Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, nóvember 2008

Sigur gegn fötluđum

DSC03019Íslenska liđiđ í opnum flokki sigrađi liđ fatlađra 2˝-1˝ í níundu umferđ Ólympíuskákmótsins, sem fram fór í dag.  Héđinn Steingrímsson og Stefán Kristjánsson sigruđu, en sá síđarnefndi hefur fengiđ  3˝ í síđustu fjórum skákum.  Hannes Hlífar Stefánsson gerđi jafntefli en Henrik Danielsen tapađi.  Eins og er stađan 2-1 fyrir kvennaliđinu. 

Úrslit níundu umferđar:

 

Bo.76IPC  IPCA (IPCA)Rtg-45ISL  Iceland (ISL)Rtg1˝-2˝
72.1IMObodchuk Andrei2434-GMStefansson Hannes2575˝-˝
72.2IMMikheev Stanislav2329-GMSteingrimsson Hedinn25400-1
72.3IMYarmonov Igor2322-GMDanielsen Henrik24921-0
72.4IMBondarets Vadim2345-IMKristjansson Stefan24740-1

 


Dagur međ stórmeistaraáfanga!

Dagur Arngrímsson ađ tafli í Búdapest

Dagur Arngrímsson (2392) gerđi jafntefli kúbverska alţjóđlega meistarann Fidel Corrales Jimenez (2552) í níundu og síđustu umferđ alţjóđlegs móts í Harkany í Ungverjalandi.  Međ ţví tryggđi Dagur sér sinn fyrsta áfanga ađ stórmeistaratitli!  

Dagur hefur reyndar teflt ađeins viđ tvo stórmeistara en andstćđingur hans í lokaumferđinni verđur útefndur vćntanlega stórmeistara í Dresden nćstu daga svo formsatriđin ćttu vonandi ekki vera til trafala!

Ritstjóri vill nota tćkifćriđ og óska Degi kćrlega til hamingju!  Reyndar eru ţađ ánćgjulegt ađ sjá ţennan stóra hóp ungra skákmanna vera ađ tefla svo mikiđ erlendis.  Skákmenn sem eru líklegir til ađ vera jafnvel í nćsta landsliđshópi landans! 

Nánari fréttir verđa sagđar af mótinu síđar í dag.

Alls tekur 121 skákmađur ţátt í a-flokknum og ţar á međal sjö stórmeistarar.  

Heimasíđa mótsins


Ól í skák: Viđureignir dagsins

Ţá liggja fyrir liđ dagsins.  Hjá strákunum hvílir Ţröstur Ţórhallsson  en hjá stelpunum hvílir Guđlaug Ţorsteinsdóttir.  Viđureignirnar hófust kl. 14 en hćgt er ná í tengil hjá neđar á síđunni til ađ fylgjast međ ţeim.   

Strákarnir mćta fötluđum en stelpurnar tefla viđ Nýja Sjáland.  Báđar sveitirnar tefla niđur fyrir sigur, sérstaklega strákarnir, svo vonandi náum viđ góđum úrslitum í dag.

Íslenska liđiđ í opnum flokki er í 63. sćti og í fimmta sćti norđurlandanna.  Stađa efstu liđa og norđurlandanna:

  • 1. Armenía 15 stig
  • 2. Ísrael 14 stig
  • 3. Rússland 13 stig
  • 4. Úkraína 13 stig
  • 18. Noregur 11 stig
  • 21. Svíţjóđ 11 stig
  • 40. Danmörk 10 stig
  • 62. Finnland 8 stig
  • 63. Ísland 8 stig
  • 74. Fćreyjar 8 stig.

Íslenska liđiđ í kvennaflokki er í  70. sćti og í fjórđa sćti norđurlandanna.  Stađa efstu liđa og norđurlandanna:

  • 1. Kína 14 stig
  • 2. Bandaríkin 13 stig
  • 3. Úkraína 13 stig
  • 4. Pólland 13 stig
  • 5. Serbía 13 stig
  • 30. Svíţjóđ 10 stig
  • 52. Noregur 8 stig
  • 64. Danmörk  8 stig
  • 70. Íslands 7 stig
  • 71. Finnland 7 stig

 

 Viđureignir dagsins:

Bo.76IPC  IPCA (IPCA)Rtg-45ISL  Iceland (ISL)Rtg0 : 0
72.1IMObodchuk Andrei2434-GMStefansson Hannes2575 
72.2IMMikheev Stanislav2329-GMSteingrimsson Hedinn2540 
72.3IMYarmonov Igor2322-GMDanielsen Henrik2492 
72.4IMBondarets Vadim2345-IMKristjansson Stefan2474 


Bo.65ISL  Iceland (ISL)Rtg-76NZL  New Zealand (NZL)Rtg0 : 0
36.1WGMPtacnikova Lenka2237-WFMMilligan Helen1957 
36.2 Thorsteinsdottir Hallgerdur1915-WFMMaroroa Sue1938 
36.3 Fridthjofsdottir Sigurl Regin1806-WCMSmith Vivian J1858 
36.4 Kristinardottir Elsa Maria1776-WFMFairley Natasha1803 




Benedikt öruggur sigurvegari á fimmtudagsmóti

Benedikt Jónasson sigrađi međ yfirburđum á fimmtudagsmóti gćrkvöldsins ţegar hann hlaut 8,5 vinning í níu skákum, 2,5 vinningi meira en nćstu menn sem voru Helgi Brynjarsson og Kristján Örn Elíasson.  Ţađ var ađeins hinn ungi Páll Andrason sem náđi ađ skáka Benedikt og hala inn jafntefli eftir ađ sá síđarnefndi hafđi lengi reynt ađ innbyrđa sigur í endatafli međ peđ á mann og samlitum biskupum.

Úrslit urđu eftirfarandi:

  • 1. Benedikt Jónasson 8,5 v af 9
  • 2.-3. Helgi Brynjarsson, Kristján Örn Elíasson 6 v
  • 4. Páll Andrason 5,5 v
  • 5.-8. Ingi Tandri Traustason, Jón Gunnar Jónsson, Dagur Kjartanson, Ţórir Benediktsson 5 v
  • 9. Rafn Jónsson 4,5 v
  • 10.-13. Brynjar Níelsson, Magnús Matthíasson, Jon Olav Fivelstad, Helgi Hauksson 4 v
  • 14.-15. Benjamín Gísli Einarsson, Tjörvi Schiöth 2,5 v
  • 16. Jóhannes Guđmundsson 0,5 v

Nćsta mót fer fram fimmtudaginn 27. nóvember og hefst kl. 19.30.

   

Ólympíumótiđ í Dresden, 9. pistill

Gćrdagurinn var mikill sorgardagur hjá íslensku liđunum og sennilega einn sá versti í íslenskri Ólympíusögu.  Tap hjá karlaliđinu gegn Sameinuđu Arabísku Furstadćmunum er eitthvađ sem viđ megum ekki sćtta okkur viđ.  Ţađ borgar sig ekki ađ segja meira um ţetta tap í bili, en eftir mótiđ ţarf ađ setjast niđur og skođa stöđuna.  Kvennaliđiđ tapađi líka illa gegn Luxemborg 0,5-3,5 sem er eitthvađ sem gat gerst miđađ viđ stigamuninn en er samt erfitt ađ kyngja. 

Á eftir mćtir karlaliđiđ athyglisverđri sveit, ţe sveit fatlađra.  Ţó ađ nafniđ hljómi ekki traustvekjandi ţá eru ţetta ágćtis skákmenn, 4 alţjóđlegir meistarar allir frá Rússlandi og Útefla í dag, en krafan er samt ađ sjálfsögđu sigur.  Kvennaliđiđ mćtir Nýja Sjálandi og ćtti ađ hafa sigur, en ţađ er samt ekki hćgt ađ bóka neitt í ţessu.  Ćtli ég láti ţetta ekki nćgja í ţetta skiptiđ.

kveđja, Sigurbjörn


Tap gegn Sameinuđum Aröbum

100 0539Íslenska liđiđ í opnum flokki tapađi 1,5-2,5 fyrir Sameinađa arabíska furstadćminu í áttundu umferđ Ólympíuskákmótsins.  Henrik Danielsen sigrađi, Stefán Kristjánsson gerđi jafntefli en Hannes Hlífar Stefánsson og Ţröstur Ţórhallsson töpuđu. 

Úrslit áttundu umferđar:

Bo.45ISL  Iceland (ISL)Rtg-81UAE  United Arab Emirates (UAE)Rtg1˝-2˝
30.1GMStefansson Hannes2575-IMSalem A R Saleh24760-1
30.2GMDanielsen Henrik2492- Ali Abdulkhaleq21761-0
30.3IMKristjansson Stefan2474-IMHassan Abdullah2287˝-˝
30.4GMThorhallsson Throstur2455-FMAlHuwar Jasem22300-1

 


Guđmundur međ AM-áfanga - Dagur međ góđa möguleika á SM-áfanga

 

Guđmundur Kjartansson

 

 

Guđmundur Kjartansson (2284) hefur tryggt sér áfanga ađ alţjóđlegum meistaratitli ţegar einni umferđ er ólokiđ á alţjóđlegu skákmóti í Harkany í Ungverjalandi.   Dagur Arngrímsson (2392) hefur möguleika á stórmeistaraáfanga geri hann jafntefli í lokaumferđinni.   

Í áttundu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fór í dag, sigruđu Dagur, Guđmundur og Bragi Ţorfinnsson (2383) en Jón Viktor Gunnarsson (2430) tapađi.  Dagur vann franska alţjóđlega meistarann Thal Abergal (2509), Guđmundur sigrađi ungverska alţjóđlega meistarann Tamas Banusz (2498) og Bragi lagđi Ungverjann Adam Feher (2229).  Jón Viktor tapađi fyrir úkraínska stórmeistaranum Adam Shiskin (2502). 

Dagur hefur 6,5 vinning, Guđmundur hefur 6 vinninga, Bragi 5 vinninga og Jón Viktor 4,5 vinning.  

Alls tekur 121 skákmađur ţátt í a-flokknum og ţar á međal sjö stórmeistarar.  

Heimasíđa mótsins


Tap gegn Lúxemborg

100 0528Íslenska liđiđ í kvennaflokki tapađi 0,5-,3,5 fyrir sveit í Lúxemborg í áttundu umferđ, sem fram fór í dag.  Lenka Ptácníková gerđi jafntefli en Guđlaug Ţorsteinsdóttir, Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir og Elsa María Ţorfinnsdóttir töpuđu.

Úrslit áttundu mferđar:

Bo.41LUX  Luxembourg (LUX)Rtg-65ISL  Iceland (ISL)Rtg3˝-˝
31.1WGMBerend Elvira2328-WGMPtacnikova Lenka2237 ˝-˝
31.2WGMWagener Anna2246-WFMThorsteinsdottir Gudlaug21561-0
31.3WFMSteil-Antoni Fiona2166- Thorsteinsdottir Hallgerdur19151-0
31.4WFMBakalarz Grazyna2001- Kristinardottir Elsa Maria17761-0


Hrađskákmót TR fer fram nk. sunnudag

Hrađskákmót Taflfélags Reykjavíkur verđur haldiđ sunnudaginn 23. nóvember kl. 14 í Félagsheimili TR ađ Faxafeni 12.  Tefldar verđa 2x 7 umferđir međ 5 mínútna umhugsunartíma.  Verđlaun verđa veitt fyrir ţrjú efstu sćtin.

Ţátttökugjald er 500 kr fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri.

Jafnframt fer fram verđlaunaafhending fyrir Haustmót TR 2008.


Ólympíumótiđ í Dresden, 8. pistill

Bćđi liđin gerđu jafntefli í gćr í miklum baráttuviđureignum.  Karlaliđiđ var á tímabili nálćgt sigri gegn Kólumbíu en í lokin máttum viđ ţakka fyrir jafntefliđ ţví Stefán lagđi allt undir gegn andstćđing sínum og uppskar sigur, en Kólumbíumađurinn hefđi getađ teflt lokin á skákinni betur, td međ ţví ađ drepa á d6 og leika Dg6-h5-e5 eftir ađ Stefán lék hinum mjög svo ögrandi d6 leik sem miđađi ađ ţví ađ sleppa viđ ţrátefliđ.  Bćđi Héđinn og Hannes komust lítiđ áleiđis gegn sínum andstćđingum og Ţröstur féll á tíma á ótrúlegan hátt í jafnteflisstöđu ţannig ađ í stađinn fyrir ađ Stefán myndi berjast fyrir sigri í viđureigninni ţá var hann ađ berjast fyrir jafnteflinu. 

Ekki er auđvelt ađ útskýra hvađ gerđist hjá Ţresti, hann bara ruglađist eitthvađ á ţessu öllu saman og féll á tíma í stöđu sem andstćđingur hans myndi sjálfsagt aldrei ná ađ vinna, en ţađ ţýđir lítiđ ađ velta sér upp úr ţví heldur bara einbeita sér ađ nćstu viđureign sem er á eftir gegn Sameinuđu Arabísku Furstadćmunum.  Ţar hvílir Héđinn vegna ţess ađ hann er međ einhverja kvefpest og treystir sér ekki til ađ tefla.  Vonandi verđur hann búinn ađ ná sér fyrir lokasprettinn, en hér eftir verđur hvert stig mjög dýrmćtt.

Stelpurnar gerđu jafntefli viđ Mexíkó í gćr ţar sem Lenka og Guđlaug unnu og Sigurlaug og Elsa María töpuđu.  Á eftir tefla ţćr svo gegn ţéttu liđi Luxemborgar ţar sem stig vćri fínt.   

Armenar unnu gríđarlega góđan sigur gegn Rússum í gćr og stigu međ ţví stórt skref í átt ađ ţví ađ verja Ólympíutitilinn.  Sargissian vann Grischuk í mjög áhugaverđri skák og gerđist ţađ sama fyrir tveimur árum ţegar Armenar unnu Rússana međ sama mun, 2,5-1,5.  Á eftir mćta Armenarnir svo Frökkum og međ sigri ţar myndu ţeir nálgast gulliđ verulega.  Reyndar eiga ţeir eftir ađ mćta heimamönnum í Ţýskalandi sem hafa stađiđ sig vel og mćta gríđarlega vel undirbúnir til leiks.  Ţjóđverjarnir fá Ísraela og Rússar mćta Bandaríkjamönnum, en Ţjóđverjar, Ísraelar og Frakkar eru allir međ 12 stig, stigi minna en Armenar.

Ţá má geta ţess ađ Víetnamar sem lögđu okkur í 6. umferđ unnu Hollendinga í gćr og eru ţar međ komnir međ 11 stig og mćta Kínverjum í 8. umferđ! Aftur reyndust 2 efstu borđin vel fyrir Víetnama ţví ţeir unnu ţá Loek Van Wely og Jan Smeets. 

En ţar sem frekar lítiđ merkilegt gerđist í gćr, utan skákborđsins, ţá lćt ég ţetta bara nćgja í bili.

kveđja, Sigurbjörn


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 138
  • Frá upphafi: 8765563

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 115
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband