Fćrsluflokkur: Spil og leikir
3.6.2013 | 17:00
Fimmta umferđ íslandsmótsins ađ hefjast
Fimmta umferđ Íslandsmótsins í skák hefst nú kl. 17. Mikil spenna og óvćnt úrslit hafa sett svip sinn á mótiđ en sjö keppendur eru nú efstir og jafnir! Áhorfendur eru velkomnir á skákstađ en ţar eru afar góđar ađstćđur fyrir keppendur og áhorfendur. Teflt er á efstu hćđinni (20. hćđ) í Turninum Borgartúni (Höfđatorg).
Tíu skákir eru sýndar beint frá hverri umferđ. Eftirtaldar skákir eru sýndar beint í dag:
- AM Björn Ţorfinnsson (3˝) - AM Hjörvar Steinn Grétarsson (3˝)
- SM Hannes Hlífar Stefánsson (3˝) - FM Sigurbjörn Björnsson (3˝)
- AM Guđmundur Kjartansson (3˝) - SM Henrik Danielsen (3˝)
- Sigurđur Páll Steindórsson (3˝) - SM Héđinn Steingrímsson (3)
- SM Stefán Kristjánsson (3) - Gylfi Ţórhallsson (3)
- Jón Ţór Bergţórsson (3) -AM Bragi Ţorfinnsson (3)
- FM Guđmundur Gíslason (3) - Haraldur Baldursson (3)
- Ţór Valtýsson (3) - KSM Lenka Ptácníková (3)
- Peter Henner (2˝) - FM Ţorsteinn Ţorsteinsson (2˝)
- Oliver Aron Jóhannesson (2˝) - Kristján Eđvarđsson (2˝)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2013 | 15:30
Sigurbjörn fjallar um Íslandsmótiđ í skák
Sigurbjörn Björnsson fjallar um Íslandsmótiđ í skák á vef sínum www.skakbaekur.com. Ţar segir hann međal annars:
Ţarna má líka sjá efstu 12 skákirnar í hverri umferđ. Taflmennskan hefur hingađ til veriđ fjörleg og ađstćđur í skáksal eru allar hinar bestu. Ekki veit ég hvernig ţađ kom til ađ mótiđ yrđi haldiđ á ţessum stađ en ţetta er mjög vel heppnađur mótsstađur og er sennilega ekki hćgt ađ finna betra útsýni yfir höfuđborgarsvćđiđ ţannig ađ ef stađan er slćm er ţó alltaf hćgt ađ hugga sig viđ útsýniđ. Góđur andi er í skáksalnum og vil ég meina ađ Birna og hennar heimilislegu veitingar gegni mikilvćgu hlutverki í ađ gera ađstćđur hinar bestu. Einnig standa skákstjórnarnir og ađrir skipuleggjendur mótsins vel ađ öllu og eiga hrós skiliđ fyrir áhuga, eldmóđ og fagmennsku.
Umfjöllun Sigurbjörn má finna í heild sinni hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2013 | 14:30
Skákir fjórđu umferđar
Ţórir Benediktsson hefur slegiđ inn skákir fjórđu umferđar Opna Íslandsmótsins í skák. Ţćr fylgja međ sem viđhengi.
Skákir mótsins er einnig hćgt ađ nálgast á vefsíđu mótsins.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2013 | 13:41
Fyrsta fundargerđ nýrrar stjórnar SÍ
Fundargerđir stjórnar SÍ hafa veriđ ađgengilegar á vef sambandsins í mörg ár á vef sambandsins. Ţćr verđa hér eftir einnig birtar á Skák.is.
Á fyrsta fundi stjórnar var međal annars skipt í embćtti. Pálmi R. Pétursson er nýr varaforseti SÍ. Á fundinum var einnig skipađ í nefndir, fariđ yfir skýrslu "Jónsnefndar" um landsliđsmál, rćtt um Íslandsmótiđ í skák og Íslandsmót skákfélaga til ađ mynda og ákveđiđ ađ Ísland myndi senda fulltrúa á EM unglinga í Svartfjallalandi í haust.
Fundargerđin í heild sinni:
1. fundur stjórnar Skáksambands Íslands 2012 - 2013
haldinn fimmtudaginn 23. maí 2013, kl. 17:15
Mćttir: Gunnar Björnsson, Helgi Árnason, Stefán Bergsson, Pálmi R. Pétursson, Óskar Long Einarsson, Steinţór Baldursson, Ásdís Bragadóttir1. Verkaskipting stjórnar:
Forseti: Gunnar Björnsson
Varaforseti: Pálmi R Pétursson
Gjaldkeri: Helgi Árnason
Ritari: Róbert Lagerman
Skákritari/vararitari: Ríkharđur Sveinsson
Ćskulýđsfulltrúi: Stefán Bergsson
Međstjórnandi: Ingibjörg Edda Birgisdóttir
Varamenn í stjórn:
- Steinţór Baldursson
- Óskar Long Einarsson
- Andrea Margrét Gunnarsdóttir
- Ţorsteinn Stefánsson
2. Skipting í nefndir:
Skákmótanefnd:
Gunnar Björnsson formađur, Ríkharđur Sveinsson, Vigfús Óđinn Vigfússon, Helgi Árnason, Páll Sigurđsson, Stefán Bergsson, Ingibjörg Edda Birgisdóttir, Steinţór Baldursson og Óskar Long Einarsson, Gunnar Freyr Rúnarsson, Ţorsteinn Ţorsteinsson, Hermann Ađalsteinsson.
Ćskulýđsnefnd:
Stefán Bergsson formađur, Erla Hjálmarsdóttir, Ingibjörg Edda Birgisdóttir, Sigurđur Arnarson, Páll Sigurđsson, Ţorsteinn Stefánsson - auk ţess mun formađur biđja um tilnefningar frá taflfélögunum.
Landsmótsstjóri:
Ingibjörg Edda Birgisdóttir
Mótsstjórn Íslandsmóts skákfélaga:
Sverrir Örn Björnsson formađur, Áskell Örn Kárason og Helgi Árnason.
Til vara: Pálmi R. Pétursson, Steinţór Baldursson, Óskar Long Einarsson.
FIDE fulltrúi:
Gunnar Björnsson
Fulltrúi í stjórn Skáksambands Norđurlanda:
Gunnar Björnsson.
Til vara: Pálmi R. Pétursson
Skákstiganefnd:
Ríkharđur Sveinsson formađur, Omar Salama og Páll Sigurđsson
Skákminjanefnd:
Ríkharđur Sveinsson formađur, Pálmi R. Pétursson, Róbert Lagerman, Helgi Ólafsson.
Landsliđs- og afreksnefnd:
Frestađ til nćsta fundar.
Kvennaskáknefnd:
Ingibjörg Edda Birgisdóttir formađur, Davíđ Ólafsson, Róbert Lagerman, Lenka Ptacnikova og Andrea M. Gunnarsdóttir
Landsbyggđarnefnd:
Hermann Ađalsteinsson formađur, Áskell Örn Kárason, Tómas Veigar Sigurđsson, Sverrir Gestsson, Guđmundur Ingvi Jóhannsson, Sverrir Unnarsson, Hrafn Jökulsson, Sigurđur Ćgisson, Magnús Matthíasson og Unnar Ingvarsson.
Styrkjanefnd:
Gunnar Björnsson formađur, Ásdís Bragadóttir, Pálmi R Pétursson, Óskar Long Einarsson
Öđlinganefnd:
Einar S. Einarsson formađur, Finnur Kr. Finnsson, Guđfinnur R. Kjartansson, Sigurđur E. Kristjánsson og Össur Kristinsson
Fjárhagsnefnd:
Helgi Árnason formađur, Gunnar Björnsson, Andrea M. Gunnarsdóttir, Steinţór Baldursson, Pálmi R. Pétursson og Ásdís Bragadóttir
Laganefnd:
Pálmi R. Pétursson, formađur Haraldur Baldursson, Bragi Kristjánsson og Ágúst Sindri Karlsson
Framtíđarnefnd/Stefnumótun:
Andrea Margrét Gunnarsdóttir formađur.
Dómaranefnd:
Omar Salama formađur, Páll Sigurđsson, Ríkharđur Sveinsson, Ólafur Ásgrímsson og Róbert Lagerman.
Mótsnefnd Reykjavíkurskákmótsins:Gunnar Björnsson, formađur, Pálmi R. Pétursson, Andrea Margrét Gunnarsdóttir, Helgi Árnason, Óskar Long, Róbert Lagerman, Omar Salama, Jón Ţorvaldsson, Jón Gunnar Jónsson, Hrafn Jökulsson, Stefán Bergsson, Björn Ţorfinnsson, Ingibjörg Edda Birgisdóttir, Birgir Örn Grétarsson, Ţorsteinn Ţorsteinsson, Steinţór Baldursson.
3. Skýrsla Jónsnefndar.Fariđ var yfir skýrslu Jónsnefndar um landsliđsmál og hún rćdd. Ţar kom fram ađ ýmislegt hefur ţegar veriđ framkvćmt sem fram kom í skýrslunni, t.d. hefur Helgi Ólafsson verđi ráđinn sem landsliđseinvaldur karla og Davíđ Ólafsson fyrir kvennaliđiđ. Báđir eru ţeir ráđnir fram yfir EM landsliđa 2015.
4 Íslandsmótiđ í skák.Íslandsmótiđ í skák fer fram dagana 31. maí - 8. júní nk. á 20. hćđ í turninum í Borgartúni. Undirbúningur gengur vel og fjáröflun er í gangi. Rćtt um ađ útbúa plaköt međ efni frá eldri mótum til ađ hafa á skákstađ.
5 Íslandsmót skákfélaga
Samţykkt ađ mótiđ hefjist á fimmtudegi í stađ hefđbundinnar föstudagsumferđar vegna fjölgunar liđa í 1. deild.Dagsetningar eru 10. - 13. október 2013 og 27. febrúar - 1. mars 2014.
6 Reglugerđir
Fara ţarf yfir reglugerđir. Áskell Örn Kárason, Páll Sigurđsson og Ingibjörg Edda Birgisdóttir fari yfir reglugerđ vegna skólaskákar. Reglugerđi um Íslandsmótiđ í atskák breytt ţannig ađ hćgt sé ađ stytta úrslitakeppni vegna útsendinga á RUV.
7 Alţjóđleg at-og hrađskákstigTekin var ákvörđun um ađ reikna alţjóđleg at-og hrađskákstig á međan skákstigaútreikningur er ókeypis.
8. EM landsliđa 2015
Undirbúningur er ađ hefjast og fćst svar á nćstu dögum frá Reykjavíkurborg varđandi húsnćđi fyrir mótiđ.
9. EM ungmenna
Evrópumót ungmenna u/8/10/12/14/16/18 ára fer fram í Svartfjallalandi dagana 28. september til 9. október nk. SÍ mun standa fyrir ferđ á mótiđ - annars vegar senda afreksunglinga og hins vegar bjóđa ţeim unglingum sem hafa lágmarksstig ađ fara á eigin vegum en SÍ mun senda ţjálfara.
Fundi slitiđ 19.30
Ásdís Bragadóttir
3.6.2013 | 12:13
Dagur mćtir Sveshnikov í dag - bein útsending
Alţjóđlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2396) tekur ţessa dagana ţátt í alţjóđlegu móti í Albena í Búlgaríu. Í tveimur fyrstu umferđunum vann hann stigalága andstćđinga. Í ţriđju umferđ, sem hófst fyrir skemmstu, mćtir hann hins vegar lettneska stórmeistaranum Evgeny Svesnikov (2512). Skákin er sýnd beint á vefsíđu mótsins og tilvaliđ ađ fylgjst međ henni á međan beđiđ er fimmtu umferđ Íslandsmótsins sem hefst kl. 17.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
3.6.2013 | 11:12
Júní-námskeiđ Skákskóla Íslands
Skákskóli íslands mun standa fyrir skáknámskeiđi dagana 10. - 14. júní nk. og fer ţađ fram í húsakynnum Skákskólans ađ Faxafeni 12. Ađalumsjónarmađur verđur Helgi Ólafsson en fjölmargir ađrir verđa kallađir til.
Viđ munum:
*Fara yfir skákir sem krakkar hafa teflt undanfariđ.
*Skođa vel tefldar skákir.
*Fara í alla helstu ţćtti skáklistarinnar.
*Lćra nýjar byrjanir.
*Fá skákmeistara í heimsókn til ađ tefla fjöltefli.
*Fá kunnáttumenn um skák og tölvur til ađ leiđbeina um notkun.
*Viđ ćtlum ađ sinna hverjum og einum ţátttakenda miđađ viđ aldur og getu.
*Tefla heilmikiđ.
Helstu atriđi námskeiđsins eru ţessi:
1. Námskeiđ hefst mánudaginn 10. júní og lýkur föstudaginn 14. júní.
2. Skráning fer fram hjá Ásdísi Bragadóttur framkvćmdastjóra SÍ og Skákskóla Íslands á netfanginu skaksamband@skaksamband.is eđa í síma 5689141 (skrifstofan er opin daglega frá 10-13).
3. Námskeiđiđ stendur frá kl. 10 - 13 alla daga. Viđ sérstakar ađstćđur geta ţátttakendur fengiđ ađ mćta seint í tíma eđa fariđ fyrr úr tímum.
4. Ţátttökugjald er kr. 5.500 og má annast greiđslu í heimabanka.
5. Heppilegt er ađ ţátttakendur taki međ sér nesti . Viđ gerum hlé um kl. 11:30.
6. Bent er á ađ heppilegt er ađ tveir eđa fleiri krakkar taki sig saman og mćti á námskeiđiđ. Ţetta getur gert foreldrum og ađstandendum auđveldara međ ađ skipuleggja samgöngur.
Bestu kveđjur, Helgi Ólafsson skólastjóri Skákskóla Íslands.
2.6.2013 | 21:54
Sjö skákmenn efstir og jafnir á Íslandsmótinu í skák
Sjö skákmenn eru efstir og jafnir međ 3˝ vinning ađ lokinni fjórđu umferđ Opna Íslandsmótsins í skák sem fram fór í dag. Ţađ eru stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Henrik Danielsen, alţjóđlegu meistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson, Björn Ţorfinnsson og Guđmundur Kjartansson, FIDE-meistarinn Sigurbjörn Björnsson og Sigurđur Páll Steindórsson.
Skákunum á ţremur efstu borđunum lauk međ jafntefli en Björn og Sigurđur Páll bćttust viđ í hóp forystusauđanna međ góđum sigrum. Henrik og Hannes gerđu jafntefli, Hjörvar og Guđmundur og Sigurbjörn viđ stórmeistarann Stefán Kristjánsson, Björn vann Kristján Eđvarđsson og Sigurđur Páll lagđi Bandaríkjamanninn Peter Henner.
Átt skákmenn hafa 3 vinninga og ţar á međal eru stórmeistararnir Stefán og Héđinn Steingrímsson og alţjóđlegi meistarinn Bragi Ţorfinnsson. Ţađ bendir allt til afar spennandi Íslandsmóts - sem er ekki amalegt á 100 ára afmćlismóti.
Lenka Ptácníková leiđir á Íslandsmóti kvenna sem er hluti af mótinu en hún hefur 3 vinninga. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir er önnur međ 2˝ vinning.
Fimmta umferđ fer fram á morgun og hefst kl. 17. Teflt er á efstu hćđinni (20. hćđ) í Turninum Borgartúni (Höfđatorg). Mjög góđ ađstađa er á skákstađ fyrir áhorfendur sem hafa fjölmennt um helgina. Á hćđinni starfar svo kaffihúsiđ "Birnukaffi".
Í umferđinni á morgun mćtast međal annars Björn - Hjörvar, Hannes - Sigurbjörn, Guđmundur - Henrik, Sigurđur Páll - Héđinn, Stefán - Gylfi Ţórhallsson og Jón Ţór Bergţórsson - Bragi.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2013 | 20:25
Skákir ţriđju umferđar
Ţórir Benediktsson hefur slegiđ inn skákir annarrar ţriđju umferđar Opna Íslandsmótsins í skák. Ţćr fylgja međ sem viđhengi.
Skákir mótsins er einnig hćgt ađ nálgast á vefsíđu mótsins.
2.6.2013 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Lothar Schmid
Lothar Schmid, yfirdómarans úr einvígi aldarinnar" milli Fischers og Spasskís í Laugardalshöllinni sumariđ 1972, sem lést ţann 18. maí sl. 85 ađ aldri verđur sennilega helst minnst fyrir ţátttöku sína í ţví einvígi. Fjölmiđlar um allan heim hafa einkum stađnćmst viđ ţá frćgu stund skáksögunnar ţegar Spasskí var á leiđ út úr borđtennisherberginu ţar sem ţriđja skákin átti ađ fara fram eftir ađ Bobby hafđi sagt yfirdómaranum ađ halda kjafti. En Schmid hermdi upp á sovéska heimsmeistarann loforđ sem hann gaf áđur en gengiđ var til leiks. Síđan bađ hann Fischer um ađ gćta orđa sinna og Fischer sá ađ sér og bađst afsökunar. Ógreinileg ljósmynd tekin af innanhússmyndakerfi sýnir ţegar Schmid bókstaflega ţrýstir skákmeisturunum niđur í sćti sín og skipar ţeim ađ hefja tafliđ. Lothar Schmid hafđi veriđ yfirdómari í einvígi Fischers viđ Tigran Petrosjan í Buenos Aires haustiđ 1971. Ţar bar helst til tíđinda ađ rafmagniđ fór af skákhöllinni í fyrstu einvígisskákinni stuttu eftir ađ Petrosjan sem hafđi svart snarađi fram leynivopni sínu, kynngimagnađri nýjung í ţekktri stöđu Sikileyjarvarnar. Schmid stöđvađi skákklukkuna en Fischer sat áfram viđ borđiđ. Petrosjan, sem alla tíđ var lafhrćddur viđ okkar mann", mótmćlti. En í stađ ţess ađ víkja frá borđinu bađ Fischer dómarann um ađ setja klukkuna aftur í gang og sat áfram í ţungum ţönkum í myrkrinu. Eftir einvígiđ ´72 fullvissađi Schmid, sem ţá ţegar var frćgur safnari, Guđmund G. Ţórarinsson forseta SÍ um ađ hefđ vćri fyrir ţví ađ ađaldómari í slíkum einvígjum fengi afrifur skorblađanna. Í dag er mótshaldarinn eigandi slíkra blađa og ţá er átt viđ frumritin. Vissulega mátti međ góđum vilja líta á Schmid sem traustan gćslumann ţessara blađa og ţví var vel fagnađ ţegar honum var bođiđ hingađ 30 árum síđar á Málţing um einvígi aldarinnar" í Ţjóđmenningarhúsinu og hann afhenti skorblöđin. Hann kvađ viđskilnađinn viđ ţessi gulnuđu blöđ erfiđan; og hafđi vonast eftir ţakkarbréfi frá forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, sem sótti málţingiđ, en fékk ekki. Skorblöđ Fischers ganga kaupum og sölum en stćrsta safn ţeirra er í einkaeign Bandaríkjamannsins Hanon Russel sem á í fórum sínum nokkur frumrit einvígisins. Í Ţjóđmenningarhúsinu stađnćmdist Lothar Schmid drjúga stund viđ sýningu á bókum og handritum sem Willard Fiske gaf Íslendingum um aldamótin 1900. Ţiđ eruđ heppnir ađ eiga ţessar bćkur," sagđi hann viđ mig. Ţó Schmid hafi um áratuga skeiđ veriđ einn fremsti stórmeistari Ţjóđverja, var taflmennska hans meira eins og áhugamál, hann efnađist vel á rekstri útgáfufyrirtćkis sem fjölskylda hans starfrćkti, Karl Mai forlag. Hann átti stćrsta einkasafn skákbóka sem um getur og er í dag um 50 ţúsund bindi. Međal bóka er eitt tíu eintaka af fyrstu prentuđu skákbókinni, Repetición de Amores y Arte de Ajedrez eftir frćgan spćnskan meistara, Lucena, sem kom út áriđ 1497 og átti allar átta útgáfurnar af kennslubók í skák eftir Pedro Damiano, Questo libro e da imparare giocare a scachi, fyrst útgefin í Róm áriđ 1512. Á málţinginu 2002 nefndi Lothar Schmid töluna 140 ţegar spurningu var beint til hans um fjölda bóka sem ritađar hafa um einvígi Fischers og Spasskís. Síđan hafa nokkrar bćst viđ.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 26. maí 2013.
Spil og leikir | Breytt 26.5.2013 kl. 11:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimm skákmenn eru efstir og jafnir međ fullt hús á Opna Íslandsmótinu í skák en ţriđja umferđ fór fram í gćrkveldi. Ţađ eru stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Henrik Danielsen, alţjóđlegu meistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson og Guđmundur Kjartansson og FIDE-meistarinn Sigurbjörn Björnsson. Enn var nokkuđ um óvćnt úrslit í gćrkveldi og má ţar nefna ađ Óskar Long Einarsson vann landsliđskonuna Hallgerđi Helgu Ţorsteinsdóttur og Hjálmar Sigurvaldason vann Sigríđi Björg Helgadóttur en stigamunurinn í ţessum tilfellum er um 400 skákstig.
Međal annarra óvćnta úrslita má nefna ađ Kristján Eđvarđsson gerđi jafntefli viđ stórmeistarann Stefán Kristjánsson, Tinna Kristín Finnbogadóttir viđ Gylfa Ţórhallsson og Atli Jóhann Leósson viđ Stefán Bergsson Bandaríski lögmađurinn og skákáhugamađurinn Peter Henner hefur einnig stađiđ sig vel og hefur 2,5 vinning en í gćrkveldi vann hann Sćvar Bjarnason en hafđi gert jafntefli viđ Björn Ţorfinnsson fyrr um daginn.
Lenka Ptácníková og Tinna Kristín eru efstar kvenna međ 2 vinninga en mótiđ nú er jafnframt Íslandsmót kvenna. Ţćr mćtast í umferđ dagsins.
Fjórđa umferđ hefst í dag kl. 17. Ţá byrja stigahćstu keppendurnir ađ mćtast innbyrđis. Stórmeistararnir Henrik og Hannes mćtast sem og alţjóđlegu meistararnir Hjörvar og Guđmundur. Sigurbjörn teflir viđ Stefán Kristjánsson.
Eftirtaldar skákir verđa sýndar beint:
- AM Hjörvar Steinn Grétarsson (3) - AM Guđmundur Kjartansson (3)
- SM Henrik Danielsen (3) - SM Hannes Hlífar Stefánsson (3)
- FM Sigurbjörn Björnsson (3) - SM Stefán Kristjánsson (2,5)
- Kristján Eđvarđsson (2,5) - AM Björn Ţorfinnsson (2,5)
- Peter Henner (2,5) - Sigurđur Páll Steindórsson (2,5)
- Mikael Jóhann Karlsson (2) - SM Héđinn Steingrímsson (2)
- AM Bragi Ţorfinnsson (2) - Björgvin S. Guđmundsson (2)
- Michael Grove (2) - FM Guđmundur Gíslason (2)
- FM Ţorsteinn Ţorsteinsson (2) - Oliver Aron Jóhannesson (2)
- KSM Lenka Ptácníková (2) - Tinna Kristín Finnbogadóttir (2)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 1
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 87
- Frá upphafi: 8778273
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar