Fćrsluflokkur: Spil og leikir
7.5.2013 | 15:52
Hrađskákmót öđlinga fer fram á morgun
Hrađskákmót öđlinga fer fram á morgun 8. maí kl. 19.30 í félagsheimili T.R. ađ Faxafeni 12. Mótiđ er opiđ fyrir alla 40 ára og eldri (f. 1972 og síđar).Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma.
Í lok mótsins fer fram verđlaunaafhending fyrir Hrađskákmótiđ sem og Skákmót öđlinga sem lauk s.l. miđvikudagskvöld. Ţátttökugjald er kr. 500 og er í ţví innifaliđ kaffi og góđgćti. Skákmenn 40+ eru hvattir til ađ fjölmenna!
Vormót Skákakademíu Kópavogs og Skákskóla Íslands fer fram nćsta föstudag í Stúkunni á Kópavogsvelli og hefst kl 14.30. Tefldar verđa sjö umferđir og er tímafyrirkomulagiđ 5 3 Bronstein. Međ mótinu lýkur vorönn en undanfarin misseri hefur Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskólans annast ćfingar í Stúkunni fyrir unga skákmenn í Kópavogi.
Mótiđ fer fram allt í einum flokki en veitt verđa glćsileg verđlaun fyrir efstu sćtin međal ţeirra sem eru skákstig og fyrir ţá sem stigalaus eru. Mótiđ er opiđ öllum ţeim sem sótt hafa ćfingar í Stúkunni eđa hafa teflt fyrir grunnskóla Kópavogs í hinum ýmsu flokkakeppnum á ţessu ári.
7.5.2013 | 15:29
EM: Bein útsending frá 3.umferđ
Ţá eru skákir ţriđju umferđar á EM farnar af stađ. Vopnabrćđurnir Dagur og Guđmundur glíma viđ afar sterka stórmeistara í dag og ţví er rétt ađ íslenskir skákáhugamenn sendi ţeim félögum góđa strauma.
Hćgt er ađ fylgjast međ skákunum í beinni hér.
Félagarnir eru á borđum 37-72.
Fréttaritari skak.is getur ekki betur séđ en ađ báđir drengirnir séu međ ágćtar stöđur ţegar rúmlega 2 klst. eru liđnar af baráttunni.
7.5.2013 | 10:39
Ofurmótiđ í Noregi hefst í dag

Sterkasta skákmót í sögu Noregs (og mögulega Norđurlandanna) hefst í Stavangri í dag.
Ţátttakendur eru 10 talsins:
- Magnus Carlsen (2868)
- Levon Aronian (2813)
- Veselin Topalov (2793)
- Vishy Anand (2783)
- Hikaru Nakamura (2775)
- Peter Svidler (2769)
- Sergey Karjakin (2767)
- Teimour Radjabov (2745)
- Wang Hao (2743)
- Jon Ludvig Hammer (2608)
Keppnisfyrirkomulagiđ er ţannig ađ fyrst fer fram hrađskáksmót (4 min + 2 sek), allir viđ alla, og mun sigurvegarinn fá ađ velja sér stađ í töfluröđinni og síđan koll af kolli. Sjálft ađalskáksmótiđ hefst síđan á morgun, 8.maí.
Ţađ er margt spennandi viđ ţetta mót. Í fyrsta lagi ađ sjá hvernig Magnus Carlsen stendur sig á heimavelli og ekki síđur ađ sjá áskorandann og heimsmeistarann takast á í mótinu. Í Noregi er mikil óánćgja međ ađ heimsmeistaraeinvígiđ fari fram í Chennai á Indlandi og ţví má búast viđ ađ andrúmsloftiđ verđi lćvi blandiđ.
Búlgarinn Veselin Topalov snýr nú aftur í alvöru elítumót en hann vann eftirtektarverđan sigur á Grand Prix móti í Zug á dögunum ţar sem hann malađi B-elítu skákheimsins. Topalov á marga ađdáaendur og ţeir munu eflaust fylgjast spenntir međ framgangi hans.
Vladimir Kramnik átti ađ vera međal ţátttakenda en hann dró sig út úr mótinu á dögunum og í hans stađ kom Peter Svidler. Sá hefur afar gott skor á heimamanninn Carlsen og spennandi verđur ađ sjá hvort ađ hann heldur uppteknum hćtti.
Uppfćrt: Beina útsendingu frá hrađskáksmótinu má nálgast hér. Carlsen og Anand mćttust í fyrstu umferđ hrađskáksmótins og gerđu jafntefli í hundleiđinlegri skák!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2013 | 00:18
Magnús er brjálađur!
Sú ákvörđun FIDE, alţjóđa skáksambandsins, ađ skrifa undir samning viđ indverska framtaksmenn um skipulagningu heimsmeistaraeinvígisins milli Carlsens og Anand í Chennai í Indlandi, hefur vakiđ hörđ viđbrögđ víđa. Forseti norska skáksambandins hefur fordćmt ákvörđunina í opnu bréfi til FIDE og nú stígur áskorandinn sjálfur fram og lýsir yfir miklum vonbrigđum sínum í fréttatilkynningu.
Sjá nánar hér.
Carlsen segist ekki skilja ţessa einhliđa ákvörđun FIDE enda hafi veriđ mikill áhugi fyrir ţví ađ bjóđa í einvígishaldiđ víđa um heim. Ađilar í Frakklandi hafi viljađ bjóđa 3,5 milljónir evra og óstađfestar fregnir herma ađ önnur tilbođ hafi veriđ í bígerđ.
Ţrátt fyrir óánćgjuna ţá ćtlar Carlsen ekki ađ "púlla Bobbý" á ţetta heldur ađ bíta í skjaldarrendur og glíma viđ heimsmeistarann á heimavelli.
Sálfrćđistríđiđ fyrir heimsmeistaraeinvígiđ er hafiđ!
6.5.2013 | 22:35
Skákhátíđ á Ströndum 21.-23. júní: Ţrír stórmeistarar skráđir til leiks á Afmćlismót Jóhanns Hjartarsonar

Skákhátíđ á Ströndum verđur haldin dagana 21. til 23. júní og sem fyrr verđur bođiđ upp á fjölda skemmtilegra viđburđa fyrir áhugamenn úr öllum áttum. Ţetta er sjötta skákhátíđin á Ströndum, sem hefur unniđ sér sess sem fastur liđur í skákdagatalinu.
Ađ ţessu sinni verđa skákviđburđir á fjórum stöđum: Hólmavík, Djúpavík, Trékyllisvík og í Norđurfirđi.

Föstudaginn 21. júní klukkan 16 verđur fjöltefli í Hólmavík og um kvöldiđ verđur hiđ vinsćla tvískákarmót haldiđ í síldarverksmiđjunn í Djúpavík. Stađarhaldarar í Djúpavík bjóđa gestum hátíđarinnar upp á sérstakt tilbođ á gistingu og eru áhugasamir hvattir til ađ hafa samband sem fyrst.
Laugardaginn 22. júní verđur svo efnt til Afmćlismóts Jóhanns Hjartarsonar stórmeistara, sem varđ fimmtugur fyrr á árinu, í samkomuhúsinu í Trékyllisvík. Međal keppenda verđa Jóhann, Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason, auk ţess sem von er á fleiri sterkum skákmönnum. Heildarverđlaun á mótinu verđa 100 ţúsund krónur, auk fjölda veglegra aukavinninga.

Um kvöldiđ verđur svo efnt til hins árlega ,,landsleiks" heimamanna og ađkomumanna og ađ leik loknum verđur hátíđarkvöldverđur í samkomuhúsinu.
Sunnudaginn 23. júní lýkur hátíđinni í Norđurfirđi međ Afmćlismóti Böđvars Böđvarssonar, hinnar gamalreyndu skákkempu, sem verđur 77 ára ţennan dag. Böđvar ţarf vart ađ kynna fyrir skákáhugamönnum, en vegleg peningaverđlaun verđa á mótinu.
Gisting er í bođi á Hótel Djúpavík, auk ţess sem mótshaldarar hafa yfir ađ ráđa fyrsta flokks svefnpokagistingu í Norđurfirđi. Ţá eru góđ tjaldstćđi í Árneshreppi svo allir ćttu ađ finna eitthvađ viđ sitt hćfi.
Áhugasamir eru hvattir til ađ hafa samband sem fyrst viđ Hrafn Jökulsson í hrafnjokuls@hotmail.com eđa Róbert Lagerman í chesslion@hotmail.com.
Árneshreppur á Ströndum er afskektasta en ađ margra mati landsins fegursta sveit. Skákfélagiđ Hrókurinn stendur ađ hátíđinni, og mótshaldarar hlakka til ađ hitta gamla vini og nýja á skemmtilegri hátíđ!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2013 | 22:06
EM: Pörun 3.umferđar
Ţá liggur pörun ţriđju umferđar fyrir á Evrópumótinu. Dagur Arngrímsson, sem byrjađ hefur mótiđ afar vel, stýrir svörtu mönnunum gegn hvítrússneska stórmeistaranum Andrey Zhigalko (2603). Bróđir hans er ofurstórmeistarinn Sergey Zhigalko (2660) og ţví má segja ađ Zhigalko-fjölskyldan beri höfuđ og herđar yfir ađrar hvítrússneskar skákfjölskyldur, ekki ósvipađ og Ţorfinnsson-fjölskyldan dómínerar íslenskt skáklíf svo ađ landar vorir geti sett hlutina í samhengi. Yfirburđirnir eru slíkir ađ nćstu brćđur sem eitthvađ geta í Hvíta-Rússlandi eru Elkin-brćđurnir, Leonid (2181) og Maxim (2201), eru ţeir brćđur ţví einskonar Ássar Hvíta-Rússlands!
Guđmundur Kjartansson, sem fyrirfram hefđi eflaust sćtti sig viđ 1 vinning af 2 gegn tveimur 2600+ stórmeisturum, stýrir hvítu mönnunum gegn Íslandsvininum Illya Nyzhnyk (2635). Sá kom fyrst til landsins áriđ 2008, ţá sem efnilegasta krútt í heimi og heillađi landsmenn alla. Núna er pilturinn ekkert krútt lengur heldur einfaldlega ţaulreyndur atvinnumađur sem eirir aungvu, nema e.t.v. enska stórmeistaranum Stephen Gordon sem gerđi sér lítiđ fyrir og lagđi maskínuna í 2.umferđ. Sá úkraínski hefur eflaust orđiđ fyrir miklum vonbrigđum međ ţá niđurstöđu og ţví treystum viđ ţví ađ Guđmundur stígi fast til jarđar á morgun.
Fréttaritari Skák.is óskar Degi og Guđmundi alls hins besta á morgun og hvetur íslenska skákáhugamenn til ađ nýta tćkifćriđ og fylgjast međ ţeim í beinni útsendingu.
*Myndin sem fylgir fréttinni er af tveimur krúttböngsum á Reykjavíkurmótinu 2008.
6.5.2013 | 18:31
EM: 2.umferđ í gangi
Önnur umferđ Evrópumóts einstaklinga í Legnica í Póllandi fer fram í dag. Ţegar ţessi orđ eru skrifuđ hefur alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2446) mátt lúta í gras gegn sterkum rússneskum stórmeistara A.Rakhmanov (2616). Guđmundur lenti í talsverđri beyglu eftir byrjunina og náđi ekki ađ rétta úr kútnum ţrátt fyrir hetjulega baráttu sem ćtíđ einkennir okkar mann. Ţrátt fyrir ađ fréttaritari skak.is hafi skákţekkingu á borđ viđ orangútan ţá virkađi 9. - dxc4 sem einkennileg ákvörđun og ekki síđur Rf6-e8-d6 manúveringin sem var fylgt eftir međ ţrekskiptu peđaţrammi e7-e6-e5 og allt í steik í kjölfariđ.
Ef ađ einhver hefur manndóm í sér til ađ rífa sig upp eftir slćma flengingu á hinum sextíu og fjórum reitum ţá er ţađ Guđmundur okkar Kjartansson og ţví biđ ég lesendur um ađ örvćnta eigi.
Talandi um manndóm ţá situr Dagur Arngrímsson (2390) enn ađ tafli gegn verđandi ofurstórmeistara Robert Hovhannisyan (fullt rassgat af stigum, nenni ekki ađ fletta ţví upp). Dagur tefldi afar agressíft, fórnađi tveimur peđum fyrir virka stöđu og undirritađur var orđinn bjartsýnn. Síđan fór hinsvegar allt í steik, jafnt og ţétt, og ţegar Hovi var kominn međ valdađ frípeđ á d3 ţá töldu eflaust flestir daga Dags talda.
Međ djöfulegri baráttu náđi hinsvegar okkar mađur ađ einfalda tafliđ jafnt og ţétt og rétt áđur en ég ýti á "vista og birta" ţá virđist allt stefna í skiptan hlut sem ađ vćri mikiđ afrek.
Uppfćrt: Dagur landađi jafnteflinu! Glćsilega gert.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2013 | 18:29
Sumarskákmót Fjölnis hefst kl. 17.00 á miđvikudaginn
Skákdeild Fjölnis lýkur starfsárinu međ árlegu sumarskákmóti sem öllum áhugasömum skákkrökkum á grunnskólaaldri er heimilt ađ taka ţátt í.
Teflt verđur í hátíđarsal Rimaskóla. Rótarýklúbbur Grafarvogs gefur ţrjá eignarbikara fyrir sigur í ţremur flokkum, eldri, yngri og stúlknaflokki.
Ţátttaka er ókeypis. Pítsa og gos kostar 300 kr í skákhléi. Vegleg verđlaun, mörg verđlaun og bođiđ upp á skemmtilegt skákmót sem lokiđ er á tveimur tímum.
Foreldrum velkomiđ ađ fylgjast međ og ţiggja kaffisopa. Endum skákáriđ međ skemmtilegu skákmóti og mćtum tímanlega. Skráning á stađnum.
Tefldar sex umferđir. Umhugsunartími er sjö mínútur. Skákstjórar verđa ţeir Helgi Árnason og Stefán Bergsson.
6.5.2013 | 18:25
Gallerý Skák - lokamótiđ: Friđgeir Hólm fór međ sigur af hólmi

Segja má ađ friđsöm átakataflmennska í góđum anda hafi ráđiđ ríkjum á keppnisstađ og óvenju létt yfir mönnum enda umgjörđ mótsins međ hátíđarsniđi. Bođiđ var upp á ljúffengan veislukost í leikhléi, myndskreytta marsipantertu, ţar sem kostur gafst á ađ hakka sigursćlustu keppendur vetrarins í sig, t.d. ţá Gunna Gunn og Gunna Birgis. Var ţetta ţáttur í áfallastreytugeđröskunarhjálparferli", fyrir ţá sem voru enn međ böggum hildar, höfđu einhverja sárra harma ađ hefna eđa óuppgerđar sakir viđ suma, til ađ losa ţá ţannig viđ innibyrgđa sálrćnapersónuleikahugröskunarhefndarţörf".
Úrslit mótsins komu svolítiđ á óvart og ţó ekki. Ţađ var enginn annar en hinn harđsnúni skákbolti Friđgeir K. Hólm, sem fór ađ lokum međ sigur af hólmi, ţó međ 2˝ niđur, međ 8˝ vinning af 11 mögulegum. Friđgeir er afar slunginn skákmađur, teflir mikiđ örskákir á Netinu og hefur veriđ á mikilli sigurbraut undanfariđ. Afrekađ ţađ ma. ađ verđa efstur á mótum bćđi í KR, Riddaranum og eins í Ásum á stuttum tíma. Jon Olav Fivelstad, hinn norskćttađi frá Fífilbrekku gróinni grund sem á ţađ til ađ tefla í anda Tals og Stefán Ţormar Guđmundsson, hiđ eitilharđa Hellisheiđarséni, urđu síđan jafnir í 2.-3. sćti međ 7˝, Guđfinnur stađarhaldari varđ fjórđi međ 7 vinninga. Var konu hans sérstaklega ţakkađ í mótslok međ orkideuvendi fyrir ítarleg afnot annarra af honum í ţágu skáklistarinnar.
Mikiđ var um óvćnt úrslit og máttu margir ţekktir meistarar reitađa borđsins muna sinn fífill fegri og sćtta sig sárgramir viđ ađ komast ekki ofar á mótstöfluna ađ ţessu sinni eins og sjá má á međf. úrslitatöflu.
XXX
Miđsumarmót Gallerý Skákar verđur haldiđ í Skákseli viđ Selvatn ţegar sól skín hvađ hćst í heiđi í júlí. Um er ađ rćđa bođsmót međ allt ađ 40 ţátttakendum međ veislu- og viđhafnarsniđi. Áhugasamir listhafendur geta ţó sótt ađ vera bođin ţátttaka á netfanginu: galleryskak@gmail.com
ESE-skákţankar 06.05.13
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 8
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 8778312
Annađ
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar