Færsluflokkur: Íslendingar erlendis
11.6.2010 | 21:09
Hjörvar vann í sjöundu umferð í Búdapest
Hjörvar Steinn Grétarsson (2394) vann belgíska FIDE-meistarann Jan Rooze (2338) í sjöundu umferð AM-flokks First Saturday sem fram fór í dag í Búdapest. Hjörvar hefur 4½ vinning og er í 2.-3. sæti á mótinu. Í áttundu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hjörvar við þýska FIDE-meistarann Juergen Brustkern (2256).
Ungverski alþjóðlegi meistarinn Adam Szeberenyi (2308) er efstur með 5 vinninga.
First Saturday-mótið fer fram á hverjum mánuði í Búdapest og eins og nafnið ber með sér hefst það fyrsta laugardag hvers mánaðar. Í AM-flokki tefla 12 skákmenn og þar af 4 alþjóðlegir meistarar og eru meðalstig 2266 skákstig. Hjörvar er stigahæstur keppenda. Til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 8,5 vinning.Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2010 | 23:02
Hjörvar tapaði í fimmtu umferð í Búdapest
Hjörvar Steinn Grétarsson (2394) tapaði fyrir ungverska alþjóðlega meistarann Adam Szeberenyi (2308) í 5. umferð AM-flokks First Saturday-mótsins sem fram fór í dag. Hjörvar hefur 3,5 vinning og er efstur ásamt þremur öðrum. Í sjöttu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hjörvar við ungverska alþjóðlega meistarann Bela Lengyel (2266)
7.6.2010 | 21:57
Hjörvar sigraði í þriðju umferð í Búdapest
Hjörvar Steinn Grétarsson (2394) byrjar afskaplega vel í AM-flokki First Saturday-mótsins en í þriðju umferð sem fram fór í dag sigraði hann unga Rússa, Mikhail A. Antipov (2237) að nafni, sem er aðeins 13 ára. Hjörvar hefur einn keppenda fullt hús. Í fjórðu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hjörvar við bandaríska FIDE-meistarann Takashi Iwamoto (2268).
Skákir Hjörvars úr 1. og 2. umferð fylgja með fréttinni.
First Saturday-mótið fer fram á hverjum mánuði í Búdapest og eins og nafnið ber með sér hefst það fyrsta laugardag hvers mánaðar. Í AM-flokki tefla 12 skákmenn og þar af 4 alþjóðlegir meistarar og eru meðalstig 2266 skákstig. Hjörvar er stigahæstur keppenda. Til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 8,5 vinning.
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2010 | 19:59
Héðinn meðal sigurvegara á Rhein-Main-Open
Héðinn Steingrímsson (2550) varð efstur á ásamt þremur öðrum skákmönnum á alþjóðlegu skákmóti í Bad Homburg í Þýskalandi sem lauk í dag. Héðinn hlaut 6 vinninga í sjö skákum. Í lokaumferðinni lagði hann þýska FIDE-meistarann Felix Klein (2277).
Efstir ásamt Héðni urðu þýsku stórmeistarnir Igor Khenkin (2627) og Gerald Hertneck (2521) og svo þýski FIDE-meistarinn Ryhor Isserman (2291).
Héðinn stendur í stað stigalega fyrir frammistöðu sína á mótinu.
Alls tóku 214 skákmenn þátt í mótinu og þar af þrír stórmeistarar. Héðinn var þriðji stigahæsti keppandi mótsins.
Heimasíða mótsins
Íslendingar erlendis | Breytt 7.6.2010 kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2010 | 19:51
Hjörvar sigraði í 2. umferð í Búdapest
Hjörvar Steinn Grétarsson (2394) sigraði ungverska alþjóðlega meistarann Emil Szalanczy (2277) í 2. umferð AM-flokks First Saturday sem fram fór í Búdapest í dag. Hjörvar hefur byrjað vel og er efstur með fullt hús. Í þriðju umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hjörvar við Rússann Mkhail A. Antipov (2237), sem er aðeins 13 ára gamall (fæddur 1997).
6.6.2010 | 09:31
Hjörvar vann í fyrstu umferð í Búdapest
Hjörvar Steinn Grétarsson (2394) vann Wales-arann Tim Kett (2223) í fyrstu um AM-flokks First Saturday-mótsins sem hófst í gær í Búdapest í Ungverjalandi. Í 2. umferð, sem fram fer í dag teflir Hjörvar við ungverska alþjóðlega meistarann Emil Szalanczy (2277).
First Saturday-mótið fer fram á hverjum mánuði í Búdapest og eins og nafnið ber með sér hefst það fyrsta laugardag hvers mánaðar. Í AM-flokki tefla 12 skákmenn og þar af 4 alþjóðlegir meistarar og eru meðalstig 2287 skákstig. Hjörvar er stigahæstur keppenda. Til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 8,5 vinning.
5.6.2010 | 21:07
Héðinn vann og er í 2.-8. sæti fyrir lokaumferðina í Bad Homburg

Héðinn Steingrímsson (2550) vann þýska FIDE-meistarann Hagen Poetsch (2392) í sjöttu og næstsíðustu umferð Rhein-Main-Open sem fram fór í Bad Homburg í Þýskalandi í dag. Héðinn hefur 5 vinninga og er í 2.-8. sæti. Í lokaumferðinni, sem fram fer í fyrramálið, teflir Héðinn við þýska FIDE-meistarann Felix Klein (2277). Efstur með 5,5 vinning er þýski stórmeistarinn Igor Khenkin (2627)
Alls taka 214 skákmenn þátt í mótinu og þar af þrír stórmeistarar. Héðinn er þriðji stigahæsti keppandi mótsins.
5.6.2010 | 14:16
Héðinn vann í fimmtu umferð

Héðinn vann Þjóðverjann Ulrich Von Auer (2111) í fimmtu umferð Rhein-Main-Open sem fram fór í morgun í Bad Homborg í Þýskalandi. Héðinn hefur 4 vinninga og er í 4.-24. sæti. Í sjöttu og næstsíðustu umferð, sem frem fer síðar í í dag teflir Héðinn við þýska FIDE-meistarann Hagen Poetsch (2392). Efstur með fullt hús, er þýski stórmeistarinn Igor Khenkin (2627).
Alls taka 214 skákmenn þátt í mótinu og þar af þrír stórmeistarar. Héðinn er þriðji stigahæsti keppandi mótsins.
Heimasíða mótsins: http://www.rhein-main-open.de/chronik/2010/rmo_frameset.htm
5.6.2010 | 09:20
Héðinn tapaði í fjórðu umferð
Héðinn tapaði fyrir Þjóðverjanum Thorsten Overbeck (2292) í fjórðu umferð Rhein-Main-Open sem fram fór í gær í Bad Homborg í Þýskalandi. Héðinn hefur 3 vinninga og er í 13.-50. sæti. Tvær umferðir eru tefldar í dag og í þeirri fyrri mætir Héðinn Þjóðverjanum Ulrich Von Auer (2111).
3.6.2010 | 22:00
Héðinn sigraði í þriðju umferð
Héðinn sigraði Þjóðverjann Markus Müller (2161) í þriðju umferð Rhein-Main-Open sem fram fór í dag í Bad Homborg í Þýskalandi. Héðinn er meðal átta keppenda sem hafa fullt hús. Í fjórðu umferð, sem fram á morgun, teflir Héðinn við Þjóðverjann Thorsten Overbeck (2292).
Alls taka 214 skákmenn þátt í mótinu og þar af þrír stórmeistarar. Héðinn er þriðji stigahæsti keppandi mótsins.
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 9
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 102
- Frá upphafi: 8778400
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 86
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar