Leita í fréttum mbl.is

Birkir Karl sigrađi á sterku skákmóti Árnamessu

Copy of IMG 4953Alls tefldu 90 grunnskólakrakkar á velheppnuđu skákmóti Árnamessu sem haldiđ var öđru sinni í Stykkishólmi á afmćlisdegi Árna Helgasonar sem var heiđursborgari Stykkishólms.  Erla Friđriksdóttir bćjarstjóri setti mótiđ og lék fyrsta leikinn fyrir Eyjamanninn Kristófer Gautason. Eftir ćsispennandi sex umferđa keppni stóđ Birkir Karl Sigurđsson Salaskóla uppi sem sigurvegari og náđi ţeim frábćra árangri ađ vinna allar sínar sex skákir.

Mótiđ var mjög sterkt og hver umferđ ţví úrslitaumferđ. Fyrir síđustu umferđ voru ţrír keppendur efstir og jafnir. Auk Birkis Karls voru ţađ Örn Leó Jóhannsson Laugalćkjarskóla og Páll Andrason Salaskóla. Ţeir gerđu jafntefli í lokaumferđinni og deildu međ sér 2. - 3. sćti.

Í yngri flokki  f. 1998 og síđar varđ Oliver Aron Jóhannesson Rimaskóla einn efstur međ 5 vinninga en nćst á eftir honum urđu ţau Sóley Lind Pálsdóttir og Gauti Páll Jónsson međ 4,5 vinninga. Sóley Lind varđ efst stúlkna en í 2. - 3. sćti urđu ţćr Hrund Hauksdóttir og Ásta Sóley JúlíusdóttirIMG 4945 međ 4 vinninga.

Ađrir í efstu sćtum mótsins voru ţeir Dađi Steinn Jónsson Vestmannaeyjum, Jón Trausti Harđarson Rimaskóla, Emil Sigurđarson Laugalćkjarskóla, Guđmundur Kr. Lee  Salaskóla, Dagur Kjartansson  Hólabrekkuskóla, Dagur Ragnarsson Rimaskóla, Arnar Ingi Njarđarson. Ţrír efstu í hvorum aldursflokki fengu eignarbikara frá Lýđheilsustöđ.

Um 30 verđlaun dreifđust á efstu menn mótsins, efstu stúlkur og efstu krakka f. 2001 - 2003. Síđustu vinningarnir voru dregnir út í happadrćtti m.a ţeir verđmćtustu frá KFUM, feđga eđa mćđgnahelgi í sumarbúđunum Vatnaskógi.

Mótstjórar og starfsmenn voru ţeir Páll Sigurđsson, Helgi Árnason, Gunnlaugur Egilsson og ađalgestur mótsins Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskólans.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrannar Baldursson

Til hamingju Birkir Karl!

Hrannar Baldursson, 16.3.2010 kl. 07:52

2 Smámynd: Bragi Sigurđur Guđmundsson

Til hamingju kćri Birkir Karl. Mikiđ er ég stoltur af ţér.......eins og alltaf.

Bragi Sigurđur Guđmundsson, 16.3.2010 kl. 15:49

3 identicon

Ég ţakka :) !

Birkir Karl Sigurđsson (IP-tala skráđ) 16.3.2010 kl. 19:03

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 8778231

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband