Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Heimsbikarmótiđ: Heine, Navara, Kamsky og Ivanchuk áfram

Ţriđju umferđ (32 manna úrslit) Heimsbikarmótsins (World Cup) lauk í dag í Khanty Mansiesk í Síberíu.  Í dag var teflt til ţrautar međ styttri umhugsunartíma   Tékkneski heiđursmađurinn David Navara vann Úkraníumanninn Moiseenko.  Međal annarra úrslita má nefna ađ Kamsky vann Nepomiachtchi, Ivanchuk lagđi Sutovsky.  Eini Norđurlandabúinn Peter Heine Nielsen er einnig kominn áfram eftir sigur á Rúmenanum Mircea-Emilian Parligras. 

Í fjórđu umferđ (16 manna úrslitum) mćtast m.a.: Polgar-Dominguez Perez, Ivanchuk-Bu, Grischuk-Potkin, Kamsky-Vidler og Gashimov-Heine. Útsendingin hefst kl. 9 og er í háum gćđaflokki.  

Úrslit 3. umferđar:

      Round 3 Match 01
 Polgar, Judit (HUN)
 Karjakin, Sergey (RUS)˝
      Round 3 Match 02
 Ivanchuk, Vassily (UKR)3
 Sutovsky, Emil (ISR)1
      Round 3 Match 03
 Zherebukh, Yaroslav (UKR)
 Mamedyarov, Shakhriyar (AZE)
      Round 3 Match 04
 Ponomariov, Ruslan (UKR)
 Efimenko, Zahar (UKR)
      Round 3 Match 05
 Tomashevsky, Evgeny (RUS)˝
 Gashimov, Vugar (AZE)
      Round 3 Match 06
 Grischuk, Alexander (RUS)
 Morozevich, Alexander (RUS)˝
      Round 3 Match 07
 Bacrot, Etienne (FRA)˝
 Radjabov, Teimour (AZE)
      Round 3 Match 08
 Kamsky, Gata (USA)3
 Nepomniachtchi, Ian (RUS)1
      Round 3 Match 09
 Caruana, Fabiano (ITA)1
 Svidler, Peter (RUS)3
      Round 3 Match 10
 Jakovenko, Dmitry (RUS)2
 Jobava, Baadur (GEO)0
      Round 3 Match 11
 Potkin, Vladimir (RUS)
 Vitiugov, Nikita (RUS)
      Round 3 Match 12
 Parligras, Mircea-Emilian (ROU)1
 Nielsen, Peter Heine (DEN)3
      Round 3 Match 13
 Le, Quang Liem (VIE)
 Bruzon Batista, Lazaro (CUB)
      Round 3 Match 14
 Navara, David (CZE)4
 Moiseenko, Alexander (UKR)2
      Round 3 Match 15
 Gupta, Abhijeet (IND)˝
 Bu, Xiangzhi (CHN)
      Round 3 Match 16
 Dominguez Perez, Leinier (CUB)5
 Lysyj, Igor (RUS)4

 

 

 


Ráđast úrslitin á Meistaramóti Hellis í kvöld?

Hjörvar Steinn Grétarsson

Björn Ţorfinnsson 

 

 

 

 

 

 

Hjörvar Steinn Grétarsson (2437) og Björn Ţorfinnsson (2412) mćtast í kvöld á Meistaramóti Hellis.  Skákin gćti hćglega ráđiđ úrslitum en félagarnir eru jafnir og efstir međ fullt hús.  Hjörvar stjórnar hvítu mönnunum.  Fimm skákmenn, Páll Sigurđsson (1957), Guđmundur Kjartansson (2310), Bragi Halldórsson (2198), Ţorvarđur F. Ólafsson (2174) og Einar Hjalti Jensson (2227) koma vinningi á eftir efstu mönnum og og treysta á ađ efstu menn misstigi í lokaumferđinni. 

Í öđrum toppskákum mćtast Guđmundur-Páll, Einar-Bragi og Ţorvarđur-Oliver Aron.

Umferđin hefst kl. 19:30. 


Henrik býđur upp á skákkennslu

HenrikFrá Henrik Danielsen:

Dear chess friend

Are you interested in Systematical chess training via videos send to your inbox.

After 3 months you will have a better calculation, a better endgame technique and a bigger openings knowledge. Some students have improved a lot since they started in the spring 2011.

If interested then you need to sign up and pay for 3 periods. 1 period is 30 lectures and cost 6.000 kr. 3 periods is then 18.000kr.

As soon as you have paid I will start sending you daily videos from Monday to Friday.

Netfang Henriks er:  danielsen.h@gmail.com


Bolvíkingar unnu TR-inga

Guđmundur Dađason skrifar: Taflfélög Bolungarvíkur og Reykjavíkur áttust viđ í undanúrslitum hrađskákkeppni taflfélaga í gćrkvöldi (sunnudaginn 4. sept.). Ćtlun okkar var ađ mćta međ okkar sterkasta liđ en á síđustu stundu forfölluđust Jón L og Stefán Kristjáns, auk ţess sem Dagur og Elvar áttu ekki heimangengt. Arsenal tvíeykiđ og eđal Bolvíkingarnir Magnús Pálmi og Halldór Grétar komu í ţeirra stađ. Hjá TR vantađi einna helst Snorra Bergsson, sem einnig er Arsenal mađur. Ég hef svo sem enga hugmynd af hverju hann komst ekki en mér finnst vel skiljanlegt ađ Nallarar séu hikandi viđ ađ láta sjá sig á mannamótum ţessa dagana.

En hćttum ţessari stríđni og snúum okkar ađ skákinni. Viđ vorum međ ađeins sterkara liđ á pappírunum en ţó var ljóst ađ brugđiđ gat til beggja vona. Eftir 3 umferđir höfđu sveitirnar unniđ sitt hvora viđureignina og gert eitt jafntefli. Stađan 9-9. Ţá náđum viđ hins vegar ađ síga framúr og í 6. umferđ unnum viđ stórsigur 4,5-1,5 sem ţýddi ađ viđ leiddum 21-15 í hálfleik. Viđ byrjuđum seinni hálfleikinn af krafti og eftir 9 umferđir höfđum viđ náđ 11 vinninga forskoti og ljóst ađ mikiđ ţyrfti ađ ganga á til ađ viđ myndum tapa viđureigninni. TR náđi einum vinningi til baka í síđustu umferđinni og lokatölur 41-31 fyrir Íslandsmeistarana frá Bolungarvík.

Ţröstur, Bragi og Jón Viktor fóru fyrir okkar mönnum en einnig átti Magnús Pálmi sterka innkomu. Hjá TR fór Dađi Ómars á kostum og var t.d. ekki nema 3 mínútur ađ pakka mér saman í lokaumferđinni. Helgi Áss var sterkur framan af en gaf ađeins eftir í seinni umferđinni. Viđ ţökkum TR kćrlega fyrir skemmtilega viđureign og góđar móttökur. Nú bíđum viđ bara spenntir eftir hverjir verđa andstćđingar okkar í úrslitunum.

Guđmundur Dađason, liđsstjóri.

Árangur Bolvíkinga:
Ţröstur Ţórhallsson 9 af 11
Bragi Ţorfinnsson 9 af 12
Jón Viktor Gunnarsson 9 af 12
Jóhann Hjartarson 7 af 12
Magnús Pálmi Örnólfsson 5 af 12
Halldór Grétar Einarsson 2 af 12
Guđmundur Dađason 0 af 1

Árangur TR inga:
Dađi Ómarsson 9 af 12
Helgi Áss Grétarsson 8 af 12
Arnar Gunnarsson 5 af 11
Guđmundur Kjartansson 5 af 12
Torfi Leósson 3 af 12
Júlíus Friđjónsson 1 af 5
Björn Jónsson 0 af 1
Eiríkur Björnsson 0 af 1
Ríkharđur Sveinsson 0 af 6


Afmćlismót Ingibjargar Eddu fer fram í dag

Ingibjörg Edda á GrćnlandsslóđumMánudaginn 5. september, klukkan 13:00, heldur Skákfélag Vinjar mót til heiđurs afmćlisbarni dagsins, henni Ingibjörgu Eddu Birgisdóttur, sem verđur tuttugu og sjö vetra. Inga var rétt búin ađ taka upp fermingargjafirnar ţegar hún varđ Íslandsmeistari kvenna, í fyrra skiptiđ, en tók svo langa pásu frá skákinni. Hún hefur nú komiđ til baka međ offorsi og teflir međ Skákfélagi Selfoss og nágrennis í vetur. Auk ţess var hún kjörin í stjórn Skáksambandsins nú í vor.

Inga hefur haldiđ utan um skákina í Vin ađ miklu leyti í sumar og á skiliđ almennilegt mót. Hinn geđţekki borgarfulltrúi og formađur hverfisráđs miđborgar, fulltrúi í menntaráđi og varamađur annarra ráđa, Óttarr Ó. Proppé, mun heiđra keppendur og Vinjarfólk međ heimsókn í athvarfiđ. Óttarr mun setja mótiđ auk ţess ađ leika fyrsta leikinn. img_8733_copy.jpg

Cross fit meistarinn og framkvćmdastjóri Skákakademíunnar, Stefán S. Bergsson, ćtlar ađ halda utan um stjórn og dómgćslu og ađ venju fer allt vel fram enda deilir enginn viđ Stefán. Ekki oftar en einu sinni. Tefldar verđa sex umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma og bókaforlagiđ Bjartur hefur gefiđ vinninga á mótiđ, bćđi íslenskar og erlendar bćkur. Fimm efstu fá vinning og auk ţess verđur happadrćtti. Í hálfleik verđur afmćliskaffi.

Vinir og velunnarar bćđi Ingibjargar Eddu og Vinjar eru hvattir til ađ láta sjá sig. Skráning á stađnum og kostar ekkert.

Á myndunum má sjá Ingibjörgu einbeitta fylgja sporum ísbjarnar, sem hún vildi finna og klappa, viđ Ittoqqortoormiit á Grćnlandi í vor ţar sem hún hafđi umsjón međ skákkennslu og mótahaldi fyrir börn og unglinga á vegum Hróksins. Hún fann bangsa. Myndirnar tók Tim Vollmer.

Vin er athvarf Rauđa kross Íslands fyrir fólk međ geđraskanir ađ Hverfisgötu 47. Teflt er á mánudögum klukkan 13 og allir alltaf velkomnir.


Barna- og unglingaćfingar Hellis hefjast í dag

Barna- og unglingaćfingar Hellis hefjast aftur eftir sumarhlé mánudaginn 5. september 2011. Tafliđ byrjar kl. 17:15 og fyrirkomulagiđ verđur ţađ sama og síđasta vetur.  Ćfingarnar eru opnar öllum 15 ára og yngri. Engin ţátttökugjöld.

Ćfingarnar verđa haldnar í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a, Mjódd. Inngangur er milli Subway og Fröken Júlíu en salur félagsins er á ţriđju hćđ hússins. Á ćfingunum verđa 5 eđa 6 umferđir međ umhugsunartíma 10 eđa 7 mínútur. Einnig verđur fariđ í skákdćmi og endatöfl eins og tíma vinnst til. Umsjón međ ćfingunum hefur Vigfús Ó. Vigfússon.


Íslandsmót skákfélaga 2011-2012

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2011-2012 fer fram dagana 7. - 9. október nk.  Mótiđ fer fram í Rimaskóla í Reykjavík.  1. umferđ mun hefjast kl. 20.00 föstudaginn 7. október, 2. umferđ kl. 11.00 laugardaginn 8. október og 3. umferđ kl. 17.00 sama dag.  4. umferđ verđur síđan teflt kl. 11.00 sunnudaginn 9.október.

Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek. viđbótartími bćtist viđ eftir hvern leik.

Ţátttökugjöld: 

  • 1. deild, kr. 50.000.-
  • 2. deild, kr. 45.000.-
  • 3. deild, kr. 10.000.-
  • 4. deild, kr. 10.000.-

Skáksamband Íslands mun greiđa fargjöld utan stór-Reykjavíkursvćđisins samkvćmt reikningum fyrir sveitir í 1. og 2. deild.  Miđa skal viđ einn brottfararstađ á hverju svćđi, t.d. Akureyri, Egilsstađi, Ísafjörđ.  Sami háttur verđur hafđur í 3. og 4. deild og áđur, ţ.e. ţátttökugjöld höfđ lág en sveitirnar verđa sjálfar ađ sjá um ferđakostnađ á skákstađ.

Bent er á reglugerđ um Íslandsmót skákfélaga og 3. kafli skáklaga Skáksambands Íslands sem varđa Íslandsmót skákfélaga.

Vakin er athygli á viđbót viđ 2. grein reglugerđar um Íslandsmót Skákfélaga:

2. gr.

Framkvćmdanefnd Íslandsmóts skákfélaga, sem skipuđ er af stjórn Skáksambands Íslands, ákveđur töfluröđ og skipar skákstjóra og umsjónarmenn Íslandsmóts skákfélaga.  Öllum taflfélögum, sem eiga sveitir í 1. deild, ber ađ útvega einn skákstjóra. 

Athugiđ ađ tilkynningar v. Keppendaskrár Skáksambands Íslands skulu hafa borist SÍ í síđasta lagi 16. september nk. sbr. 18. gr. skáklaga.

Vakin er athygli á eftirfarandi texta í 19. grein skáklaga:  „Fyrir upphaf 1.umferđar fyrri hluta ÍS skulu félögin skila inn styrkleikaröđuđum lista allra ţeirra keppenda sem ţeir hyggjast nota í keppninni."

Ţátttökutilkynningar ţurfa ađ berast Skáksambandi Íslands fyrir 1. október međ bréfi, tölvupósti (skaksamband@skaksamband.is) eđa símleiđis.  Ađ gefnu tilefni er minnt á ađ nauđsynlegt er ađ skrá sveitir í keppnina, ekki síst í 4. deild.

Stjórn SÍ mćlist til - af gefnu tilefni - ađ félögin skrái ekki fleiri sveitir til keppni en ţau treysta sér til ađ manna í báđum hlutum keppninnar. 

Ath.  Skákir í Íslandsmóti skákfélaga verđa reiknađar til alţjóđlegra skákstiga.

                                                           Međ kveđju

                                                           SKÁKSAMBAND ÍSLANDS


Heiđarleiki viđ skákborđiđ borgar sig

r-32-navara-moisHeiđarleiki viđ skákborđiđ er mikilvćgur eiginleiki.   Skákmennirnir Navara og Moiseenko sýndu báđir mikla íţróttamannslega framkomu viđ skákborđiđ í dag.  Um miđja skák varđ Navara ţađ á ađ snerta rangan mann, sem hefđi ţýtt ađ hann hefđi fengiđ tapađ tafl, en Moiseenko ákvađ ađ krefjast ţess ekki á ţeim forsendum ađ Navara hafi greinilega snert manninn fyrir mistök.  Navara fékk síđar unniđ tafl, drottningu á móti hrók og ţegar hrókurinn var ađ falla bauđ Navara jafntefli sem Moiseenko ţáđi.   Ţetta varđ til ţess ađ einvígiđ fer í bráđabana.

Ţar sem geta ađ munurinn á ţví ađ komast í fjórđu umferđ úr ţeirri ţriđju er a.m.k. $7.200 eđa ríflegar 800.000 kr.

Báđum skákmönnum til mikils sóma og rímar vel viđ viđ einkennisorđ skákhreyfingarinnar, Gens Una Sumus. 

Ítarlega frásögn frá ţessu atviki má finna á heimasíđu mótsins.


Skákţáttur Morgunblađsins: 100 árstíđ Mikhails Botvinniks

BotvinnikViđ vorum staddir ţrír Íslendingar á útsláttarmótinu í Hollandi haustiđ 1994 ţegar „skáksagan" gekk skyndilega fram á okkur. Mikhael Botvinnik var orđinn ćđi sjóndapur en ţarna var hann leiddur áfram af vingjarnlegum risa, Vasilí Smyslov. Ţeir voru heiđursgestir mótsins. Nú er ţess víđa minnst ađ hinn 17. ágúst sl. voru hundrađ ár frá fćđingu Mikhails Botvinnik. Hann varđ heimsmeistari áriđ 1948, tveim árum eftir fráfall Alexanders Aljékín. Eftir ţađ tefldi hann átta heimsmeistaraeinvígi og hélt titlinum međ stuttum hléum til ársins 1963. Botvinnik vakti fyrst athygli ţegar hann lagđi heimsmeistarann Capablanca í fjöltefli áriđ 1925. Frami hans varđ skjótur eftir ţađ og náđi ákveđnum hátindi međ sigri ásamt Capablanca á stórmótinu í Nottingham áriđ 1936. Áriđ 1939 hafđi náđst samkomulag um einvígi Botvinniks viđ heimsmeistarann Aljékín en stríđiđ gerđi út um ţau áform. Áriđ 1946 skorađi Botvinnik Aljékín aftur á hólm en heimsmeistarinn, sem hafđist viđ í Portúgal heilsulaus, fjárvana og niđurlćgđur, fannst skömmu síđar látinn á hótelherbergi í smábćnum Estoril.

Botvinnik ţótti afar skipulagđur mađur. Međfram skákinni starfađi hann sem rafmagnsverkfrćđingur og ţróađi m.a. hugbúnađ fyrir skáktölvu. Hann lagđi upp ćfingaáćtlun fyrir skákmenn sem hafđi mikil áhrif. Ţar var m.a. gert ráđ fyrir allt ađ 8 klst. skákrannsóknum á dag, mikilli líkamsrćkt og algerri afneitun lífsins lystisemda. Skákţjálfara sína, Model og Ragozin, lét hann stundum hringsóla í kringum vinnuborđ sitt eđa spúa frá sér tóbaksreyk svo hann gćti vanist óvćntum truflunum.

Međ sanni hefur Botvinnik veriđ talinn fulltrúi fyrir ţá tortryggni sem gegnsýrđi sovéskt ţjóđlíf og hann var oft grunađur um ađ beita áhrifum sínum til ađ ná fram hagfelldri niđurstöđu. En stundum kom hann á óvart. Hann neitađi ađ skrifa upp á plagg til fordćmingar á ţví er Viktor Kortsnoj „tók stökkiđ yfir" sumariđ 1976 og virtist fylgja sannfćringu sinni í flestum málum.

Skákir Botvinniks á 1. borđi ólympíumóta vöktu alltaf mikla athygli. Ţegar Botvinnik tefldi viđ Fischer í Varna 1962 tókst Bobby ađ finna glufu i gömlum Botvinnik-rannsóknum og fékk unniđ tafl.

„Karlinn var orđinn svo lúpulegur," skrifađi Bobby til vinar síns, „ađ engum hefđi komiđ á óvart ţó hann hefđi veriđ fluttur á sjúkrabörum af skákstađ. Ţegar jafnteflisstöđunni var hinsvegar náđ spígsporađi hann bísperrtur um sviđiđ međ reistan makkann," bćtti hann viđ.

Miguel Najdorf reiđ sjaldnast feitum hesti frá viđureignum sínum viđ „Bóta",sbr. eftirfarandi skák sem tefld var á ólympíumótinu í Amsterdam 1954:

Mikhail Botvinnik - Miguel Najdorf

Kóngsindversk vörn

1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 O-O 5. Rc3 c5 6. Rf3 Rc6 7. O-O d6 8. e3 Bf5 9. b3 Dc8 10. Bb2 Re4 11. Hc1 Rxc3 12. Bxc3 Be4 13. d5 Bxc3 14. Hxc3 Rd8 15. Rd2 Bxg2 16. Kxg2 f5 17. f4 e6 18. e4 exd5 19. cxd5 Rf7 20. He1 He8 21. Hce3 Dd7 22. Df3 Had8 23. a4 b6 24. exf5 Hxe3 25. Hxe3 Dxf5 26. g4 Dc2 27. He2 Hf8 28. Re4 Dd1

G2SNTLPB( STÖĐUMYND )

29. Rf6+ Kg7 30. g5 Hc8 31. He3 Dxf3 32. Kxf3 h6 33. h4 hxg5 34. hxg5 a6 35. He7 Hb8 36. Ha7 b5 37. Hxa6 bxa4 38. bxa4 Hc8 39. a5 Kf8 40. Hc6 Ha8 41. a6

- og Najdorf gafst upp

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

-------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum 28. ágúst 2011.

Skákţćttir Morgunblađsins


Sunnudagsmogginn: Máta sig viđ ţá allra bestu

Mátar ađ tafli: Frá vinstri Arnar Ţorsteinsson, Jón Árni Jónsson, Skafti Ingimarsson, f.h. Pétur Blöndal, Sigurđur D. Sigfússon (gestur), Arngrímur Gunnhallsson, Magnús Teitsson. Mátar tefla nú í fyrsta sinn í 1. deild og eru ađ leita ađ liđstyrk fyrir koTaflfélagiđ Mátar var stofnađ í Garđabć í sumarlok 2008, „í upptakti hrunadansins", eins og Pálmi Ragnar Pétursson, formađur félagsins, kemst sposkur ađ orđi. Félagar eru tuttugu talsins og kjarninn eru Akureyringar búsettir á höfuđborgarsvćđinu en fleiri hafa smám saman bćst í hópinn. „Viđ erum flestir aldir upp í Skákfélagi Akureyrar og héldum lengi tryggđ viđ ţađ félag en létum síđan verđa af ţví ađ stofna nýtt. Nafngiftin er skemmtileg og viđeigandi. Allir erum viđ mátar ţó svo viđ mátum stundum hver annan enda enginn annars máti í leik."

Mátar ţreyta frumraun sína í fyrstu deild Íslandsmótsins í vetur og Pálmi viđurkennir ađ ađeins fari um ţá. „Viđ erum ađ leita hófanna um liđstyrk en ţurfum ađ hafa snör handtök ţví ađ Íslandsmót taflfélaga hefst í byrjun október," segir Pálmi en teflt er á átta borđum í efstu deild.

Rúnar Sigurpálsson og Arnar Ţorsteinsson hafa leitt hópinn til ţessa og hefur Pálmi áhuga á fleiri skákmönnum í ţeim gćđaflokki.

Mátar ćtla ekki ađ láta sér nćgja ađ tefla međal hinna bestu heldur er einnig stefnt ađ ţví ađ senda liđ til keppni í 4. deild. Ađ óbreyttu munu nokkrir gamalkunnir stjórnmálamenn tefla ţar fyrir hönd Máta, svo sem Halldór Blöndal, Guđni Ágústsson, Guđjón Guđmundsson og Gunnar I. Birgisson. Einnig er ekki útilokađ ađ rithöfundurinn Huldar Breiđfjörđ setjist viđ taflborđiđ. Pálmi segir Máta hittast vikulega yfir vetrartímann og tefla og hlakkar til ađ takast á viđ nýja félaga í vetur. Milli skáka er svo vitaskuld rćtt fjálglega um landsins gagn og nauđsynjar.

Mátar munu ekki ađeins tefla í vetur ţví félagiđ hefur ađ beiđni Skáksambands Íslands tekiđ ađ sér ađ endurreisa Tímaritiđ Skák. Ţađ hefur legiđ í láginni um nokkurt skeiđ og segir Pálmi ţađ verđuga áskorun ađ taka upp ţráđinn.

Fyrirhugađ er ađ tímaritiđ komi út einu sinni á ári, í tengslum viđ Reykjavík Open í byrjun mars. Pálmi segir menn ţegar farna ađ safna efni en auk hefđbundinna ţátta, svo sem umfjöllunar um helstu mót, verkefni landsliđsins, ćskulýđsstarf og fleira, er meiningin ađ leita líka fanga á óhefđbundinn hátt. „Ţá er ég ađ tala um ađ rýna í skáksöguna, miđla reynslusögum og fleira," segir Pálmi og bćtir viđ ađ hćgt sé ađ skrá sig í áskrift á skak.is.

------------------------------

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 28. ágúst sl.  Morgunblađiđ, og Orri Páll Ormarsson, sem skrifađi greinina, fá ţakkir fyrir ađ leyfa birtingu.  Mynd eftir Sigurgeir S.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband