Leita í fréttum mbl.is

Hannes og Bragi unnu í níundu umferð

Íslandsmeistarinn HannesHannes Hlífar Stefánsson (2588) og Bragi Þorfinnsson (2422) unnu báðir í níundu og næstsíðustu umferð Bosna Sarajevo-mótsins sem fram fór í dag.  Hannes sigraði bosníska stórmeistarann Emir Dizdarevic (2498) og Bragi vann Bosníska FIDE-meistarann Ilijas Terzic (2241).   Guðmundur Gíslason (2372) tapaði fyrir króatíska FIDE-meistaranum Julijan Plenca (2286).   Hannes hefur 18 stig (6½ v.), og er kominn í hóp efstu manna, Bragi hefur 14 stig (5 v.) og Guðmundur hefur 12 stig (4 v.).

Efstur með 22 stig (7½ v.) er kínverski stórmeistarinn Wang Hao (2722), annar er úkraínski stórmeistarinn Zahar Efimenko (2677) með 21 stig (7½ v.) og í 3.-5. sæti með 20 stig (7 v.) eru stórmeistararnir Artyom Timofeev (2677), Rússlandi, Aleksandear Kovacevic (2573), Serbíu og Vladislav Nevednichy (2560), Rúmeníu.  Hannes er í 10.-14. sæti, Bragi í 54.-64. sæti og Guðmundur í 88.-106. sæti.  

Í frétt gærdagsins mátti skilja að umferðin í dag væri lokaumferðin.  Það er ekki rétt því alls eru tefldar 10 umferðir á mótinu.  Í lokaumferðinni teflir Hannes við bosníska stórmeistarann Borki Predojevic (2628), Bragi við ítalska alþjóðlega meistarann Carlo D'amore (2484) og Guðmundur við Bosníumanninn Muamer Mrndjic (2184).  Skák Hannesar verður sýnd beint en umferðin hefst fyrr en vanalega eða kl. 09:30.

Alls taka 169 skákmenn þátt í mótinu og þar af 44 stórmeistarar og 38 alþjóðlegir meistarar.  Stigahæstur er kínverski stórmeistarinn Wang Hao (2722) en meðal annarra keppenda má nefna Ivan Sokolov (2654) sjálfan sem jafnframt er mótsstjóri.  Hannes er nr. 18 á stigum, Bragi nr. 66 og Guðmundur nr. 81.  Veitt eru 3 stig fyrir sigur, 1 stig fyrir jafntefli og 0 stig fyrir tap.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 112
  • Frá upphafi: 8778416

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 90
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband