Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Spennandi spurningakeppni á Skákmóti Árnamessu

SigurvegararnirÍ skákhléi á fjölmennu Skákmóti Árnamessu fór fram spurningakeppni skákfélaga og keppt um fallegan verđlaunagrip sem gefinn var til eignar.

Ţađ voru sex liđ sem tóku ţátt í spurningakeppninni og varđ keppnin mjög jöfn og spennandi frá upphafi til enda. Keppt var í tveimur riđlum og í hverju liđi voru ţrír liđsmenn.

Í fyrri riđlinum sigrađi Fjölnir međ 6 stig eftir hnífjafna keppni viđ Snćfellsbć sem hlaut 5 stig. Haukarnir ráku lestina međ 3 stig. Í seinni riđlinum reyndist Hellisliđiđ sterkast međ Dawid Kolka í fararbroddi og fékk 7 stig, TR hlaut 5 stig og heimamenn í Stykkishólmi 2 stig. Til úrslita í spurningakeppninni kepptu liđ Fjölnis og Hellis. Ţar ćstust leikar ennţá frekar og úrslit réđust ţegar Fjölnismenn náđu ađ svara rétt til međ Íslandsmeistarann í skák Ţröst Ţórhallsson eftir ađ Hellisliđiđ hafđi giskađ á Braga Ţorfinnsson. Fjölnir vann ţví úrslitaleikinn 9 - 8 . Í sigurliđi Fjölnis voru ţeir Oliver Aron Jóhannesson, Mikolaj Oskar Chojecki og Jóhann Arnar Finnsson. Helmingur spurninganna snerist um skák en einnig var spurt úr landafrćđi, íţróttum , bókmenntum  og erlendum ţjóđarleiđtogum.


Hilmir Freyr Kjördćmismeistari Vestfjarđa.

kjördćmismót vestfjarđa 2013 045Kjördćmismót Vestfjarđa fór fram núna um helgina undir stjórn Ingibjargar Eddu Birgisdóttur og Henriks Danielsen stórmeistara. Ţar sigruđu Hilmir Freyr Heimisson međ fullt hús stiga og Halldór Jökull Ólafsson var í 2. sćti. Eftir lokaumferđina voru Halldór Jökull og Kristján Kári Ágústsson jafnir í 2. - 3. sćti og ţurftu ţví ađ tefla úrslitaskák um sćti á Landsmótinu. Ţar fór svo ađ Halldór Jökull lagđi Kristján Kára. Geysilega góđ ţátttaka var í yngri flokki.

Ţađ eru svo ţau Guđrún Ýr Grétarsdóttir og Róbert Orri Leifsson keppa fyrir hönd eldri flokks á Landsmótinu.

Myndaalbúm (ÁHS)


KR-kapp: Vignir Vatnar vann aftur glćstan sigur

Vignir Vatnar Óheft ímyndunarafl og djúpur sköpunarkraftur einkennir jafnan taflmennskuna á mánudagsmótum KR í Frostaskjólinu ţar sem fjölskrúđugur hópur öflugra skákkappa af  höfuđborgarsvćđinu mćtist til keppni allan ársins hring. Eins konar "Skálkaskjól" ţar sem mćtast stálin stinn og er jakki er ekki frakki - nema síđur sé.  Ţar láta menn ekki gott mát sér úr greipum ganga, né betri stöđu forgörđum fara, né vesćlt peđ úr hendi sleppa - nema baneitrađ sé.  Og ţar er enginn engin er annars bróđir í leik  - nema samvaxnir Síams tvíburar séu - sem ekki er til ađ dreifa.

Í raun má segja ađ mótin jafngildi tveimur hrađmótum í TR eđa Helli ţví umferđirnar eru ţrettán en ekki sjö eins og ţar tíđkast.  Ţví er ekki úr vegi ađ birta hér til gamans og tilbreytingar stöđuna í hálfleik ađ loknum sjö umferđum til samanburđar. Eins og sjá má voru sumir í blússandi stuđi í byrjun móts međan ađrir máttu muna sinn fífil fegri. En í seinni hálfleik náđu ýmsir valinkunnir kappar vopnum sínum á ný, en ţó ekki allir, sem sýnir hvađ dagsformiđ hefur mikiđ ađ segja og vćntanlega úthaldiđ líka.    

 

kr-_sta_an_i_halfleik_25_4_2013.jpg

 

Nýr kafli var skrifađur í sögu kappmótanna í KR-heimilinu í ţessum mánuđi ţegar hinn ungi sveinn Vignir Vatnar Stefánsson, ađeins 10 ára ađ aldri, birtist ţar til tafls ásamt föđur sínum og fylgdarmanni Stefáni Péturssyni skipstjóra fyrir hálfum mánuđi. Sá stutti gerđi sér lítiđ fyrir og vann mótiđ međ 10.5 vinningi af ţrettán mögulegum. 

En ţá er ekki öll sagan sögđ ţví sl. mánudag birtust ţeir feđgar aftur og ekki ţurfti sökum ađ spyrja eđa leikslokum - nú sigrađi "ungstirniđ undraverđa" mótiđ međ fáheyrđum yfirburđum - hlaut 12 vinninga af ţrettán.  Ađeins hinum aldna meistara Gunnari Gunnarssyni tókst ađ halda velli gegn hinum unga og upprennandi snillingi. Voru ţó flestir sigursćlustu skákmenn klúbbsins međal ţátttakenda hoknir af reynslu. Svo sem Gunnar Birgisson, Ingimar Jónsson, Birgir Berndsen, Guđfinnur Kjartansson og Stefán Ţormar Guđmundsson svo nokkrir séu nefndir auk formannsins og stórmeistarabanans Kristjáns Stefánssonar, sem er hverjum öđrum skeinuhćttari sem hann lćtur minna yfir sér.  

Nú er sveinninn ungi floginn yfir pollinn tvíefldur af sjálfstrausti til ţátttöku í heimsmóti skákmanna undir 2000 stigum sem hefst í dag í borginni IASI í Rúmeníu nćr Svartahafi.  Fylgja honum góđar óskir um gott gengi og ómćlda keppnisreynslu, 

Nánari úrslit má sjá á međf. mótstöflu og á www.kr.is /skák.

 

kr-_m_tstafla_15_apr_l_2013_-.jpg

 

Ţađ styttist óđum í nćsta Kappmót í KR sem haldiđ verđur í kvöld og hefst kl. 19.30 réttstundis ađ stađartíma. 


Vormót Vinjar í dag: Allir velkomnir

Allar kynslóđir eru velkomnar í Vin.

Skákfélag Vinjar býđur skákáhugamönnum á öllum aldri á Vormót Vinjar, mánudaginn 22. apríl klukkan 13. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma, og í leikhléi verđur bođiđ upp á kaffi og međlćti.

Skákfélag Vinjar stendur fyrir vikulegum ćfingum á mánudögum klukkan 13 og reglulega eru haldin stórmót. Ţá náđi A-sveit félagsins glćsilegum árangri í 3. deild Íslandsmóts skákfélaga, og mun keppa í 2. deild nćsta vetur.

 Ţórir í Rauđa krossinum međ skákmeisturunum Nikolic, Sokolov, Pokorna, McShane og deFirmian, ásamt ritstjóra New in Chess.

Í júní verđur ţví fagnađ ađ 10 ár eru liđin síđan reglulegt skákstarf hófst í Vin. Skákfélagiđ Hrókurinn stóđ um árabil fyrir skáklífi í Vin, og studdi viđ bakiđ á Skákfélagi Vinjar sem nú er eitt af blómlegustu taflfélögum landsins. Skákakademían hefur í vetur lagt Skákfélagi Vinjar liđ, og er Róbert Lagerman ađalţjálfari hinna harđsnúnu Vinjarpilta.

Allir eru velkomnir á Vormót Vinjar á mánudaginn. Veitt verđa ýmis verđlaun. Ţátttaka er ókeypis, eins og jafnan á viđburđum Skákfélags Vinjar.


NM stúlkur 2013 - Nansý Norđurlandameistari og Jóhanna međ silfurverđlaun

Úrslit dagsins

 

A-flokkur

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir - Hrund Hauksdóttir ˝-˝

 

B-flokkur

Sóley Lind Pálsdóttir - Alina Legkiy, Svíţjóđ ˝-˝

Veronika Steinunn Magnúsdóttir - Mette Ellegaard  Christensen, Danmörku 1-0

 

C-flokkur

Nansý Davíđsdóttir - Sara Naess, Noregi ˝-˝

Kajsa Nilsson, Svíţjóđ - Svandís Rós Ríkharđsdóttir 1-0

 

Viđ fengum 3,5 vinninga af 5 mögulegum í ţessari umferđ.

 

Jóhanna Björg

Svo óheppilega vildi til ađ ţćr stöllur í A-flokki lentu saman í dag.  Ljóst var ađ Jóhanna yrđi helst ađ vinna og treysta á ađ  Jessica ynni ekki.  Jóhanna fékk ágćtis stöđu gegn Hrund en missteig sig á krítísku augnabliki og Hrund snéri á hana og fékk ţá unna stöđu.  Hrund yfirsást öflugur varnarleikur hjá Jóhönnu ţar sem hún fórnađi hrók fyrir ţráskák.  Nú var eina vonin ađ Jessica tapađi ţví ljóst var ađ Jóhanna myndi tapa í stigaútreikningi gegn henni en vinna allar hinar.  Jessica gerđi síđan jafntefli  og voru ţá Jóhanna, Jessica (Svíţjóđ) og Erle (Noregur) efstar og jafnar međ 3,5 vinninga af 5 mögulegum.  Jessica varđ Norđurlandameistari á stigum, Jóhanna endađi í öđru sćti og Erle varđ ţriđja.  Hrund endađi í 5.-6. sćti međ 2 vinninga.

 

Jóhanna, Veronika, Sóley, Svandís og Nansý

Í B-flokki gerđi Sóley jafntefli viđ Alinu Legkiy frá Svíţjóđ.  Sóley stjórnađi ferđinni í skákinni allan tíman en náđi ekki ađ nýta ţađ til sigurs og jafntefli varđ niđurstađan.  Veronika vann hina dönsku Mette í góđri skák, ţar sem sú danska varđ ađ játa sig sigrađa ţrátt fyrir hetjulega vörn.  Veronika hlaut 2,5 vinninga í ţessum flokki og Sóley 2 vinninga.  Veronika endađi í 6.-7. sćti og Sóley í 8.-9. sćti. 

 

Nansý og pabbi

Í C-flokki gerđi Nansý jafntefli viđ Söru Naess sem dugđi henni til ađ verđa Norđurlandameistari eins og áđur hefur komiđ fram.  Skákin var skemmtileg en Nansý hefđi mátt tefla skákina lengur en ţađ er mjög skiljanlegt ađ taka jafntefli međ ţandar taugar í lokaumferđ ţegar góđar líkur eru á ţví ađ jafntefliđ dugi manni til sigurs í mótinu.  Svandís var lánlaus í dag og tapađi sinni skák gegn Kajsu frá Svíţjóđ ţrátt fyrir ađ tefla skákina ágćtlega allan tímann.

 

Skáksalurinn

Í heildina var árangurinn í mótinu ágćtur.  Ég er bara orđinn svo góđu vanur á mótum međ stelpunum ađ ég vill alltaf meira.  Ţegar ţađ er haft í huga ađ Ísland vann fyrsta Norđurlandameistaratitil stúlkna fyrir ţremur árum (Hallgerđur Helga) ţá er greinilegt ađ kvennaskák á Íslandi er á uppleiđ.  Á síđustu ţremur árum hefur Ísland unniđ fjóra Norđurlandameistaratitla af níu mögulegum.  Árangur Nansýar stendur upp úr á mótinu og er međ ólíkindum ađ svona ung stelpa sé međ svona mikinn stöđuskilning.  Jóhanna tefldi einnig afar vel og var sérstaklega farsćl í byrjanavali sem kom svo sem ekki á óvart ţví hún hefur lagt mikiđ á sig upp á síđkastiđ í stúderingum.  Svona vinna skilar sér alltaf ađ lokum.  Ađrar áttu góđa spretti á mótinu en náđu ekki  ađ halda dampi allan tímann.  Ţađ verđur ţó ađ hafa ţađ í huga ađ svona mót er afar erfitt.  Fimm kappskákir á ţremur dögum ţannig ađ lítill tími gefst til ađ anda á milli sem gerir ţađ ađ verkum ađ mjög erfitt er ađ vinna sig í gegnum mótlćti ef mađur lendir í ţví.  Svona mót eru samt afar góđur skóli fyrir stelpurnar og sýnir ţeim ađ ţađ er nauđsynlegt ađ vera međ nokkuđ breiđa byrjanaţekkingu sem nýtist sérstaklega vel ţegar takmarkađur tími er til undirbúnings fyrir hverja umferđ.

 

Nćsta Norđurlandamót stúlkna verđur haldiđ á Íslandi en ég hlakka mikiđ til ţess ţví ţá eigum viđ rétt á fleiri keppendum en fjöldi skákstelpna hefur aukist mikiđ á síđustu árum.  Ađ lokum vil ég ţakka stelpunum kćrlega fyrir afar skemmtilega ferđ ţví leitun er ađ öđrum eins snillingum til ađ ferđast međ enda eru ţćr alltaf jákvćđar og til í slaginn.

 

Glćsilegur hópur 

 

Davíđ Ólafsson


Stefán Bergsson fór hamförum á Hrađskákmóti Norđlendinga

Unnar Rafn og Stefán BergssonStefán Bergsson fór mikinn í dag. Eins og áđur hefur komiđ fram vann hann Hannes Hlífar Stefánsson í lokaumferđ Skákţings Norđlendinga í dag. Í dag fór svo Hrađskákmót Norđlendinga fram. Stefán fór hreinilega hamförum og lagđi alla andstćđinga sína 12 ađ tölu! Rúnar Sigurpálsson varđa annar og Gunnar Björnsson varđ ţriđji.

Lokastöđu mótsins má finna á Chess-Results.


Skákţáttur Morgunblađsins: Besti skákmađur allra tíma

Carlsen og KasparovAfrek Magnúsar Carlsens í áskorendamótinu, nýslegiđ stigamet og aldeilis stórkostleg framganga á skáksviđinu undanfarin misseri kallar á samanburđ viđ annan risa skáksögunnar, Garrí Kasparov, sem í dag, 13. apríl, fagnar 50 ára afmćli sínu. Kasparov komst hćst í 2.851 elo-stig en met Magnúsar stendur í 2.872 elo. Lengra nćr samanburđurinn ekki í huga margra.

Ţegar Kasparov hćtti opinberlega ađ tefla eftir sigur á Linares-mótinu áriđ 2005 hafđi hann veriđ stigahćsti mađur heims í 20 ár, teflt átta heimsmeistaraeinvígi, átti ađ baki óslitna sigurgöngu á alţjóđlegum mótum og skildi eftir sig frábćrt verk á sviđi skákbókmennta.

Afskipti af framkvćmdahliđ skákarinnar eru hins vegar umdeild; á pólitíska sviđinu rússneska hefur fullvissa hans um eigiđ ágćti ekki náđ yfir til háttvirtra kjósenda og tveir hjónaskilnađir gćtu bent til ţess ađ hann sé ekki mjög auđveldur í sambúđ; fyrsta eiginkonan var „sett út á stétt" í miđju heimsmeistaraeinvígi í London haustiđ 1993. Hvađ varđar snilldarverk hans viđ skákborđiđ ţá blikna bestu skákir Magnúsar Carlsens í samburđi viđ snilldarverk Kasparovs. Núverandi heimsmeistari, Anand, var Kasparov aldrei mikil hindrun, stađan í viđureignum ţeirra er 29:16.

Norđmađurinn á ţó vinninginn á einu sviđi; líkt og Fischer teflir hann allar skákir í botn og hann er líka heiđarlegri viđ skákborđiđ. Á vettvangi einvígja er hann auđvitađ óskrifađ blađ og hann verđur ekki „gerđur upp" međ sama hćtti og hinn fimmtugi Kasparov, sem greinarhöfundur telur ţrátt fyrir allt mesta skákmann allra tíma. Ef bera á fram mögnuđustu skák Kasparovs stendur valiđ á milli skáka nr. 16 í HM-einvígjum nr. 2 og 3. árin 1985 og '86 og skákar sem hann tefldi undir lok aldarinnar. Kannski kvaddi „klassíska skákin" 20. öldina međ ţessari viđureign:

Wijk aan Zee 1999:

Garrí Kasparov - Veselin Topalov

Pirc-vörn

1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Be3 Bg7 5. Dd2 c6 6. f3 b5 7. Rge2 Rbd7 8. Bh6 Bxh6 9. Dxh6 Bb7 10. a3 e5 11. 0-0-0 De7 12. Kb1 a6 13. Rc1 0-0-0 14. Rb3 exd4 15. Hxd4 c5 16. Hd1 Rb6 17. g3 Kb8 18. Ra5 Ba8 19. Bh3 d5 20. Df4+ Ka7 21. Hhe1

Ólíkt ţví sem menn áttu ađ venjast hafđi Kasparov í raun ekki margt fram ađ fćra í byrjun ţessarar skákar. Stađan má heita í jafnvćgi.

21.... d4 22. Rd5 Rbxd5 23. exd5 Dd6 24. Hxd4!

Fyrsta sprengjan fellur. Topalov sá atburđarásina fyrir, gat valiđ 24.... Kb6! sem heldur öllu í horfinu og sennilega gott betur en vildi láta reyna á réttmćti fórnarinnar.

24....cxd4

g7oqj3im.jpg25. He7+!

Byggir á hugmyndinni 25.... Dxe7 26. Db6+ Bb7 27. Rc6+ Ka8 28. Da7 mát.

25.... Kb6 26. Dxd4 Kxa5 27. b4+ Ka4 28. Dc3! Dxd5 29. Ha7! Bb7

Ţvingađ ţar sem 29.... Hd6 er svarađ međ 30. Kb1 sem hótar 31. Db3+ og mátar.

30. Hxb7 Dc4 31. Dxf6 Kxa3 32. Dxa6 Kxb4 33. c3+! Kxc3 34. Da1+ Kd2 35. Db2+ Kd1 36. Bf1! Hd2

37. Hd7!!

„Hann er skrímsli međ ţúsund augu og ţau sjá öll." - Tony Miles. Kasparov mun ađ eigin sögn hafa séđ ţessa stöđu og ţennan leik fyrir er hann lék 24. Hxd4.

37.... Hxd7 38. Bxc4 bxc4 39. Dxh8 Hd3 40. Da8 c3 41. Da4 Ke1 42. f4 f5 43. Kc1 Hd2 44. Da7

- og svartur gafst upp.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 7. apríl 2013.

Skákţćttir Morgunblađsins


Stefán Norđurlandsmeistari eftir sigur á Hannesi Hlífari

1206Stefán Bergsson (2139) tryggđi sér Norđurlandsmeistaratitilinn eftir mjög góđan sigur á stórmeistaranum Hannesi Hlífari Stefánsson (2513) í sjöundu og síđustu umferđ Skákţings Norđlendinga sem fram fór á Sauđárkróki um helgina. Hannes sigrađi engu ađ síđur á mótinu. Ţorvarđur F. Ólafsson (2237) varđ annar međ 5,5 vinning en Stefán og Sverrir Örn Björnsson (2135) urđu í 3.-4. sćti međ 5 vinninga.

Vigfús Ó. Vigfússon fékk verđlaun skákmanna međ minna en 2000 skákstig en Jón Arnljótsson, Sigurđur Ćgisson og Jakob Sćvar Sigurđsson urđu eftir skákmanna međ minna en 1800 skákstig.

Ţađ var Skákfélag Sauđárkróks sem hélt mótiđ og bar Unnar Rafn Ingvarsson, formađur félagsins, hitann og ţungann af mótshaldinu. Helstu styrktarađilar ţess voru Kaupfélag Skagafjarđar, FISK Seafood, Sparisjóđur Sauđárkróks, Skáksamband Íslands og Sveitarfélagiđ Skagafjörđur. 

Hertz bílaleiga og Eyja-flug studdu viđ heimsókn Hannesar Hlífars, Stefáns og Gunnar Björnssonar, skákstjóra sem komu á vegum Skáksambandsins, Skákskólans og Skákakademíunnar og heimsóttu međal annars fjóra skóla á Norđvesturlandi.

Úrslit sjöundu umferđar má finna hér.

Lokastöđu mótsins má nálgast hér.


NM stúlkur 2013 - Nansý Norđurlandameistari

IMG 20130419 00018

Nansý Davíđsdóttir var rétt í ţessu ađ tryggja sér Norđurlandameistaratitilinn í C-flokki.  Nansý gerđi jafntefli viđ Söru Naess frá Noregi í síđustu umferđ og endađi jöfn Lisu Fredholm ađ vinningum.  Nansý vinnur hins vegar á stigum og er ţví Norđurlandameistari Stúlkna 2013 í yngsta flokki.  Til hamingju Nansý.

 Spennan í A-flokki er gríđarleg.  Jóhanna og Hrund gerđu jafntefli og mun ţađ ţví ráđast á stigaútreikningi sem rćđst af lokum síđustu tveggja skákanna í flokknum.  Jóhanna nagar nú neglur og bíđur.


NM Stúlkur 2013 - Pistill fjórđu umferđar

Úrslit morgunsins:

 

A-flokkur

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir - Caroline Lindberg Hansen, Svíţjóđ 1-0

Hrund Hauksdóttir - Kaberi Mitra, Svíţjóđ 1-0

 

B-flokkur

Monika Machlik, Noregi  - Veronika Steinunn Magnúsdóttir  1-0

Mette Ellegaard  Christensen, Danmörku - Sóley Lind Pálsdóttir 0-1

 

C-flokkur

Nansý Davíđsdóttir - Regine Forsa, Noregi 1-0

Svandís Rós Ríkharđsdóttir - Saida Mamadova, Svíţjóđ ˝-˝

 

Mun betri úrslit í dag, 4,5 vinningar af 6 mögulegum.

 

Hrund - Kaberi

Í A-flokki vann Jóhanna Karólínu frá Svíţjóđ mjög örugglega.  Sú sćnska tapađi tíma í byrjuninni og ţađ dugđi Jóhönnu sem gjörsamlega yfirspilađi andstćđinginn og vann mjög fljótt.  Hrund tefldi langa og stranga skák gegn Kaberi frá Svíţjóđ.  Hrund fékk betri stöđu eftir byrjunina en ţurfti ađ gefa mann fyrir tvö peđ en var áfram međ betri stöđu og ađ tefla til vinnings.  Andstćđingurinn féll ađ lokum á tíma ţegar viđ henn blasti erfitt endatafl međ tveimur riddurum og peđi gegn riddara og fjórum peđum Hrundar.  Verulega góđ úrslit í A-flokki í dag.  Stađan í A-flokki er sú ađ Jóhanna og Jessica frá Svíţjóđ eru efstar og jafnar međ 3 vinninga.  Hrund hefur 1,5 vinning eftir sigur í morgun.  Svo óheppilega vill til ađ Jóhanna og Hrund mćtast í síđustu umferđ.

 

Sóley

Í B-flokki tapađi Veronika fyrir Moniku öđrum norska tvíburanum í flokknum.  Veronika fékk fína stöđu úr byrjuninni en tefldi ónákvćmt og tapađi manni.  Ţá fór hún ađ tefla fyrir alvöru, vann peđ og var örugglega nánast búin ađ jafna tafliđ ţegar hún lék af sér í tímahraki og tapađi.  Engu ađ síđur ágćtis skák hjá henni í dag.  Viđ Sóley rćddum ţađ í gćr ađ vonda skákin í mótinu vćri búin og nú vćri bara ađ ná inn góđu skákunum.  Sóley tefldi afar vel í dag og afgreiddi andstćđinginn snaggaralega í 20 leikjum.  Verulega góđ skák hjá henni.  Stađan í flokknum er nú ţannig ađ Freja frá Danmörku og Rina frá Svíţjóđ eru efstar og jafnar međ 3,5 vinninga.  Á eftir ţeim koma norsku tvíburarnir međ 3 vinninga.  Ţćr efstu mćta norsku tvíburunum í síđustu umferđ ţannig ađ ef tvíburarnir vinna báđir ţá eru ţćr efstar og jafnar.  Veronika og Sóley geta rétt sinn hlut í flokknum međ sigri í dag.

 

IMG 20130419 00017

Í C-flokki hélt Nansý uppteknum hćtti og vann Reginu frá Noregi örugglega.  Sigur eđa jafntefli hjá henni í síđustu umferđ tryggir henni Norđurlandameistaratitilinn.  Svandís tefldi langa og stranga skák gegn Saidu frá Svíţjóđ.  Svandís var allan tíman ađ reyna ađ vinna en sú sćnska varđist vel og náđi ađ lokum ţráskák međ drottningu og peđ á móti tveimur hrókum og peđi.  Ágćtis skák hjá Svandísi sem var afar nćrri ţví ađ innbyrđa sigur í morgun.  Stađan í flokknum er nú ţannig ađ Nansý er ein efst međ 3,5 vinninga.  Nćstar koma Sara frá Noregi og Lisa frá Svíţjóđ međ 3 vinninga.  Nansý mćtir Söru í síđustu umferđ og dugir jafntefli til ađ sigra flokkinn.

 

Skákir Íslensku keppendanna (hófust klukkan 13:30):

 

A-flokkur

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir - Hrund Hauksdóttir

 

B-flokkur

Sóley Lind Pálsdóttir - Alina Legkiy, Svíţjóđ

Veronika Steinunn Magnúsdóttir - Mette Ellegaard  Christensen, Danmörku

 

C-flokkur

Nansý Davíđsdóttir - Sara Naess, Noregi

Kajsa Nilsson, Svíţjóđ - Svandís Rós Ríkharđsdóttir

 

Skák Jóhönnu og Hrundar og skák Nansýar eru í beinni útsendingu.

 

Beinar útsendingar:

http://www.limhamnssk.se/live/ (flash)

http://www.limhamnssk.se/live/jslive.php 

 

Myndir:

http://www.flickr.com/photos/limhamnssk/sets/72157633191277159/

 

Úrslit og röđun:

A flokkur

B flokkur

C flokkur

 

Skákir (pgn):

Fyrsta umferđ

Önnur umferđ

Ţriđja umferđ

Fjórđa umferđ

 

Davíđ Ólafsson


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 105
  • Frá upphafi: 8778336

Annađ

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband