Leita í fréttum mbl.is

„Náđum betri árangri sem liđ en einstaklingar“

Jón L. ÁrnasonJón L. Árnason var 11 ára gamall ţegar Fischer og Spasskí tefldu í Reykjavík. „Einvígi ţeirra hafđi úrslitaáhrif á ađ ég fór ađ tefla af fullum krafti. Ţađ er einfalt ađ svara ţví. Ég fór ađ tefla fyrir alvöru á ţessum tíma. Ţjóđin fór á hliđina í skákćđi og ég fylgdist vel međ. Ég fór og horfđi á fyrstu skákina. Hún var tíđindalítil framan af en svo fór kliđur um salinn ţegar Fischer drap á H2 eins og frćgt varđ," sagđi Jón ţegar Morgunblađiđ bađ hann ađ rifja upp upplifun sína af einvíginu. Ađ loknu ólympíumótinu í Dubai áriđ 1986 skrifađi Jón um mótiđ í bókinni Skákstríđ viđ Persaflóa. „Árangurinn í Dubai er eftirminnilegastur í mínum huga. Viđ höfnuđum í 5. sćti og ţađ var langbesti árangur Íslands á ólympíuskákmóti og vakti mikla athygli. Menn hafa leitt ađ ţví líkur ađ árangurinn í Manila hafi jafnvel veriđ betri svona stigalega séđ enda höfđu Sovétríkin liđast í sundur. Nokkrar ţjóđir spruttu upp úr ţví og ţví var um sterkara mót ađ rćđa en í Dubai. Líklega hefur árangur okkar í Manila ţví veriđ betri en í endurminningunni var hann betri í Dubai," sagđi Jón og hló viđ. Hann bendir á ađ íslenska liđiđ hafi oft á tíđum náđ betri árangri í ólympíumótunum heldur en Elo-stig liđsmanna hafi gefiđ tilefni til. „Viđ náđum betri árangri sem liđ heldur en einstaklingar. Viđ ţekktumst mjög vel og náđum upp ákveđinni liđsheild. Viđ höfđum ţađ umfram margar ađrar ţjóđir."

Spurđur um ađkomu Gunnars Eyjólfssonar ađ landsliđinu í Manila sagđi Jón mikinn feng hafa veriđ í Gunnari. „Hann var ekki eiginlegur liđsstjóri heldur meira eins og andlegur leiđtogi. Engar sérstakar sögur fóru af honum hvađ skákstyrkleika snerti og ţetta vakti ţví nokkra athygli á sínum tíma. Ţađ var mjög gott ađ hafa hann međ. Hann býr yfir mikilli reynslu en ýmislegt er hćgt ađ heimfćra frá leikhúsinu og yfir á skákina varđandi einbeitingu og ýmislegt ţess háttar. Hann átti ţátt í ţví ađ búa til liđsheild og ná upp krafti hjá keppendum." Jón getur ekki neitađ ţví ađ árangur Íslendinga á ţessum árum hafi vakiđ mikla athygli í hinum alţjóđlega skákheimi. „Íslendingar voru og eru nokkuđ ţekktir sem skákţjóđ en ţađ ţótti merkilegt ađ svo fámenn ţjóđ skyldi eignast fjóra stórmeistara á svo skömmum tíma. Viđ komum mörgum mjög á óvart í Dubai en komum kannski minna á óvart eftir ţađ, ţví ţá var litiđ á okkur sem alvöruliđ," sagđi Jón ennfremur.

Viđtaliđ viđ Jón L. Árnason er eftir Kristján Jónsson, blađamann Morgunblađsins, og birtist í sunnudagsmogganum, 25. júlí sl.  Viđtaliđ viđ Jón var hluti af greininni Íslenska skáksprengingunni.  Nćstu daga verđa viđtöl viđ Helga Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson, sem einnig fylgdu greininni, birt hér á Skák.is

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778303

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband