Leita í fréttum mbl.is

Afmælismót Friðriks fer fram á morgun á Ströndum - Skákhátíðin hefst í kvöld

Vegleg verðlaun eru í boði á Afmælismóti Friðriks Ólafssonar, sem fram fer í Djúpavík í Árneshreppi laugardaginn 19. júní. Meðal keppenda verða skákmeistararnir Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og heiðursgesturinn Friðrik Ólafsson, en verðlaun eru veitt í mörgum flokkum, enda mótið opið og áhugafólk á öllum aldri hvatt til taka þátt í einstakri hátíð.
 
  • 1. verðlaun: 50.000
  • 2. verðlaun: 25.000
  • 3. verðlaun: 15.000
  • Kvennaverðlaun: 20.000
  • Efstur stigalausra: 20.000
  • Efstur skákmanna með allt að 2200 stig: 20.000
  • Efsta ungmenni fætt 1992 eða síðar: 20.000
  • Efstur Strandamanna: 20.000
 
Þá mun dómnefnd að vanda velja best klædda keppandann í Djúpavík, háttvísasti keppandinn fær ljúffeng verðlaun og fleiri eiga von á glaðningi. Fjölmörg önnur verðlaun eru veitt, meðal annars útsýnissigling fyrir tvo á Hornstrandir, gisting í Árneshreppi, bækur, hannyrðir og fleira.
 
Skákhátíðin í Árneshreppi hefst föstudagskvöldið 18. júní klukkan 20 með tvískákmóti í Djúpavík. Þetta er mjög skemmtilegt keppnisform þar sem tveir eru saman í liði, og handagangur í öskjunni. Á laugardaginn klukkan 13 hefst Afmælismót Friðriks Ólafssonar í Djúpavík, sem lýkur með verðlaunaafhendingu síðdegis. Teflt er í gömlu síldarverksmiðjunni og er stemmningin ævintýraleg á skákstað. Hátíðinni lýkur á sunnudag með hraðskákmóti í Kaffi Norðurfirði frá kl. 13-15.
 
Keppendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst hjá Róbert (chesslion@hotmail.com) eða Hrafni (hrafnjokuls@hotmail.com). Allar upplýsingar um Skákhátíðina í Árneshreppi má finna á heimasíðu mótsins og Facebook-síðunni Skákhátíð í Árneshreppi.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Pétursson

Höfundar að þessu skámóti - tilefni og staðsetningu - eru sannkallaðir Hrókar alls fagnaðar.

Kristinn Pétursson, 18.6.2010 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 8
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 134
  • Frá upphafi: 8779014

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 107
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband