Leita í fréttum mbl.is

Stórmeistaramót CCP og MP fer fram á laugardag

CCP - MPSem kunnugt er hefur tölvuleikjafyrirtćkiđ CCP valiđ ađ beina öllum bankaviđskiptum sínum til  MP banka á nýju ári og hafa ţessi tvö fyrirtćki viđ ţau tímamót sammćlst um ađ standa jafnt ađ höfđinglegri gjöf til Taflfélags Reykjavíkur á 110 ára afmćli félagsins. Gjöfin er ţrískipt. Í fyrsta lagi eru gefnar ţrjátíu tölvuskákklukkur af bestu gerđ. Í öđru lagi efna ţau til ţessa  Stórmeistaramóts CCP og MP banka međ veglegum verđlaunum og ţátttöku sex af fremstu stórmeisturum í sögu Taflfélagsins auk tveggja af sterkustu alţjóđlegu meisturum félagsins. Síđast en ekki síst veita CCP og MP banki Taflfélaginu myndarlegan rekstrarstyrk til barna- og unglingastarfs félagsins sem hefur veriđ ein af grunnstođum félagsstarfsins.

Ţađ er lofsvert ađ CCP og MP banki sýni á erfiđum tímum sterka samfélagsvitund og styrki áhugafélagsskap međ ţessum hćtti. Ţađ fer vel á ţví ađ Taflfélag Reykjavíkur verđi fyrir valinu. Taflfélagiđ hefur starfađ í hundrađ og tíu ár og lifađ tvenn aldamót. Félagsstarfiđ hefur fariđ í gegnum brotsjó efnahagskreppna og óárans en einnig tíma velgengni og glćstra sigra. Eins og í tölvuleikjum nútímans, ţar sem CCP stendur í fararbroddi ţróunar, er tafliđ íţrótt hugans ţar sem snerpa og skjótleiki í hugsun sker oftast úr um hvar sigurinn lendir. Samhliđa ţví ţarf í taflíţróttinni,  eins og MP banki leggur áherslu á,  ađ sýna varfćrni og byggja upp trausta stöđu, slíkt er vćnlegast til árangurs jafnt í starfi sem og leik.

Keppendur og fyrirkomulag


Keppendur:

Arnar E. Gunnarsson TR (f. 1978) , alţjóđlegur meistari. Arnar er núverandi Atskák- og Hrađskákmeistari Íslands. Tífaldur Norđurlandameistari í skólaskák. Arnar hefur teflt í ólympíuliđi Íslands og náđ eftirminnilegum árangri á alţjóđlegum mótum.

Friđrik Ólafsson TR (f. 1935),  alţjóđlegur stórmeistari. Friđrik Ólafsson er stćrsta nafn íslenskrar skáksögu. Sló í gegn á alţjóđavísu međ sigri í Hastingsmótinu 1955 ásamt Viktor Kortsnoj. Náđi frábćrum árangri á millisvćđamótinu í Portoroz 1958 og var međ í Áskorendamótinu um heimsmeistaratitilinn 1959. Í fremstu röđ stórmeistara heimsins um árabil. Forseti alţjóđaskáksambandins 1978 - 1982.

Guđmundur Kjartansson TR (f. 1988),  alţjóđlegur meistari. Guđmundur er yngstur keppenda. Hann varđ skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur 2006 og náđi alţjóđlega meistartitlinum sumariđ 2009 á opnu móti í Tékklandi. Guđmundur er í fremstu röđ ungra skákmanna á Íslandi um ţessar mundir.

Helgi Áss Grétarsson TR (f. 1977),  alţjóđlegur stórmeistari. Helgi Áss náđi ţeim frábćra árangri ađ verđa Heimsmeistari unglinga 20 ára og yngri í Matinhos í Brasilíu áriđ 1994 og hlaut í kjölfariđ alţjóđlegan stórmeistaratitil í skák. Tvöfaldur Atskákmeistari Íslands.

Helgi Ólafsson TV (f. 1956),  alţjóđlegur stórmeistari. Unglingameistari Íslands 1970, kom frá Vestmannaeyjum,  sá og sigrađi. Í fremstu röđ íslenskra skákmanna allar götur síđan. Sexfaldur Íslandsmeistari í skák og fjórfaldur Atskákmeistari Íslands. Í ólympíuliđi Íslands samfellt í ţrjá áratugi. Landsliđsţjálfari og liđsstjóri skáklandsliđsins og skólastjóri Skákskóla Íslands.

Jóhann Hjartarson TB (f. 1963),  alţjóđlegur stórmeistari. Jóhann vann hug og hjörtu íslensku ţjóđarinnar međ frábćrri frammistöđu sinni viđ skákborđiđ á níunda áratug síđustu aldar. Hann sigrađi ásamt Valery Salov á millisvćđamótinu í Szirak í Ungverjalandi 1987 ađeins 24 ára ađ aldri og tryggđi sér rétt á ađ tefla áskorendaeinvígi um heimsmeistaratitilinn í kjölfariđ. Ţar vann hann glćsilegan sigur á Viktor Kortsnoj 1988 en varđ ađ láta í minni pokann fyrir Anatoly Karpov í einvígi í  átta manna úrslitum. Hann hefur veriđ stigahćstur íslenskra skákmanna síđan ţá.

Jón L. Árnason TB (f. 1960), alţjóđlegur stórmeistari. Áriđ 1977 var ár  Jóns L. Árnasonar í íslenskri skáksögu. Hann varđ Íslandsmeistari í skák um voriđ og seinna á  árinu Heimsmeistari sveina 17 ára og yngri í Cagnes-Sur-Mer í  Frakklandi ţar sem sjálfur Gary Kasparov, seinna heimsmeistari og  stigahćsti skákmađur frá upphafi varđ ađ láta sér lynda ţriđja sćtiđ!  Jón L. Árnason tilheyrđi "fjórmenningaklíkunni" svokölluđu ásamt ţeim  Helga Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni og Margeiri Péturssyni, en ţeir fjórir skipuđu kjarnann í sterkasta skáklandsliđi sem Ísland hefur átt til ţessa .

Ţröstur Ţórhallsson TB (f. 1969) , alţjóđlegur stórmeistari. Margfaldur Íslandsmeistari í Atskák. Valin í ólympíuliđ Íslands í skák fyrst 1988 og hefur keppt á níu ólympíumótum fyrir Íslands hönd síđan ţá. Skákmeistari Reykjavíkur oftar en flestir eđa sex sinnum alls. Var um skeiđ formađur Taflfélagsins.


Fyrirkomulag:

Stórmeistarmót CCP og MP banka
í tilefni 110 ára afmćlis Taflfélags Reykjavíkur.

Verđur haldiđ í salarkynnum CCP ađ Grandagarđi 8, laugardaginn 9. janúar og hefst kl. 13:00.

Ađ lokinni stuttri setningarrćđu verđur dregiđ um töfluröđ keppenda og hefst ţá mótiđ.

Tefldar verđa sjö umferđir, allir viđ alla. Umhugsunartíminn á hverja skák er 15 mínútur á mann.

Ađ lokinnu fjórđu umferđ verđur gert tíu mínútna hlé og geta keppendur ţá ađeins teygt úr sér.

Áćtluđ mótslok eu kl.17:30 og fer fram verđlaunaafhending strax og úrslit eru kunn.

Ađgangur er ókeypis og eru allir skákunnendur velkomnir á mótiđ. Veitingar verđa í bođi CCP.

Til sýnis verđur original Staunton skáksett frá 1864 framleitt af Jaques of London í eigu Björns Jónssonar.  Staunton skákmenn hafa veriđ stađallinn í heimsmeistaraeinvígjum og helstu alţjóđlegum mótum frá fyrsta Alţjóđlega skákmótinu  sem fór fram í London 1851.  Staunton menn voru notađir í einvíginu Spassky - Fischer í Reykjavík 1972 

ÖLLUM SKÁKUNUM VERĐUR VARPAĐ Á STÓRT SÝNINGARTJALD OG JANFRAMT STREYMT Á INTERNETINU UM ALLAN HEIM Á MEĐAN Á MÓTINU STENDUR. SJÁ NÁNAR Á  CCP.ISMP.ISTAFLFELAG.IS OG SKAK.IS

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 8778231

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband