Fćrsluflokkur: Spil og leikir
7.3.2017 | 18:32
Ný alţjóđleg hrađskákstig
Ný alţjóđleg hrađskákstig komu út 1. mars sl. Hjörvar Steinn Grétarsson (2662) er langstigahćsti hrađskákmađur landsins. Í nćstu sćtum eru Jóhann Hjartarson (2574) og Jón Viktor Gunnarsson (2541).
Topp 20
No. | Name | Tit | mar.17 | Gms | Diff |
1 | Gretarsson, Hjorvar Steinn | GM | 2662 | 0 | 0 |
2 | Hjartarson, Johann | GM | 2574 | 7 | -7 |
3 | Gunnarsson, Jon Viktor | IM | 2541 | 0 | 0 |
4 | Stefansson, Hannes | GM | 2535 | 0 | 0 |
5 | Thorfinnsson, Bjorn | IM | 2506 | 0 | 0 |
6 | Gunnarsson, Arnar | IM | 2503 | 0 | 0 |
7 | Gretarsson, Helgi Ass | GM | 2483 | 7 | 17 |
8 | Kristjansson, Stefan | GM | 2483 | 0 | 0 |
9 | Olafsson, Helgi | GM | 2438 | 0 | 0 |
10 | Thorhallsson, Throstur | GM | 2431 | 7 | -3 |
11 | Thorfinnsson, Bragi | IM | 2420 | 0 | 0 |
12 | Kjartansson, Gudmundur | IM | 2411 | 0 | 0 |
13 | Bjornsson, Sigurbjorn | FM | 2376 | 0 | 0 |
14 | Petursson, Margeir | GM | 2366 | 0 | 0 |
15 | Johannesson, Ingvar Thor | FM | 2353 | 0 | 0 |
16 | Jensson, Einar Hjalti | IM | 2352 | 0 | 0 |
17 | Asbjornsson, Asgeir | FM | 2344 | 0 | 0 |
18 | Arnason, Jon L | GM | 2320 | 0 | 0 |
19 | Gislason, Gudmundur | FM | 2315 | 11 | 49 |
20 | Karlsson, Bjorn-Ivar | FM | 2306 | 0 | 0 |
Nýliđar
Björn Halldórsson (2183) er stigahćsti nýliđi landsins. Hannes Hrólfsson (1792) og Björn Ívarsson Schram (1715) koma nćstir.
No. | Name | Tit | mar.17 | Gms | Diff |
1 | Halldorsson, Bjorn | 2183 | 7 | 2183 | |
2 | Hrolfsson, Hannes | 1792 | 11 | 1792 | |
3 | Ivarsson Schram, Bjorgvin | 1715 | 0 | 1715 | |
4 | Steinbergsson, Hjortur | 1697 | 0 | 1697 | |
5 | Petersen, Emil | 1490 | 0 | 1490 | |
6 | Hardarson, Gylfi Mar | 1423 | 0 | 1423 | |
7 | Bragason, Baldur Mar | 1333 | 0 | 1333 | |
8 | Sigthorsson, Andri Thor | 1318 | 0 | 1318 | |
9 | Bjarnason, Loftur Ingi | 1283 | 0 | 1283 | |
10 | Briem, Kjartan | 1263 | 0 | 1263 | |
11 | Johannsson, Bjorn Kristinn | 1261 | 0 | 1261 | |
12 | Agnarsson, Bjorn | 1251 | 8 | 1251 | |
13 | Claesson, Karl Andersson | 1147 | 9 | 1147 | |
14 | Kjartansson, Andres Mar | 1093 | 7 | 1093 |
Mestu hćkkanir
Dawid Kolka (110( hćkkar mest frá janúar-listanum. Í nćstu sćtum eru tvibbarnir Bárđur Örn og Björn Hólm (63) Birkissynir.
No. | Name | Tit | mar.17 | Gms | Diff |
1 | Kolka, Dawid | 2021 | 17 | 110 | |
2 | Birkisson, Bardur Orn | 2081 | 18 | 63 | |
3 | Birkisson, Bjorn Holm | 1982 | 17 | 63 | |
4 | Kristbergsson, Bjorgvin | 1311 | 24 | 55 | |
5 | Gislason, Gudmundur | FM | 2315 | 11 | 49 |
6 | Sigurdsson, Birkir Karl | 1914 | 9 | 47 | |
7 | Hauksson, Hordur Aron | 1857 | 17 | 46 | |
8 | Kristinsson, Ogmundur | 2020 | 7 | 36 | |
9 | Halldorsson, Kristjan | 1769 | 7 | 34 | |
10 | Jonatansson, Sigurdur Freyr | 1607 | 14 | 34 |
Reiknuđ hrađskámót (mars og febrúar)
- Hrađskákmót Reykjavíkur
- Hrađkvöld Hugins
- Nóa Síríus-hrađskákmótiđ
- Atkvöld Hugins (2 frá febrúar)
7.3.2017 | 14:56
Skákţing Norđlendinga fer fram 24.-26. mars á Sauđárkróki
Skákţing Norđlendinga 2017 verđur haldiđ 24.-26. mars, á Kaffi Krók, á Sauđárkróki. Mótiđ hefst kl. 20.00 á föstudagskvöldiđ 24. mars, en ţá verđa telfdar 4 umferđir af 25 mínútna atskákum. 5. umferđ kl. 11.00 og 6 umferđ kl. 17.00 laugardaginn 25. mars og 7. umferđ kl. 11.00 sunnudaginn 26. mars, en ţá verđur umhugsunartíminn 90 mínútur á skákina + 30 sek. á hvern leik. Ađ 7. umf. lokinni verđur Hrađskákmót Norđlendinga haldiđ og hefst kl. 14.30 eđa síđar. Skákmeistari Norđlendinga getur ađeins orđiđ sá sem á lögheimili á Norđurlandi, en mótiđ er öllum opiđ. Skákdómari verđur Ingibjörg Edda Birgisdóttir.
Verđlaun eru sem hér segir 1. sćti 45.000 kr. 2. sćti 30.000 3. sćti 20.00 4. sćti 15.000 5. sćti 10.000 Aukaverđlaun fćr efsti skákmađur međ minna en 1800 stig, 10.000 kr. Verđi menn jafnir ađ vinningum skiftast verđlaun jafnt milli ţeirra.
Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra kapp- og atskákstiga.
Skráning á skák.is (skak.blog.is) og einnig er hćgt ađ skrá sig á jhaym@simnet eđa í síma 865 3827, ţar sem nánari upplýsingar gćti líka veriđ mögulegt ađ fá. Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
6.3.2017 | 14:40
Myndir frá lokaathöfn Íslandsmóts skákfélaga
Lokaathöfn Íslandsmóts skákfélaga fór fram ađ móti loknu í Kringlukránni. Hallfríđur Sigurđardóttir mćtti ţar međ myndavélina og tók myndir af verđlaunahöfunum. Ţćr fylgja hér međ:
Íslandsmeistararnir
Silfurhafar TR
Bronshafar Fjölnis
2. deild
Sigurvegarnir í TG
Silfurhafar SA-b (eđa silfurhafinn?)
Bronshafar Hugins-C
3. deild
Siguvegarnir Hrókar alls fagnađar
Silfurhafar frá Selfossi
4. deild
Sigurvegarnir b-sveit Víkinganna
Silfurhafarnir frá Sauđárkróki
Ingvar Ţór Jóhannesson var kallađur upp í tilefni fertugsafmćlis síns og sungiđ fyrir meistarann. Hann fékk skákbókaúttekt frá Skáksambandi Íslands í afmćlisgjöf.
Áfangaveiđarnir ţrír voru kallađir upp og fengu vćnt klapp frá viđstöddum.
Bragi Ţorfinnsson - sem náđi sínum öđrum stórmeistaraáfanga
Davíđ Kjartansson sem náđi sínum öđrum áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli
Norski KR-ingurinn Lasse Řstebř Lřvik náđi sínum lokaáfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli jafnframt sem hann fór yfir 2400 skákstig.
6.3.2017 | 13:44
Íslandsmót barnaskólasveita - 4.-7. bekkur fer fram á laugardaginn
Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkkur) fer fram laugardaginn 11. mars í Grindavík.
Teflt verđur í Grunnskólanum ađ Ásabraut 2.
Mótiđ hefst klukkan 12:00 en liđsstjórar ţurfa ađ stađfesta mćtingu sinna sveita fyrir 11:40.
Tefldar verđa sjö til níu umferđir (eftir fjölda sveita) međ 10 mínútna umhugsunartíma og tveimur viđbótarsekúndum á hvern leik. Mótinu lýkur um seinni partinn.
Veitt verđa verđlaun fyrir ţrjár efstu sveitir, bestu b-e sveitir og bestu landsbyggđarsveitina. Landsbyggđarsveit skilgreinist sem sveit sem er ekki af höfuđborgarsvćđinu. Sveitir frá Suđurnesjum og Suđurlandi eru landsbyggđarsveitir.
Tvö efstu sćtin gefa keppnisrétt á Norđurlandamóti barnaskólasveita sem fer fram á Íslandi í haust.
Liđsmenn sveita skulu vera í 4.-7. bekk en í a-sveit hvers skóla er ţó heimilt ađ notast viđ yngri nemendur. Hverri sveit skal fylgja liđsstjóri.
Ţátttökugjald er 7.500 kr. á sveit en hámark 15.000 kr. á skóla. Gjald verđur innheimt međ reikningi ađ móti loknu.
Veitingasala verđur á stađnum.
Mótshaldarar eru Skákakademía Reykjavíkur og Skáknefnd UMFG.
Ef spurningar vakna má hringja í Stefán 863-7562 eđa Siguringa 691-3007.
Skráning sveita á Skák.is (guli kassinn efst)
Skráningarfrestur er út fimmtudaginn 9. mars.
Upplýsingar um ţegar skráđar sveitir má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Lokqdagur Íslandsmóts skákfélaga er einn sá mest spennandi í sögu mótsins. Huginn virtist í afar góđum málum fyrir lokadaginn en forystan var 2 vinningar á Taflfélag Reykjavíkur og félagiđ átti "auđveldari" andstćđinga eftir auk ţess sem ţađ dugđi Hugin ađ vera jafnir ađ vinningum og TR ţar sem sigur vannst í innbyrđis viđureign félaganna í fyrri hlutanum.
En ţađ breyttist fljótt. Eins og fram kom í frétt í gćr í Skák.is gerđi Huginn ađeins 4-4 jafntefli viđ Skákdeild KR í fyrri umferđ gćrdagsins sem verđa ađ teljast ein allra óvćntustu úrslit í sögu keppninnar og á sama tíma unnu TR-ingar Bolvíkinga 5˝-2˝. Munurinn fyrir lokaumferđina var ţví ađeins hálfur vinningur Hugin í vil
TR mćtti Skákdeild Fjölnis og Huginn b-sveit TR. Enn virtist ţví stađa Hugins vera töluvert vćnlegri ţví á pappírnum er Fjölnir mun sterkari en b-sveit TR sem var neđst. Engu ađ síđur var TR-sveitin langt ţví ađ vera veik međ Vigni Vatnar og tvíburana Bárđ Örn og Björn Hólm á neđstu borđunum ţremur. Enda reyndust ungu mennirnir seigir og tóku 1˝ vinning.
Viđ upphaf umferđarinnar kom svo í ljós ađ liđsstjóri Fjölnis, Helgi Árnason, hvíldi sinn sterkasta mann, Héđin Steingrímsson í lokaskákinni gegn TR. Styrkleikamunurinn á milli TR-b og Fjölni ţar međ ađ engu orđin.
Fljótt var samiđ á fyrsta borđi hjá TR og Fjölni en ţar mćttust Bragi Ţorfinnsson og Davíđ Kjartansson. Ţar menn höfđu ţeir félagarnir báđir tryggt sér áfanga. Bragi fékk sinn annan áfanga ađ stórmeistaratitli og vantar ađeins einn til ađ fá titilinn. Davíđ tók sinn annan áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli. Auk ţess tók norski KR-ingurinn Lasse Lovik sinn lokaáfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli.
Á ýmsu gekk í lokaumferđinni og sveifluđust menn fram og aftur hvort TR eđa Huginn vćri ađ taka titilinn. Til ađ byrja međ leit ţetta afar vel út fyrir TR. Einar Hjalti (Hugin) og Dađi Ómarsson (TR-b) gerđu stutt jafntefli og Vignir Vatnar vann peđ gegn Magnúsi Erni (Hugin) og Helgi Áss Grétarsson (Hugin) náđi ekkert ađ komast áfram gegn Ţorvarđi Fannari (TR-b). Aman Hambledon (TR) virtist líka hafa yfirburđastöđu á móti Degi Ragnarssyni (Fjölni). Björgvin Víglundsson (TR-b) hafđi einnig mjög skemmtilega stöđu gegn Hannesi Hlífari (Hugin).
En hlutirnir breyttust. Magnús náđi ađ jafna tafliđ og halda jafntefli og Hambleton lék af sér manni og virist samt hafa jafnteflissénsa. Hannes náđi ađ trikka Björgvin og vinna. Ţá gerđist ţađ ađ Björn Hólm (TR-b) snéri á Sigurđ Dađa (Hugin) og TR allt í einu međ mjög vćnlega sigurmöguleika. Stađan hjá Ingvari Ţór (Hugin) og Bárđi Erni (TR), var mjög óljós og tími lítill hjá báđum. Ţetta var orđin eina skákin eftir hjá Hugin og ljóst ađ a.m.k. 3 vinningar myndu falla útbyrđis hjá félaginu. Stóra spurningin var ţví hversu marga vinninga TR-inga myndu missa niđur í lokaskákunum. Töpuđu ţeir ađeins tveimur vinningum yrđi titilinn ţeirra.
Ţađ voru Rimaskóladrengirnir og Fjölnismennirnir, Dagur Ragnarsson og Oliver Aron Jóhannesson, sem sigldu titlinum í hús fyrir Hugin ţegar ţeir unnu Hambledon og Björn Ţorfinnsson (TR). Oliver vann Björn međ glćsilegri fórn. Auk ţess sem Sigurbjörn Björnsson (Fjölni) tryggđi sér jafntefli gegn Guđmundi Kjartanssyni (TR). Allt í einu var ljóst ađ úrslitin í skák Ingvars og Bárđar Arnar skipti ekki máli ţar sem sveitirnar yrđu jafnar ađ vinningum ţótt Ingvar myndi tapa. Ingvar hélt hins vegar uppá fertugsafmćliđ međ sigri. Huginn vann ţví titilinn međ einum vinningi.
Skákdeild Fjölnis varđ í ţriđja sćti, Víkingklúbburinn í ţví fjórđa og Bolvíkingar í ţví fimmta.
Fallbaráttan var ţvílíkt hörđ. Ţar áttu KR-ingar stórkostlegan endasprett. Ekki nóg međ jafntefliđ gegn Íslandmeisturunum heldur unnu ţeir Akureyringa í lokaumferđinni og björguđu sér frá falli međ hálfum vinningi. Falliđ varđ Reyknesinga og b-sveitar TR.
Einstaklingsúrslit lokaumferđirnar má nálgast á Chess-Results.
Lokastađan:
Sjá nánar á Chess-Results.
Sveit Íslandsmeistara Hugins í fyrri og seinni hluta skipuđu: Gawain Jones, Robin Van Kampen, Helgi Ólafsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Ţröstur Ţórhallsson, Helgi Áss Grétarsson, Einar Hjalti Jensson, Magnús Örn Úlfarsson, Ingvar Ţór Jóhannesson, Sigurđur Dađi Sigfússon, Kristján Guđmundsson og Ţorsteinn Ţorsteinsson. Liđsstjórar voru Ţorsteinn og Jón Ţorvaldsson.
Hjörvar var bestur Huginsmanna en hann fékk 8 vinninga í 9 skákum. Ingvar hlaut 7˝ vinning.
2. deild
Taflfélag Garđabćjar vann öruggan sigur í 2. deild. B-sveit Skákfélags Akureyrar varđ í öđru sćti. Ţessar sveitir taka sćti TR-b og Reyknesinga í deild ţerra bestu ađ ári.
Skákfélag Íslands og B-sveit Fjölnis féllu niđur í 3. deild
Lokastađan:
Nánar á Chess-Results.
3. deild
Hrókar alls fagnađar fögnuđu sigri í deildinni - unnu allar sínar viđureignir. Skákfélag Selfoss og nágrennis varđ í öđru sćti en ţessar sveitir höfđu mikla yfirburđi. Ţćr taka sćti í 2. deild ađ ári. Skákfélag Siglufjarđar varđ í ţriđja sćti.
Ungmennasamband Borgarfjarđar og b-sveitir Taflfélags Garđabćjar og KR féllu niđur í fjórđu deild.
Lokastađan:
Nánar á Chess-Results.
4. deild
B-sveit Víkingaklúbbsins hafđi mikla yfirburđi í 4. deild. Skákfélag Sauđárkróks og Taflfélag Vestmannaeyja urđu í 2.-3. sćti og fylgja Víkingunum uppí 3. deild.
Nánar á Chess-Results.
Myndir vćntanlegar!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2017 | 21:10
Huginn Íslandsmeistari skákfélaga
Skákfélagiđ Huginn er Íslandsmeistari skákfélaga. Ţađ er ljóst ţó enn sé nokkrum skákum ólokiđ. Lokaumferđin var ţvílíkt spennandi og réđust úrslitin ekki fyrr en í lokaskákunum. Skákdedild Fjölnis varđ í ţriđja sćti. Spennan var ekki minni í fallbaráttunni en ţar björguđu KR-ingar sér frá falli međ frábćrum endaspretti. Reyknesingar og b-sveit TR féllu niđur í 2. deild.
Lokastađan á Chess-Results.
2. deild
Taflfélag Garđabćjar vann ađra deildina. B-sveit Skákfélag Akureyrar varđ í öđru sćti og fylgir ţeim upp í efstu deild.
Nánar á Chess-Results.
3. deild
Hrókar alls fagnađar unnu deildina. Selfyssingar fylgja ţeim upp í 2. deild.
Nánar á Chess-Results.
4. deild
B-sveit Víkingaklúbbsins vann öruggan sigur. Skákfélag Sauđárkróks og Taflfélag Vestmannaeyja fylgja ţeim upp í 3. deild.
Nánar á Chess-Results.
Nánari fréttir síđar..
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2017 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Sókndjarfir fótgönguliđar
Á hinu árlega Norđurlandamóti ungmenna sem fram fór í Drammen í Noregi um síđustu helgi tefldu Íslendingar fram ágćtu liđi í fimm aldursflokkum frá 10 til 19 ára aldurs. Viđ vorum međ ţrjá nýliđa í hópnum en einnig stigahćsta keppandann, Vigni Vatnar Stefánsson, sem ţurfti ţví miđur ađ kljást viđ slćma hálsbólgu međan á keppni stóđ.
Ađrir liđsmenn Íslands voru Dagur Ragnarsson, Oliver Aron Jóhannesson, Hilmir Freyr Heimisson, Bárđur Birkisson, Nansý Davíđsdóttir, Óskar Víkingur Davíđsson, Robert Luu, Stefán Orri Davíđsson og Gunnar Erik Guđmundsson, en tveir síđastnefndu voru nýliđar. Fararstjórar og ţjálfarar voru undirritađur og Guđmundur Kjartansson.
Á NM ungmenna er keppt um verđlaun í fimm aldursflokkum og mótiđ er einnig keppni allra sex Norđurlandaţjóđanna ţar sem samanlagđur vinningafjöldi rćđur niđurstöđunni. Ţessi keppni hefur fengiđ síaukiđ vćgi undanfarin ár. Fyrir síđustu unferđ voru Íslendingar međ 1 ˝ vinnings forskot á gestina, Norđmenn, og međ góđa stöđu međ tilliti til sigurs í tveim flokkum. En í lokaumferđinni var eins og hin stífa dagskrá, tvćr kappskákir á dag, kćmi loksins niđur á einbeitninni. Dagur Ragnarsson, Oliver Aron og Óskar Víkingur voru allir međ unnar stöđur en uppskeran var rýr, ađeins ˝ vinningur úr ţessum ţrem mikilvćgu skákum og til ađ bćta gráu ofan á svart ţá sigldu Norđmenn fram úr okkur í 6-landa keppninni ţar sem íslenska liđiđ endađi í 2. sćti, Svíar urđu í 3. sćti, Finnar og Danir í 5. sćti og Fćreyingar ráku lestina. Oliver Aron fékk silfur í sínum flokki og Robert Luu brons. Ţeir hlutu báđir 4 vinninga en Dagur, Vignir, Óskar Víkingur og Bárđur fengu allir 3 ˝ vinning.
Framkvćmd norsku skipuleggjendanna var međ miklum ágćtum.
Á mótinu voru tefldar fjölmargar skemmtilegar skákir en skák Dags í 5. umferđ var án efa sú fallegasta. Ţađ verđur aldrei nógsamlega brýnt fyrir ungum skákmönnum ađ peđ eru líka sóknarmenn; d- og h-peđ hvíts ruddu brautina í eftirfarandi glćsiskák:
NM ungmenna 2017:
Dagur Ragnarsson Mikkel Jakobsen
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. Bg5 h6 6. Bxf6 Dxf6 7. e3 Rd7 8. Bd3 g6 9. O-O Bg7 10. Hc1 dxc4 11. Bxc4 O-O 12. He1 Hd8 13. e4 e5 14. d5 Rb6 15. Bb3 Be6?!
Óvenjulegur leikur í ţekktri byrjun sem býđur uppá ţann athyglisverđa möguleika ađ gefa drottninguna fyrir hrók og léttan. En Dagur ákvađ ađ bíđa átekta.
16. He3 cxd5 17. exd5 Df5 18. Re1 e4?!
Vafasamur leikur. Og nú voru öll bestu skilyrđi fyrir hendi til ađ láta drottninguna af hendi.
19. dxe6! Hxd1 20. exf7+ Kh7 21. Hxd1 Hc8 22. Rxe4 Rc4 23. He2 Db5 24. Hc2!
Óţćgileg leppun eftir c-línunni.
24. De5 25. Bxc4 Dxe4 26. Bd3! Dg4 27. Hxc8 Dxc8
28. Dxd1 29. Kf1 dugar skammt.
28. h4!
Loftar út og hótar 29. h5.
28. ... h5 29. Rf3 Bxb2?
Ţetta peđ er eitrađ. Hann gat enn barist međ 29. Bf6 sem hvítur svarar best međ 30. b3 ásamt 31. Bc4. Ađ endingu mun f7-peđiđ alltaf ráđa úrslitum.
30. Rg5+ Kg7 31. He1! Ba3 32. He6! Dc1+ 33. Kh2 Df4+ 34. g3 Dxf2+ 35. Kh3
Vel reiknađ, svartur á ekki fleiri skákir.
35. Kf8 36. He8+ Kg7 37. Hg8+
- og svartur gafst upp. Eftir 37. ... Kf6 vinnur 38. f8(D)+ eđa 38. Re4+ Kxf7 39. Bc4+ og síđan fellur drottningin.
------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eftir Helga Ólafsson birtast u.ţ.b. viku síđar á Skák.is.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 25. febrúar 2017
Spil og leikir | Breytt 27.2.2017 kl. 10:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2017 | 15:41
Huginn međ hálfs vinnings forskot fyrir lokaumferđina - afar óvćnt úrslit KR gegn Hugin
Ein óvćntustu úrslit í sögu Íslandsmóts skákfélaga urđu í áttundu og nćstsíđustu umferđ Íslandsmóts skákfélaga rétt í ţessu ţegar Skákdeild KR gerđi 4-4 jafntefli gegn Íslandsmeisturum Hugins. Á sama tíma vann Taflfélag Reykjavíkur 5˝-2˝ sigur á Skákfélagi Akureyrar. Munurinn á sveitunum er ţví ađeins hálfur vinningur fyrir lokaumferđina sem hefst kl. 17. Búast má viđ gríđarlegri spennu
Í lokaumferđinni teflir Hugin viđ b-sveit TR og TR viđ Fjölni.
Stađan:
2. deild
Taflfélag Garđabćjar hefur örugga forystu í annarri deild og hafa nánast tryggt sér sćti í efstu deild nćsta keppnistímabil. B-sveit Akureyrar er í öđru sćti og virđast einnig vera á leiđinni upp. C-sveit Hugins er í ţriđja sćti.
Nánar á Chess-Results.
3. deild
Hrókar alls fagnađar eru efstir og hafa tryggt sér sćti í 2. deild. Skákfélag Selfoss er í öđru sćti og virđast líklegir til ađ fylgja ţeim upp. Skákfélag Siglufjarđar er í ţriđja sćti.
Nánar á Chess-Results.
4. deild
B-sveit Víkingaklúbbsins hefur tryggt sér sigur í deildinni og sćti í 3. deild. Skákfélag Sauđárkróks og Taflfélag Vestmannaeyja eru í 2.-3. sćti.
Nánar á Chess-Results.
4.3.2017 | 02:00
Huginn jók forystuna í tvo vinninga - spennandi lokadagur framundan
Umferđ kvöldsins var afar spennandi á Íslandsmóti skákfélaga. Fyrir hana höfđu Huginsmenn eins vinnings forskot á Taflfélag Reykjavíkur. Huginn mćtti Víkingaklúbbnum en Taflfélagsmenn öttu kappi viđ Skákfélag Akureyrar. Báđir viđureignirnar voru vćgst sagt afar spennandi. Úrslitin í viđureign TR-inga og SA-manna réđust mun fyrr en ţar vann TR 5-3 sigur. Óvćnt úrslit urđu ţegar Jón Kristinn Ţorgeirsson vann alţjóđlega meistarann Arnar Gunnarsson á glćsilegan hátt eftir margskonar fórnir og Arnar Ţorsteinsson hafđi sigur á stórmeistaranum Stefán Kristjánssyni.
Ţegar úrslitin í viđureign TR og SA voru ljós var enn allmörgum skákum ólokiđ í viđureign Hugins og Víkinganna og úrslit engan vegin ljós. Huginsmenn voru seigir ađ draga inn vinninganna á lokasprettinum úr misgóđum stöđum og svo fór ađ ţeir unnu 6-2 sigur og juku ţar međ forystuna á TR úr einum vinningi í tvo vinninga fyrir lokaátökin.
Ţessar sveitir hafa mikla yfirburđi en munurinn á öđru og ţriđja sćti er 8 vinningar. Fjölnismenn sem unnu b-sveit TR 5˝-2˝ eru ţriđju. Bolvíkingar eru fjórđu ţrátt fyrir 3-5 tap gegn b-sveit Hugins sem tókst međ sigri ađ fjarlćgja sig nokkuđ frá fallbaráttunni.
Ţađ stefnir í afar spennandi fallbaráttu en ađeins munar tveimur vinningum á sjöunda og tíunda sćti en tvćr neđstu sveitirnar falla.
Lokaumferđirnar tvćr eru tefldar í dag (laugardag). Sú fyrri hefst kl. 11 og sú síđari kl. 17.
Stađan:
2. deild
Taflfélag Garđabćjar er efst í 2. deild. B-sveit Skákfélag Akureyrar er í öđru sćti og Vinaskákfélagiđ í ţví ţriđja. Afar mjótt er á munum í deildinni bćđi á toppi og botni. Tvö efstu liđin vinna sig upp og tvö neđstu falla.
3. deild
Hrókar alls fagnađar eru efstir í deildinni međ fullt hús stiga. Skákfélag Selfoss og nágrennis er í öđru sćti og c-sveit Skákfélags Akureyrar í ţví ţriđja.
Röđ efstu liđa:
4. deild
B-sveit Víkingaklúbbsins er efst međ fullt hús stiga. E-sveit TR er í öđru sćti og Skákfélag Sauđárkróks og Taflfélag Vestmannaeyja eru í 3.-4. sćti. Ţrjú efstu liđin ávinna sér keppnisrétt í 3. deild á nćsta keppnistímabili.
Röđ efstu sveita:
3.3.2017 | 00:31
Huginn međ eins vinnings forskot á TR
Taflfélag Reykjavíkur minnkađi forystu Skákfélagsins Hugins niđur í ađeins einn vinning í sjöttu umferđ Íslandsmóts skákfélaga í kvöld. TR vann ţá 7˝-˝ sigur á Skákdeild KR. Á sama tíma töpuđu Huginsmenn niđur 2 vinningum á móti Skákfélagi Reykjanesbćjar ţar sem Haukur Bergmann gerđi sér lítiđ fyrir og vann alţjóđlega meistarann Einar Hjalta Jensson ţrátt fyrir mikinn stigamun.
Skákdeild Fjölnis er ţriđja sćti eftir sigur á Víkingaklúbbnum međ minnsta mun 4˝-3˝. Taflfélag Bolungarvíkur er í fjórđa sćti ásamt Víkingaklúbbnum en ţeir unnu b-sveit TR 5˝-˝. B-sveit Hugins vann Skákfélag Akureyrar 5-3 og er í sjötta sćti.
Einstaklingsúrslit má finna hér.
Gríđarleg spennandi fallbarátta er framundan en ađeins munar 3 vinningum á sjötta sćtinu og fallsćti.
Stađan:
Sjöunda umferđ fer fram á morgun. Ţá teflir Hugin viđ Víkingaklúbbinn og TR viđ Skákfélag Akureyrar.
Mótiđ á Chess-Results.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 5
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 100
- Frá upphafi: 8778309
Annađ
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 75
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar