Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Mikil spenna á Íslandsmótinu – Guđmundur Gíslason og Hannes Hlífar efstir

Hannes Hlífar Stefánsson og Guđmundur Gíslason deila efsta sćti ţegar tvćr umferđir eru eftir í landsliđsflokki Skákţings Íslands. Ţeir munu mćtast í lokaumferđ mótsins. Í níundu umferđ sem tefld var á fimmtudaginn bar ţađ til tíđinda ađ Björn Ţorfinnsson vann bróđur sinn Braga. Ţá vann Hannes Hlífar Ţröst Ţórhallsson og Stefán vann Dađa Ómarsson sem ekki gat teflt vegna veikinda.

Hannes Hlífar er eini keppandinn í mótinu sem orđiđ hefur Íslandsmeistari og var fyrir mótiđ álitinn sigurstranglegastur. Tap fyrir Stefáni Kristjánssyni í 4. umferđ setti hinsvegar strik í reikninginn hjá honum. Björn Ţorfinnsson, Stefán Kristjánsson og Bragi Ţorfinnsson eiga allir nokkra möguleika á titlinum en ţá verđa úrslitin ađ falla međ ţeim. Bragi átti ađ tefla viđ Hannes i tíundu umferđ á föstudagskvöldiđ og Guđmundur Gíslason viđ Björn.

Ţetta mót sýnir vel ţá miklu breidd sem er međal fremstu skákmanna Íslands. Veikindi hafa haft nokkur áhrif á stöđuna og ţarf ađ fara allt til landsliđskeppninnar áriđ 1972 til ađ finna sambćrilegt ástand. Daginn fyrir fyrstu umferđ forfallađist Jón Viktor Gunnarsson og eftir fimm umferđir varđ Dagur Arngrímsson ađ hćtta keppni.

Mótiđ fer fram í Lágafellsskóla í Mosfellsbć og hefur framkvćmdin veriđ međ ágćtum. Helst má finna ađ ţví ađ upplýsingar um stöđuna eftir hverja umferđ hafa veriđ rangar. Reglur um brotthvarf keppenda eru afar skýrar, hćtti skákmađur í móti áđur en ţađ er hálfnađ er hann strikađur út. Rétt stađa fyrir lokaumferđirnar tvćr:

1. - 2. Hannes Hlífar Stefánsson og Guđmundur Gíslason 6 ˝ v. 3. Stefán Kristjánsson 6 ˝ v. (af 9) 4. Björn Ţorfinnsson 6 v. 5. Bragi Ţorfinnsson 5 ˝ v. 6. - 7. Ingvar Ţ. Jóhannesson og Ţorvarđur Ólafsson 3 v. 8. Sverrir Ţorgeirsson 2 ˝ v. 9. - 10. Ţröstur Ţórhallsson og Róbert Lagerman 2 v. 11. Dađi Ómarsson 1 ˝ v. ( af 9 ).

Stefán og Dađi sitja yfir í lokaumferđunum.

Ísfirđinginn Guđmund Gíslason verđur ađ telja mann mótsins. Hann hefur afar jákvćtt hugarfar til skákarinnar og teflir af miklum krafti og minnir jafnvel á sjálfan Kasparov. Eina glćsilegustu skák mótsins tefldi hann í 2. umferđ gegn Róbert Lagerman sem hér fer á eftir. Hann fékk góđa stöđu í byrjun tafls og gat fylgt ţví eftir međ öflugum leik, 30. ... Dd4. En möguleiki á drottningarfórn fangađi huga hans og hann lét slag standa međ 30. ... e4 og síđan 31. ... Df2. Róbert hefđi betur sleppt ţví ađ ţiggja fórnina og leikiđ frekar 32. Dxf2! gxf2 33. Bxh4 Hxh4 34. Hxf2 og er ţá međ betri stöđu í endatafli. Eftir ţađ lék Guđmundur hverjum ţrumuleiknum á fćtur öđrum og klykkti út međ snyrtilegri mátfléttu:

Skákţing Íslands 2010; 2. umferđ:

Róbert Harđarson - Guđmundur Gíslason

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Rd7 4. d4 cxd4 5. Dxd4 a6 6. Bxd7+ Bxd7 7. Rc3 e5 8. Dd3 h6 9. Rd2 Rf6 10. Rc4 Be6 11. Be3 Hc8 12. Rb6 Hc6 13. Rbd5 Dc8 14. O-O Rxd5 15. exd5 Bf5 16. Dd2 Hc4 17. f4 f6 18. fxe5 fxe5 19. De2 Bg6 20. Hf3 h5 21. Bg5 Hg4 22. Dd2 Dc4 23. Be3 h4 24. b3 Dc8 25. h3 Hg3 26. Hxg3 hxg3 27. Hf1 Be7 28. Hf3 Bh4 29. Bg3 Dc5+ 30. Kh1 e4 31. Hf1

grolmg3g.jpg31. ... Df2 32. Hxf2 gxf2 33. De2 Hf8 34. Df1 Bxg5 35. g3 Bd2 36. Re2 e3 37. Rf3 Be4+ 38. Kh2 Hxf4 39. gxf4 e2 40. Dxe2 Bxf4 mát.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í sunnudagsmogganum, 11. apríl  2010.

Skákţćttir Morgunblađsins

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 8778274

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband