Leita í fréttum mbl.is

Skákţáttur Morgunblađsins: Vasily Smyslov – sjöundi heimsmeistarinn fallinn frá

Sagt er ađ á yngri árum hafi Vasily Smyslov, sem lést ţann 27. mars sl. 89 ára gamallm, aliđ međ sér mikinn metnađ á sviđi óperusöngs og jafnvel reynt ađ komast ađ hjá Stóra leikhúsinu í Moskvu, Bolshoi. En skákin varđ ofan á. Smyslov kvaddi sér hljóđs ađeins 17 ára gamall ţegar hann varđ efstur á Skákţingi Moskvu. Um ţađ leyti var helsta stjarna Sovétríkjanna Mikhael Botvinnik. Sá varđ heimsmeistari áriđ 1948 í keppni fimm stórmeistara sem haldin var eftir ađ Alexander Aljékín féll frá.

Ţađ átti fyrir Smyslov og Botvinnik ađ liggja ađ halda skákunnendum víđa um heim spenntum á sjötta áratugnum. Botvinnik tefldi lítiđ á ţessum árum en hélt ţeim mun fastar um heimsmeistaratitilinn. Eftir sigurinn í áskorendamótinu í Zürich 1953 tefldi Smyslov viđ Botvinnik í Moskvu 1954. Ţeir skildu jafnir, 12:12. Betur gekk Smyslov í annarri tilraun og vann hann ţá 12 ˝ : 9 ˝. Hann varđ ţá sjöundi heimsmeistarinn. En ríki hans stóđ stutt – í ađeins eitt ár. Botvinnik hafđi laumađ inn klásúlu í einvígisskilamála: ef hann tapađi ćtti hann rétt á öđru einvígi.

Í ţriđja einvíginu sem fram fór 1958 vann Botvinnik 12 ˝ : 10 ˝ og endurheimti titilinn. Smyslov reyndi nokkrum sinnum fyrir sér eftir ţađ en lengst komst hann í áskorendakeppninni 1984 ţá 63 ára gamall og tefldi hann viđ Kasparov um réttinn til ađ skora á heimsmeistarann Karpov – en tapađi.

Smyslov kom ţrisvar til Íslands, á Reykjavíkurmótinu 1974 varđ hann efstur međ 12 vinninga af 14 mögulegum. Hann virtist ekkert hafa fyrir hlutunum, settist framarlega viđ sviđiđ eftir ađ hafa leikiđ og virti fyrir sér stöđuna á sýningarborđinu. Ţegar komiđ var ađ honum ađ leika studdi hann hönd undir kinn og lék án átaks.

„Stíllinn minnir helst á fljót sem streymir lygnt og vatnsmikiđ og eirir engu á leiđ sinni,“ skrifađi Friđrik Ólafsson í tímaritiđ Skák eftir mótiđ. Skákir hans frá ţessu móti fóru víđa, t.d. sigrar hans yfir Friđrik Ólafssyni og Guđmundi Sigurjónssyni.

Nćst kom Smyslov áriđ 1977 og var ađstođarmađur Spasskís í einvíginu viđ Vlastimil Hort. Ţá tefldi hann á 60 ára afmćlismóti Friđriks áriđ 1995. Vasily Smyslov er minnst sem mikils heiđursmanns sem jók virđingu hverrar keppni sem hann tók ţátt í. Ef hann lagđi eitthvađ til málanna fannst ađdáendum hans jafnan eins og mikill spámađur lyki ţar uppi munni.

Af mörgu er ađ taka ţegar rennt er yfir skákferil Smyslov. Í London 1983 mćtti hann Ungverjanum Zoltan Ribli, 30 árum yngri manni og vann 6 ˝ : 4 ˝. Ţar blómstruđu taktískir hćfileikar hans. Tveir leikir, 23. Rh5 og 26. d5! setja af stađ eftirminnilega leikfléttu:

London 1983; 5. skák:

Smyslov – Ribli

Tarrasch vörn

1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 d5 4. Rc3 c5 5. cxd5 Rxd5 6. e3 Rc6 7. Bd3 Be7 8. O-O O-O 9. a3 exd4 10. exd4 Bf6 11. Dc2 h6 12. Hd1 Db6 13. Bc4 Hd8 14. Re2 Bd7 15. De4 Rce7 16. Bd3 Ba4 17. Dh7+ Kf8 18. He1 Bb5 19. Bxb5 Dxb5 20. Rg3 Rg6 21. Re5 Rde7 22. Bxh6 Rxe5 10-04-04.jpg

23. Rh5 Rf3+ 24. gxf3 Rf5 25. Rxf6 Rxh6 26. d5! Dxb2 27. Dh8+Ke7 28. Hxe6+! fxe6 29. Dxg7+ Rf7 30. d6+! Hxd6 31. Rd5+! Hxd5 32. Dxb2 b6 33. Db4+ Kf6 34. He1 Hh8 35. h4 Hhd8 36. He4 Rd6 37. Dc3+ e5 38. Hxe5! Hxe5 39. f4 Rf7 40. fxe5+ Ke6 41. Dc4+

– og Ribli gafst upp.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í sunnudagsmogganum, 4. apríl  2010.

Skákţćttir Morgunblađsins


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 8778234

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband