Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Meistarar framtíđarinnar

Hjörvar Steinn Grétarsson vann öruggan sigur á Meistaramóti Skákskóla Íslands sem lauk um síđustu helgi. Hann missti ađeins niđur ˝ vinning en gamli skólafélagi hans úr Rimaskóla, Ingvar Ásbjörnsson, átti ţó unniđ tafl lengst af gegn Hjörvari sem tókst ađ bjarga sér í hróksendatafli tveim peđum undir. Mót ţetta er án efa sterkasta unglingaskákmót sem haldiđ er á hverju ári og dregur jafnan til sín flesta ţá pilta og stúlkur sem fremst standa í aldursflokknum 20 ára og yngri. Lokastađan í mótinu varđ ţessi:

 

1. Hjörvar Steinn Grétarsson 6 ˝ v. (af 7) 2. Ingvar Ásbjörnsson 5 ˝ v. 3. - 4. Mikael Jóhann Karlsson og Örn Leó Jóhannsson 5 v. 5. - 9. Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir, Helgi Brynjarsson, Guđmundur Kristinn Lee, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Dagur Ragnarsson. Keppendur voru 32 talsins.

Veitt voru sérstök verđlaun í flokki keppenda sem eru 14 ára og yngri og hlaut ţau Dagur Ragnarsson en í flokki 12 ára og yngri varđ hlutskarpastur Jón Trausti Harđarson. Sérstök stúlknaverđlaun komu í hlut Hallgerđar Helgu Ţorsteinsdóttur. Ýmsir ungir skákmenn eru greinilega ađ bćta sig verulega ţessa dagana og má ţar t.d. nefna hinn 16 ára gamla Örn Leó Jóhannsson sem hefur hćkkađ gríđarlega í stigum undanfariđ. Hann hefur til ađ bera ađdáunarverđa hugarró sem er sennilega einhver besti kostur sem prýtt getur nokkurn skákmann. Mikil tilţrif voru hjá ýmsum öđrum og hugmyndaflugiđ óbeislađ. Dagur Ragnarsson kemur úr vaskri sveit Rimaskóla og náđi bestum árangri í flokki 14 ára og yngri ţó hann sé ađeins 12 ára. Fađir hans Ragnar Hermannsson tefldi mikiđ á sínum yngri árum áđur en hann sneri sér ađ handknattleik, bćđi sem leikmađur og ţjálfari. Afinn Hermann Ragnarsson var allt í öllu hjá Taflfélagi Reykjavíkur í byrjun sjöunda áratugarins auk ţess ađ vera sterkur skákmađur. Ţađ er ekki ónýtt ađ hafa slíka menn til ađ tefla viđ.

Í eftirfarandi skák mćtir Dagur Páli Andrasyni, einum öflugasta liđsmanni Salaskóla og vinnur međ tilţrifum:

Meistaramót Skákskóla Íslands 2010; 6. umferđ:

Páll Andrason - Dagur Ragnarsson

Drottningarbragđ

1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3 Be7 5. cxd5 exd5 6. Bg5 O-O 7. e3 h6 8. Bxf6 Bxf6 9. h3 He8 10. Bd3 c6 11. O-O Be6 12. Hc1 Rd7 13. Re2 Rb6 14. b3 Be7 15. Rf4 Bd6 16. Rxe6 Hxe6 17. Dc2 De7 18. He1 He8 19. a4 g6 20. He2 a5 21. Hce1 Bb4 22. Rd2 Df6 23. g3 Rd7 24. Kg2 Rf8 25. f4 H6e7 26. f5 gxf5 27. Kf2 f4! 28. gxf4

Eftir klassískt drottningarbragđ ţar sem svartur má vel viđ una eygir hann möguleika á magnađri hróksfórn.

goglunre.jpg28. ... Hxe3?!

Ţađ er erfitt ađ standast slíkar freistingar en lausleg athugun á stöđunni leiđir í ljós ađ nákvćmara var 28. ... Kh8.

29. Hxe3?

Páll varđ ađ gefa sér ađeins meiri tíma ţví hér átti hann 29. Hg1+! t.d. 29. ... Rg6 30. Hxe3! Dxf4+ 31. Hf3! og hvítur vinnur.

29. ... Dxf4+ 30. Rf3

30. Hf3 er ekkert betra ţví svartur á 30. ... Dh2+! 31. Kf1 Dh1+ og vinnur.

30. ... Bxe1+ 31. Hxe1 Hxe1 32. Kxe1 Dxf3 33. Be2 Dxh3 34. Dd2 Dg3+ 35. Kf1 Rg6 36. Dxh6 Df4+ 37. Dxf4 Rxf4

Eftirleikurinn er auđveldur og Dagur innbyrđir vinninginn af miklu öryggi.

38. Bg4 Re6 39. Ke1 Kf8 40. Kd2 Rxd4 41. Bc8 Rxb3+ 42. Kc3 Rc5 43. Kd4 b6

- og hvítur gafst upp.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í sunnudagsmogganum, 7. júní 2010.

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 8778257

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband