17.3.2010 | 16:41
Morgunblađiđ: Undrabörnin frá Perú
Ţađ er ekki á hverjum degi sem tveir heimsmeistarar í skák koma frá sama landinu, hvađ ţá úr sömu fjölskyldunni. Enda eru Cori-systkinin, sem tefla ţessa dagana á Reykjavíkurskákmótinu, ţjóđhetjur í sínu heimalandi. Daysi er 16 ára og Jorge 14 ára, en hann er jafnframt yngsti stórmeistari í heiminum.
Frá ritstjóra: Á međan MP Reykjavíkurskákmótinu stóđ sinnti Morgunblađiđ mótinu afskaplega vel og birti um ţćr ţrjár ítarlegar greinar auk hefđbundinna skákţátta Helga Ólafssonar í sunnudagsmogganum. Nćstu 3 daga verđa ţessar greinar Morgunblađsins um mótiđ birtar hér á Skák.is. Fyrsta greinin sem birtist í dag birtist í Sunnudagsmogganum 28. febrúar og er eftir Steinunni Ţórhallsdóttur og fjallar um Perúsystkinin. Skák.is kann viđkomandi blađamönnum og Morgunblađinu bestu ţakkir fyrir!
Ţađ er ekki á hverjum degi sem tveir heimsmeistarar í skák koma frá sama landinu, hvađ ţá úr sömu fjölskyldunni. Enda eru Cori-systkinin, sem tefla ţessa dagana á Reykjavíkurskákmótinu, ţjóđhetjur í sínu heimalandi. Daysi er 16 ára og Jorge 14 ára, en hann er jafnframt yngsti stórmeistari í heiminum.
Tveir heimsmeistarar í skák rölta á móti mér eftir brúnni yfir í Ráđhúsiđ, á leiđ til annars mótsdags í MP Reykjavík Open. Ţetta eru Daysi og Jorge Cori, 16 og 14 ára systkini frá Perú. Fađir ţeirra, Jorge Cori eldri, er í fylgd međ börnum sínum og ţau heilsa öll blađamanni međ kossi og fađmlagi ađ suđuramerískum siđ.
Er ísinn traustur?" er ţađ fyrsta sem Jorge Cori eldri spyr blađamann og svo lýsir hann áhyggjum sínum af velferđ fólksins sem hann sá hlaupa á honum í gćrkvöldi. Eftir ađ hafa fullvissađ hann um ađ ekki sé vitađ til ađ nokkur hafi drukknađ í Tjörninni náum viđ ljósmyndarinn ađ plata ţau út á ísinn er umlykur Ráđhúsiđ og ţau fíflast afslöppuđ í snjónum, ţótt ekki séu nema um 45 mínútur ţar til skákir dagsins hefjast.Snjórinn frábćr
Daysi Cori er eini alţjóđlegi kvenstórmeistari í skák í Perú og yngst allra kvenna í Suđur-Ameríku til ađ bera ţann titil. Jorge Cori er hins vegar yngsti alţjóđlegi stórmeistari í heimi og var yngstur Ameríkubúa ađ ná ţeim áfanga ađeins 14 ára og tveggja mánađa. Í nóvember í fyrra náđu systkinin bćđi ţeim merka áfanga ađ vinna heimsmeistaratitla í skák í sínum aldursflokkum á heimsmeistaramóti unglinga í Tyrklandi.Okkur brá svolítiđ í dag ţegar viđ komum út í hríđina og allan ţennan snjó og vindurinn ýtti og togađi í okkur. En mér finnst snjórinn frábćr," segir Daysi og litli bróđir hennar samsinnir ţví.
Ţau koma frá borginni Villa Salvador, sem er viđ Lima, höfuđborg Perú, ţar sem allt annađ loftslag ríkir. Viđ erum ađ koma frá ţví ađ keppa á skákmótum á Frakklandi og Spáni og förum svo aftur til Spánar ţegar ţessu móti lýkur. Ţađ er skólafrí í Perú núna og viđ notum ţađ til ađ keppa og safna ELO-stigum."
Ég spyr ţau hvernig líf skákmeistara sé. Bara venjulegt, nema mađur ţarf ađ ćfa sig ađeins meira," segir Jorge og flissar.
Skákin fćrir gleđi
Börnin eru orđin ţjóđhetjur í heimalandi sínu Perú og ég spyr ţau hvort heimsmeistaratitlarnir hafi breytt lífi ţeirra. Jú, ţetta hefur fćrt mikla gleđi og hamingju í fjölskyldu okkar og svo ţekkir fólk okkur á götum úti, vill taka ljósmyndir og fá eiginhandaráritanir. Viđ ţurfum ađ leggja tímanlega af stađ ţegar viđ förum í bíó og svoleiđis."Jorge Cori eldri segir mér ađ ţau séu af efnalitlu fólki komin. Hann er sjálfur verkamađur og konan hans skólaliđi í grunnskóla. Ţau hafi alla tíđ ţurft ađ reiđa sig á styrki og ađstođ skáksambandsins í Perú, borgaryfirvalda í Villa Salvador og einkaađila til ađ börnin geti keppt á mótum, og ótrúlegur árangur ţeirra hefur síđan opnađ ţeim möguleika á betri menntun. Ţeim var bođiđ ađ stunda nám í einkaskóla, og nýveriđ var Daysi bođinn styrkur til náms viđ háskóla í Bandaríkjunum. Styrktarađilar ţeirra í Perú hjálpuđu fjölskyldunni einnig ađ byggja sér hús. Skáksamband Perú er ekki sterkt miđađ viđ önnur lönd og ţví ferđast fađirinn einn međ börnin á stórmót ţegar ađrar ţjóđir mćta til leiks međ liđ ţjálfara, sálfrćđinga og ađstođarmanna.
Lćra fyrst, ćfa svo
Krakkarnir eru á heimavelli ţegar ţau eru spurđ ađ ţví hvenćr ţau hafi byrjađ ađ tefla. Ég var sex og hún var átta og pabbi kenndi okkur mannganginn. Ţá var skákin ekki svo ţekkt í Perú en hún er ţađ núna. Ţetta hefur ekki alltaf veriđ auđvelt en okkur finnst bara svo gaman ađ keppa á mótum og ferđast og hitta nýtt fólk," segir Jorge yngri.En eru ţau ólíkir skákmenn? Daysi grípur orđiđ og segir ađ bróđir sinn sé rólegri og skipulagđari leikmađur en hún, en ţau pćli lítiđ í ţví hvernig ţau tefli. Ég spyr hvađa markmiđ ţau hafi sett sér núna eftir heimsmeistaramótiđ og segir Daysi ţađ vera ađ verđa alţjóđlegur stórmeistari, sem ađeins tíu konur eru núna. Ađ auki vilji hún ná 2.600 ELO-stigum fyrir lok ársins.
En ţađ var mitt markmiđ," segir litli bróđir hlćjandi. Ţú stalst ţví." Bćđi gangast ţau viđ ţví ađ vera miklir keppnismenn og fá gríđarlega mikiđ út úr ţví ađ sigra sér eldri og reyndari mótherja.
Hvađan koma ţessir miklu skákhćfileikar? Jorge eldri hlćr og svarar til: Ég spyr sjálfan mig stundum hvernig standi á ţessu!" Hann lýsir ţví ađ ţađ hafi í raun veriđ alger tilviljun ađ skákin kom inn í líf ţeirra. Ég kunni varla mannganginn ţegar krakkarnir fóru á sumarnámskeiđ, og viđ lćrđum ţetta saman til ađ byrja međ. Kennarar barnanna tóku strax eftir hćfileikum ţeirra og viđ leyfđum ţeim ađ tefla út í eitt. Viđ tóku sigrar á skólamótum, hérađsmótum og landsmótum og ţau fćrđust undrahratt upp styrkleikalistann. Ţetta er ţađ sem ţeim finnst skemmtilegast ađ gera í lífinu og skákin sprettur svo eđlilega og áreynslulaust fram hjá ţeim.
Ţađ hefur veriđ ţannig frá upphafi og er reyndar enn í dag," heldur Jorge eldri áfram, ađ ţau ţurfa ađ vera búin ađ lćra heima áđur en ég hleypi ţeim ađ taflborđinu. Ég legg áherslu á ţađ ađ ţau passi upp á skólann og fái góđa menntun, en ţeim er alveg sama um ţađ eins og er, skákin er númer eitt, tvö og ţrjú. Og ţađ er međal annars lykillinn ađ ótrúlegum árangri ţeirra, ađ ţau njóta leiksins til hins ýtrasta. Ţegar ţau eru ekki ađ keppa á mótum fáum viđ einkakennara sem kemur á hverjum einasta degi, meira ađ segja á jólunum. Ţá reyndar kvörtuđu börnin og móđir ţeirra hástöfum en ég lít svo á ađ ţau fái frí frá skólabókunum ţegar viđ erum á keppnisferđalögum. Skákin er ţó ađ mínu mati góđ íţrótt, ţví hún ţjálfar hugsunina, ţú munt aldrei hitta skákmann sem er fátćkur ađ ţví leyti."
Og ţetta virđist sannarlega vera fjölskylda í fríi fremur en keppnisíţróttamenn, ţar sem ég horfi á eftir undrabörnunum tveimur trítla léttfćtt í skáksalinn, međan fađir ţeirra leggur af stađ í göngutúr í snjónum. Hann ćtlar ađ skođa sig um í miđbćnum, taka út skautasvelliđ og finna veitingastađ til ađ bjóđa krökkunum sínum á í kvöld. Ég ţarf ekkert ađ standa yfir ţeim og greina skákirnar, ţau sjá alveg um ţetta sjálf."
Steinunn Ţórhallsdóttir, Sunnudagsmoggi 28. febrúar
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkar: Íslenskar skákfréttir, Íţróttir, Skákţćttir Morgunblađsins | Breytt 19.3.2010 kl. 12:10 | Facebook
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 9
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 116
- Frá upphafi: 8778240
Annađ
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 83
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.