Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Ţjóđhátíđardagamót í Vin á mánudaginn

nordic-flags.jpgMánudaginn 18. júlí heldur Skákfélag Vinjar  mót og hefst ţađ klukkan 13:00. Norrćnt ţema verđur allsráđandi og verđur haldiđ upp á ţjóđhátiđardag allra Norđurlandanna á einu bretti enda međaltaliđ einhverntíma um ţetta leyti. Ađ ţví tilefni verđur skylda ađ leika skandinavíska leikinn (skandinavísk vörn eđa bara skandínavann) ţ.e. e4 svarađ međ d5 en síđan er frítt fram.

Tefldar verđa sex umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma og skákstjóri er Ingibjörg Edda Birgisdóttir.

Sćnsk eplakaka verđur bökuđ í tilefni dagsins og framreidd međ vanilluís ásamt ţví sem íslenskt gćđagrćnmeti verđur á bođstólnum ţegar hlé verđur tekiđ á taflmennsku. Vinningar eru klárlega af betri endanum en veitt verđa verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin auk happadrćttisvinninga en vinningaborđiđ verđur kengbogiđ af bókum og tónlist:

Millenium ţríleikurinn eftir Stieg Larson

40 fyrstu bćkurnar um Ísfólkiđ eftir norska Íslandsvininn Margit Sandemo - ađeins einu sinni lesnar -

„Der er sĺ mange söde pi´r", danskur safndiskur úr toppen af poppen seríunni ţar sem m.a. fá finna lag hinnar barmafullu Sabrinu „all of me" og frćndurnir Billy Ocean  og Paul Young eiga ţarna smelli.

Starfssaga Jónasar Kristjánssonar, „Frjáls og óháđur" sem er skyldulesning. Svo er  Póstkortabók Páls Óskars og Oddvars, „Skáldskapur á skákborđi" eftir Guđmund Arnlaugsson og plata íslenska víkingsins međ norska hreiminn,  Eiríks Haukssonar, „Valentine Lost"

Ţjóđhátíđardagar Norđurlanda í austri og vestri:

Noregur 17. maí, Danmörk 5. júni, Svíţjóđ 6. júní, Ísland 17. júní, Grćnland 21. júní, Fćreyjar 29. júlí og Finnland er svo 6. desember.

Allt áhugafólk hjartanlega velkomiđ en Vin er ađ Hverfisgötu 47, síminn er 561-2612 og ţađ er bara ađ mćta tímanlega og skrá sig takk fyrir. Kostar ekki neitt.

 


Páll í banastuđi í lokaumferđunum - Baldur í öđru sćti í sínum aldursflokki

PállPáll Sigurđsson (1957) var óstöđvandi í lokaumferđum skákhátíđinnar í Saint Ló og mótiđ var greinilega of stutt fyrir hann en hann vann 3 síđustu skákirnar.  Páll endađi međ 5 vinninga í 9 skákum en hann tefli í opnum flokki.  Baldur Teódór Petersson (1032) og Sóley Lind Pálsdóttir (1194) töpuđu bćđi í lokaumferđinni en ţau tefldum í unglingaflokki.  Baldur hlaut 5 vinninga og endađi í 2. sćti í sínum aldursflokki, 10 ára og yngri, en Sóley hlaut 3 vinninga.  

Páll birtir skák Baldurs í lokaumferđinni á Skákhorninu.  

Páll lćkkar um 11 stig fyrir frammistöđu sína.  Frammistađa Baldurs samsvarar 1649 skákstig og fćr hann vćntanlega forstig fyrir hana. 

Halla Sigurđsdóttir (móđir Baldurs og systir Páls) hefur sent Skák.is myndir sem finna má í myndaalbúmi.

 

 


Hjörvar tapađi fyrir Wells - ţarf sigur í lokaumferđinni til ađ krćkja sér í AM-áfanga

Hjörvar Steinn GrétarssonFIDE-meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2437) tapađi fyrir enska stórmeistaranum Peter Wells (2489) í áttundu og nćstsíđustu umferđ alţjóđlega mótsins í Suđur-Wales sem fram fór í dag.  Hjörvar hefur 5˝ vinning og er í 6.-10. sćti.  Hann mćtir enska skákmanninum Alan Byron (2223) í lokaumferđinni sem nú er í gangi og ţarf ađ sigra til ađ krćkja sér í áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli.  Wells hefur 7 vinninga og hefur vinnings forskot á nćstu menn.

Örn Leó Jóhannsson (1889), Nökkvi Sverrisson (1919) og Guđmundur Kristinn Lee  (1622) unnu allir en Birkir Karl Sigurđsson (1546) og Óskar Long Einarsson (1743) töpuđu.

Örn hefur 5 vinninga, Nökkvi 4˝ vinning, Guđmundur 3˝ vinning og Birkir og Óskar hafa 3 vinninga.

Um 70 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar á međal 4 stórmeistarar og 4 alţjóđlegir meistarar.  Hjörvar er fjórđi stigahćsti keppandi mótsins.

Heimasíđa mótsins


Sumarskákmót Skákakademíunnar - afmćlismót Polgarbana fer fram í dag

Skákakademía Reykjavíkur

Veđriđ leikur ekki sérstaklega mikiđ viđ höfborgarbúa ţessa dagana. Í ţví skyni mun Skákakademía Reykjavíkur reyna ađ blíđka gođin og efnir til Sumarskákmóts Skákakademíunnar.
Ţegar hafa nokkrir alţjóđlegir meistarar bođađ komu sína eftir hádegi á morgun fimmtudag en taflmennskan hefst 13:30.

Polgarbaninn Tómas Hermannsson útgefandi hjá Sögur útgáfa hefur stutt vel viđ starfssemi Skákakademíunnar. Kappinn fyllir fjórđa áratuginn í mánuđinum og mótiđ ţví um leiđ afmćlismót ţessa glađbeitta Polgarbana en á níunda áratugnum mátađi ungur piltur frá Akureyri hina ungversku skákgođsögn, sterkustu skákkonu allra tíma, á snaggaralegan hátt í Reykjavíkurmótinu.  

Tefldar verđa sex umferđir hrađskák og veitt verđlaun í fullorđins- og barnaflokki.

Wales: Hjörvar međ jafntefli viđ stórmeistara og er í 2.-4. sćti

Hjörvar Steinn GrétarssonFIDE-meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2437) gerđi jafntefli viđ búlgarska stórmeistarann Marjan Petrov (2534) í sjöundu umferđ alţjóđlegs móts sem fram fer í Wales og hefur nú gert jafntefli viđ tvo stigahćstu keppendurna í tveimur síđustu umferđunum međ svörtu.  Hjörvar hefur 5˝ vinning og er í 2.-4. sćti ásamt búlgörsku stórmeisturunum Julian Radulski (2556) og Petrov.   Enski stórmeistarinn Peter Wells (2489) er efstur međ 6 vinninga en Hjörvar mćtir honum í áttundu og nćstsíđustu umferđ sem fram fer í fyrramáliđ.  Hjörvar ţarf einn vinning í tveimur síđustu umferđunum til ađ tryggja sér sinn annan áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli.   Mótinu lýkur á morgun međ tveimur umferđum.

Örn Leó Jóhannsson (1889) og Guđmundur Kristinn Lee (1622) unnu í dag en ađrir töpuđu.

Örn hefur 4 vinninga, Nökkvi hefur 3˝ vinning, Birkir og Óskar hafa 3 vinninga og Guđmundur hefur 2˝ vinning. . 

Um 70 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar á međal 4 stórmeistarar og 4 alţjóđlegir meistarar.  Hjörvar er fjórđi stigahćsti keppandi mótsins.

Heimasíđa mótsins


Baldri gengur vel í Saint Ló

baldur teodor set up a nice trap to mate his opponent03Baldur Teódór Petersson (1032) heldur áfram ađ gera góđa hluti á skákhátíđinni í Saint Ló í Frakklandi.  Í nćstsíđustu umferđ, sem fram fór í dag,  vann hann skákmann međ 1705 skákstig.  Baldur hefur 5 vinninga.  Sóley Lind Pálsdóttir (1194) tapađi.  Baldur hefur 5 vinninga en Sóley hefur 3 vinninga en ţau tefla í opnum unglingaflokki.  Páll Sigurđsson (1957) er kominn á beinu brautina í opnum flokki og vann sína ađra skák í röđ og hefur 50% vinningshlutfall.  Mótinu lýkur á morgun.

Halla Sigurđsdóttir (móđir Baldurs og systir Páls) hefur sent Skák.is myndir sem finna má í myndaalbúmi.

 

 


Sumarskákmót Skákakademíunnar - afmćlismót Polgarbana fer fram á morgun

Skákakademía Reykjavíkur

 Veđriđ leikur ekki sérstaklega mikiđ viđ höfborgarbúa ţessa dagana. Í ţví skyni mun Skákakademía Reykjavíkur reyna ađ blíđka gođin og efnir til Sumarskákmóts Skákakademíunnar.
Ţegar hafa nokkrir alţjóđlegir meistarar bođađ komu sína eftir hádegi á morgun fimmtudag en taflmennskan hefst 13:30.

Polgarbaninn Tómas Hermannsson útgefandi hjá Sögur útgáfa hefur stutt vel viđ starfssemi Skákakademíunnar. Kappinn fyllir fjórđa áratuginn í mánuđinum og mótiđ ţví um leiđ afmćlismót ţessa glađbeitta Polgarbana en á níunda áratugnum mátađi ungur piltur frá Akureyri hina ungversku skákgođsögn á snaggaralegan hátt í Reykjavíkurmótinu.

Tefldar verđa sex umferđir hrađskák og veitt verđlaun í fullorđins- og barnaflokki.

Wales: Hjörvar međ jafntefli viđ Radulski og er efstur ásamt tveimur öđrum

Hjörvar Steinn GrétarssonFIDE-meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2437) gerđi jafntefli viđ búlgarska stórmeistarann Julian Radulski (2556) í sjöttu umferđ alţjóđlegs móts sem fram fer í Wales en sá er stigahćsti keppandi mótsins.  Hjörvar hefur 5 vinninga og er efstur ásamt stórmeisturunum Marjan Petrov (2534), Búlgaríu, og Peter Wells (2489), Englandi.  Hjörvar mćtir Petrov í sjöundu umferđ sem fram fer á morgun.

Óskar Long Einarsson (1743) var eini íslenski skákmađurinn sem vann í dag.  Ađrir gerđu jafntefli ađ Guđmundi Kristni Lee (1622) undanskyldum sem tapađi.   Góđ úrslit ţar sem allir íslensku skákmennirnir tefldu viđ stigahćrri andstćđinga í dag.

Nökkvi hefur 3˝ vinning, Óskar, Birkir og Örn Leó hafa 3 vinninga en Guđmundur hefur 1˝ vinning. 

Um 70 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar á međal 4 stórmeistarar og 4 alţjóđlegir meistarar.  Hjörvar er fjórđi stigahćsti keppandi mótsins.

Heimasíđa mótsins


Hjörvar vann og er einn efstur í Wales

HjörvarFIDE-meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2437) vann enska alţjóđlega meistarann Jack Rudd (2278) í fimmtu umferđ skákhátíđinnar sem fram fer í Suđur-Wales.  Hjörvar hefur 4˝ vinning og er einn efstur á mótinu.  Í sjöttu umferđ sem fram fer síđar í dag teflir Hjörvar viđ búlgarska stórmeistarann Julian Radulski (2556), sem er stigahćstur keppenda.    

Birkir Karl Sigurđsson (1546) vann, Nökkvi Sverrisson (1919) og Óskar Long Einarsson (1743) gerđu jafntefli en Örn Leó Jóhannsson (1889) og Guđmundur Kristinn Lee (1622) töpuđu.  Nökkvi hefur 3 vinninga, Örn Leó og Birkir Karl hafa 2˝ vinning, Óskar Long 2 vinninga og Guđmundur Kristinn 1˝ vinning. 

Í 2.-7. sćti, hálfum vinningi á eftir Hjörvari, eru m.a.: búlgörsku stórmeistararnir, Radulski og Marijan Petrov (2534) og enski stórmeistarinn Peter Wells (2489).

Um 70 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar á međal 4 stórmeistarar og 4 alţjóđlegir meistarar.  Hjörvar er fjórđi stigahćsti keppandi mótsins.

Heimasíđa mótsins


Gott gengi í Saint Ló í Frakklandi.

soley lind and baldur teodor 2Frćndsystkinum Sóleyju Lind Pálsdóttur (1194) og Baldri Teódóri Peterssyni (1032) gengur vel í alţjóđlegri skákhátíđ í Saint Ló í Frakklandi.  Ţau tefla í opnum unglingaflokki.  Baldur Teódór hefur 4 vinninga og Sóley Lind 2˝ vinning eftir 6 umferđir en ţau hafa teflt viđ stigahćrri andstćđinga allt mótiđ.

Í gćr tefldi Baldur góđa fórnarskák sem er skýrđ af Páli Sigurđsson (1957) á Skákhorninu.  Páll teflir í opnum flokki en hefur ekki gengiđ vel og hefur 2 vinninga.

Halla Sigurđsdóttir (móđir Baldurs og systir Páls) hefur sent Skák.is myndir sem finna má í myndaalbúmi.

 

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 11
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 112
  • Frá upphafi: 8778384

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 86
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband