ég og labbaði þeim. Löggur og hermenn eru hér út um allt, hreinlega á öllum gatnamótum þannig að maður fyllist öryggiskennd. Í morgun tók ég að mér að skila pörun kvennaliðsins en lenti í því að leigubílsstjórinn vissi ekki hvar hótelið var og ég slapp inn á síðustu metrunum. Er búinn að semja við Helga um að hann skili framvegis fyrir kvennaliðið.
Við nokkrir félagarnir tókum okkur til og tókum ágætan göngutúr í í gær á milli hótelanna. Þetta er um 20-25 mínútur og skemmtileg leið. Við löbbum meðal annars í gegnum stórt torg þar sem sjá ýmis minnismerki um um stríðið og m.a. skriðdreki. Nokkrar myndir frá því í myndaalbúmi.
Aðstæður á hótelinu eru til fyrirmyndar. Net á herbergjum, reyndar bara eitt net svo krakkarnir þurfa að skiptast á snúru. Maturinn og þjónusta hvorutveggja til fyrirmyndar og svo erum við með sérstaka aðstoðarkonu hana Nataliyu sem á að hjálpa okkur. Krakkarnir kvarta reyndar yfir koddum og hefur komið upp sú hugmynd að finna Rúmfatalagerinn í Khanty! Hótelið er mjög nýtt, svo nýtt að teppalykt liggur hér yfir öllu og maður getur smitast af sementi við að koma við veggi. Helsti gallinn er lyfturnar sem hafa tekið upp á ýmsu. Sigurlaug lenti í lyftuárás í gær, fékk stóran marblett en skynjarinn var bilaður. Helgi hefur ráðlagt mönnum að taka stigann niður þegar lagt er af stað í umferðir.
Það var gott að koma snemma á mótsstað. Tímamismunurinn eru sex tímar og það tekur alltaf smá tíma að aðlaga sig. Í gær var ég hlusta hádegisfréttir á RÚV í gegnum netið kl. 18:20 og kíkti á kvöldfréttirnar áður ég fór að sofa!
Liðsstjórafundur var í gær. Nokkrir athyglisverðar punktar þar. Zero-tolarance reglan gildir enn. Það þýðir að menn verða að vera mættir tímanlega á skákstað. Pörun á að vera tilbúinn um kl. 22-22:30 á kvöldin og liðsuppstillingar eiga að liggja fyrir um 10:30 á morgnana. Það gekk ekki eftir en vonandi eru þar á ferðinni byrjunarerfiðleikar. Svo eiga menn að taka rautt spjald þegar þeir fara á klósettið og skila því þegar þeir koma til baka. Á eftir að átta mig betur á því hvernig þetta virkar. Eitt fyndið atriði gerðist á fundinum. Spurt var hvað gerðist ef liðsuppstillingu væri ekki skilað í tæka tíð. Því var svarað, then players 1-4 (vonn tú for)". Þá spurði einhver útúr sal, What about board three?".
Mikið var deilt á FIDE fyrir fjölda rússneskra liða. Í reglum FIDE mun víst standa að heimaliðið fái 2 lið og 3 lið ef stendur á stöku. FIDE var þegar búið að bæta við fjórða liðinu og svo kemur fimmta liðið inn þar sem stendur á stöku! Þetta féll í grýttan jarðveg. Sum lið fá greitt í samræmi við lokasæti á mótinu og þau lið eru eðli málsins ekki ánægð með þetta. Van Wely var mjög illur út í Stubbenwoll, sem er einn aðalkallinn, og sagði you are cheatin". Stubbenwoll varði sig með FIDE decision" en Van Wely minnti þá jafnóðum á FIDE-rules". Mig grunar að reglurnar hafi verið sveigðar" eins og svo oft áður í skákinni og Rússarnir styðji enn frekar við mótshaldið.
Nánar um opnunarhátíðina. Hún var einkar glæsileg. Eftir öllum dansatriðum kom sjálfur Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, og hélt ræðu, reyndar í gegnum netbúnað. Arkady Dvorkovich forseti rússneska skáksambandsins sagði einnig nokkur orð sem og Kirsan og bæjarstjórinn í Khanty. Virkilega flott setning og Rússunum til sóma. Hápunkturinn var lifandi taflið sem var mjög vel gert.
Þessir pistlar mínir eru skrifaðir í nokkrum áföngum. Yfirleitt byrja ég á kvöldin, skrifa svo aftur að morgni til og fínpússa og klára eftir að umferð hefst. Ég á almennt von á því að pistlarnir verði aðgengilegir fyrir kl. 10 á morgana. Ég reyni að hafa í dag" og í gær" rétt en lofa engu! Ef til vantar því einhverja samfellu í textann en ég bið menn um virða það.
Í dag tefla liðin við lið Haítí og Póllands. Liðum í báðum flokkum hefur fækkað. Í opnum flokki eru 148 lið og eru strákunum raðað nr. 58. Haítí er nr. 128 svo vonandi byrja þeir vel. Héðinn hvílir og því nýliðarnir strax að spreyta sig.
Í kvennaflokki taka 114 lið þátt. Íslandi er raðað nr. 67 og tefla við Pólland sem er 10. Sterkasta sveitin. Sveitin teflir því í svokölluð minni sal þar sem efstu sveitirnar tefla. Liðsstjórinn ákvað að skella nýliðunum Tinnu og Jóhönnu strax í djúpu laugina og reynsluboltinn Sigurlaug hvílir í dag. Erfitt verkefni hjá stelpunum þar sem pólsku stelpurnar eru að meðaltali 400 stigum hærri.
Mótið hófst á réttum. Kirsan var hér við upphaf mótsins, labbaði fram hjá öllum borðum í fylgd ríkisstjórans. Allmargar myndir bætast við bæði frá setningunni og umferðinni. Ég náði því miður ekki að flokka þær og setja inn í textann eins og ætlaði. Stefni að því síðar.
Allir eru hressir og kátir!
Meira á morgun,
Gunnar
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Íslendingar erlendis, Ól 2010 | Breytt 22.9.2010 kl. 15:07 | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 1
- Sl. sólarhring: 23
- Sl. viku: 108
- Frá upphafi: 8778232
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 77
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.