Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, janúar 2013

Guđmundur vann sterkan stórmeistara í dag

Guđmundur KjartanssonAlţjóđlegi meistarinn, Guđmundur Kjartansson (2408) vann eistneska stórmeistarann Kaido Kulaots (2587) í sjöundu umferđ Gíbraltar-mótsins í dag. Guđmundur hefur nú hlotiđ 5 vinninga og er í 19.-35. sćti.

Í 8. umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Guđmundur viđ spćnska alţjóđlega meistarann Jose Carlos Ibarra Jerez (2538).

Rússneski stórmeistarinn Nikita Vitiugov (2694) er efstur međ 6,5 vinning.

246 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af 48 stórmeistarar. Guđmundur er nr. 66 í stigaröđ keppenda.

KR-pistill: Stefán Ţormar vann síđast

Stefán ŢormarŢađ er jafnan líf og fjör í Frostaskjólinu og heitt í kolunum ţegar gengiđ er til „burtreiđa" á mánudagskvöldum. Ţar skiptast menn á  hrósa sigri - vera öđrum snjallari.

Ţađ ber til nokkurrar nýlundu ađ nú er fariđ ađ  gera heimildarmyndir um skákmótin og atganginn ţar til kynningar fyrir komandi kynslóđir eins og sjá má á međfylgjandi hreyfimynd úr smiđju Guss-Films Inc.  Áđur hefur veriđ veriđ gert frćgt myndband um skákofsann sem ţar geysar, sem fengiđ hefur alţjóđlega kynningu á ChessCafé og sjá má á heimasíđu klúbbsins og á Youtube međ ţví ađ slá inn ChessFury.

http://www.youtube.com/watch?v=m85AC7HLuCA

Ţađ var enginn annar en Stefán Ţormar Guđmundsson, hinn fágađi kr-kv_ld_21_jan_2013.jpgog trausti skákkappi (hellisheiđarséníđ sjálft), sem bar sigurorđ af öđrum á mánudaginn var, sérstaklega GunnaGunn, sem selur sig jafnan dýrt ţrátt fyrir háan aldur og fyrri störf.  Báđir luku keppni međ 9.5 vinningi af 13 mögulegum en séníiđ hafđi sigurinn á 3 stigum.

 Vikuna á undan var ţađ Ingimar Jónsson, sem var allra snjallastur međ 10. 5 vinning en Jón G. Friđjónsson kom nćstur međ 10v.  Vikuna ţar áđur (7. Jan.) tillti einn ţessara mörgu herskáu Gunnarra sér á toppinn međ 10.5 vinningi ásamt Gunnari I. Birgissyni, sem segir gottađbúaíkópavogi.  Var ţar um ađ rćđa skákvíkinginn Gunnar Frey Rúnarsson, sem marđi nafna sinn á stigum međ 1.5 hundrađasta, sem jafngildir broti úr sekúndu á skíđamóti.

Vegna hins glćsilega sigurs Íslands í IceSave-skákinni fyrir EFTA-dómstólnum í dag fer etv. vel á ţví  ađ birta hér stutt myndskeiđ úr öđru hnitnu videó-i frá Guss-Films, sem tekiđ var í garđveislu KR viđ Selvatn fyrir tveimur árum, ţar sem Jónas Elíasson, prófessor og skákunnandi dregur dár af Gordon Brown, fyrrv. forsćtisráđherra Bretlands í skorinorđri stöku sem sýnir vel hvađa hug Íslendingar bera til hans.

 

motstafla_21_jan_myndskreytt.jpg

 

 http://youtu.be/c8qlyZ3csxg

Meira á heimasíđunni kr.is (skák)            

ESE- Skákţankar 28.1.13

Og ţađ var teflt á Blönduósi

Skák og mát 007Hjá Blönduskóla á Blönduósi settum upp skákmót miđvikudaginn 23. janúar í tilefni af Skákdegi Íslands. Mótiđ var ćtlađ miđstigi og unglingastigi og mćttu nokkrir hressir krakkar. Ţađ er ekki mikil skákmenning ţessi árin hérna á Skák og mát 004Blönduósi en ţeir sem ađ mćttu skemmtu sér vel og höfđu mjög gaman af ţví ađ tefla.

Í myndaalbúmi má finna nokkrar myndir frá Blönduósi.

Sigurvegarar dagsins

  • Daníel Logi Heiđarsson - miđstig
  • Benedikt Axel Ágústsson - unglingastig

Teflt í Grunnskóla Raufarhafnar á Skákdeginum

DSC04008Ţađ var víđa teflt á Skádaginn. Ţađ var t.d. gert í Grunnskólanum á Raufarhöfn ţar sem haldiđ var upp á daginn, allir nemendur skólans tóku ţátt og kepptu sín á milli. Í myndaalbúmi má minna nokkrar myndir frá Skákdeginum á Raufarhöfn.

 


Ungmennaćfing Skákdeildar Breiđabliks í dag kl. 17

Skákćfingar fyrir ungmenni 16-25 ára eru haldnar í Stúkunni á 3ju hćđ viđ Kópavogsvöll alla mánudaga kl 17-19. Ćfingarnar eru opnar öllum á ţessum aldri óháđ taflfélagi.

Gengiđ er inn bakatil á kjallarahćđ. Sigurvegari ćfingarinnar hlýtur ađ launum gjafabréf á  pizzu hjá Italiano Pizzeria Hlíđasmára. Stjórnandi ćfinganna er Páll Andrason

Heimasíđa Skákdeildar Breiđabliks: http://www.breidablik.is/skak


Frábćr hátíđ í Vogum: Skákklúbbur stofnađur í tilefni Skákdags Íslands

1bFrábćr skákhátíđ var haldin í Stóru-Vogaskóla í Vogum á Vatnsleysuströnd í tilefni af Skákdegi Íslands. Viđstaddir voru 200 nemendur skólans, starfsfólk og foreldrar, og eldri borgarar í bćnum voru sérstakir heiđursgestir. Tugir spreyttu sig í fjöltefli viđ Róbert Lagerman skákmeistara.

IMG_5529Svava Bogadóttir skólastjóri setti hátíđina, sem fram fór í glćsilegum samkomusal skólans ţar sem er hátt til lofts og vítt til veggja. Svava sagđi međal annars í rćđu sinni ađ skákiđkun vćri mjög ćskileg, enda bćtti skákkunnátta námsárangur, auk ţess ađ vera skemmtileg og holl tómstundaiđja sem allir geta stundađ. Ţá sagđi Svava ađ Skákdagurinn vćri haldinn til ađ heiđra Friđrik Ólafsson stórmeistara, sem vćri mesti skáksnillingur sem Ísland hefđi aliđ.

Sveinbjörn EgilssonRóbert tefldi fjöltefli á hátíđinni og voru mótherjar hans af öllum kynslóđum. Alls tefldi meistarinn viđ hátt í 70 mótherja. Hann tapađi ekki skák, en gerđi jafntefli viđ Guđmund Jónas Haraldsson og Sveinbjörn Egilsson.

Birgitta Iđunn ÍvarsdóttirSamhliđa fjölteflinu sá Hrafn Jökulsson um byrjendafrćđslu, auk ţess sem fjölmörg af yngstu börnunum lituđu skákmyndir af mikilli innlifun. Ţá var opnađ skákkaffihús í tilefni dagsins, ţar sem nemendur skólans buđu upp á kakó og vöfflur. Ţá steig Birgitta Iđunn Ívarsdóttir, nemandi í 8. bekk, á sviđ og söng fullfallega fyrir gesti hátíđarinnar.

Una SvaneSkólabókasafniđ, sem jafnframt er opiđ öllum bćjarbúum, fékk skákbókagjöf í tilefni dagsins. Una Svane bókavörđur veitti gjöfinni viđtöku, og á nćstunni verđa skákbćkur áberandi á bókasafninu.

Kátar skákstúlkur í vogumHápunktur hátíđarinnar í Vogum var stofnun skákklúbbs, sem mun annast uppbyggingu skáklífsins í ţessum 1200 manna blómlega og vinalega bć. Í stjórn klúbbsins eru Guđmundur Jónas Haraldsson, Stefán Arinbjarnarson, Örn Pálsson og Sveinbjörn Egilsson. Ţá verđur tveimur ungmennum bođiđ ađ taka sćti í stjórninni, svo rödd unga fólksins heyrist. Ćfingar hins nýja skákklúbbs verđa á fimmtudögum milli 17 og 19 í samkomusalnum í Álfagerđi.

Guđmundur Jónas HaraldssonGuđmundur Jónas, sem er mikill skákáhugamađur og átti hugmyndina ađ hátíđinni, var alsćll međ hvernig til tókst:

,,Takk fyrir yndislega samverustund á skákdegi í Vogum. Ég skemmti mér alveg konunglega.
Ţađ var falleg og góđ stemning sem sveif yfir vötnum. Alltaf svo gaman ađ sjá fólk af öllum stćrđum og gerđum blanda geđi og skemmta sér saman. Skáklistin hefur ţennan dásamlega eiginleika ađ allir geta veriđ međ.

Myndaalbúm frá hátíđinni í Vogum (HJ)


Hrađkvöld hjá Helli í kvöld

Taflfélagiđ Hellir heldur hrađkvöld mánudaginn 28. janúar nk. og hefst tafliđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7 umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Sigurvegarinn á hrađkvöldinu fćr í verđlaun máltíđ fyrir einn á Saffran. Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fćr máltíđ fyrir einn á Saffran. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).


Gíbraltar: Guđmundur međ sigur í dag

Guđmundur KjartanssonAlţjóđlegi meistarinn, Guđmundur Kjartansson (2408) vann Ítalann Marco Ferrante (2227) í sjöttu umferđ Gíbraltar-mótsins sem fram fór í dag. Í gćr tapađi hann hins vegar fyrir Nana Dzagnidze (2555) frá Georgíu, sem er fimmta stigahćsta skákkona heims. Guđmundur hefur 4 vinninga og er í 32.-63. sćti.

 

Í 7. umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Guđmundur viđ eistneska stórmeistarann Kaido Kulaots (2587).

Efstir međ 5,5 vinning eru stórmeistararnir Liem Le Quang (2705), Víetnam, Nikita Vitiugov (2694), Rússlandi, Kiril Georgiev (2643), Búlgaríu.

246 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af 48 stórmeistarar. Guđmundur er nr. 66 í stigaröđ keppenda.

Skákţáttur Morgunblađsins: Snilldartilţrif heimsmeistarans

Aronian og AnandÁ skákhátíđinni í Wijk aan Zee í Hollandi sem stendur yfir ţessa dagana beinist athyglin hér heima ekki síst ađ stórmeistaraflokki C ţar sem Hjörvar Steinn Grétarsson hefur stađiđ sig prýđilega og er međ 3 vinninga af fimm mögulegum í 13 umferđa móti. Í A-flokki hefur heimsmeistarinn Wisvanthan Anand veriđ á miklu flugi. Eftir fimm umferđir er hann efstur ásamt Magnúsi Carlsen og Sergei Karjakin, allir međ 3 ˝ vinning.

Sá léttleiki sem einkenndi taflmennsku Indverjans alla tíđ virtist alveg ađ hverfa en nú geta ađdáendur hans aftur tekiđ gleđi sína. Lev Aronjan átti örugglega ekki von á ţeim trakteringum sem biđu hans í 4. umferđ ţessa móts. Hér er komin einhver glćsilegasta skák sem sést hefur í langan tíma í ţessum styrkleikaflokki:

Lev Aronjan - Wisvanthan Anand

Slavnesk vörn

1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5 8. Bd3 Bd6

Nýjasti snúningurinn í Meran-afbrigđinu, Anand vann Kramnik tvisvar međ 8. ... a6 í HM-einvíginu 2008 en ađrir góđir leikir eru 8. .... Bb7 og 8. ... b4.

9. O-O O-O 10. Dc2 Bb7 11. a3 Hc8 12. Rg5

Aronjan sem er býsna hugmyndaríkur í byrjunum sínum hefur áreiđanlega ćtlađ ađ koma heimsmeistaranum á óvart međ ţessum leik sem býđur upp á möguleikann 12. ... Bxh2 13. Kxh2 Rg4+ og getur ţá svarađ međ 14. Kg1 Dxg5 15. f3! og síđar - e4 og - b4. En hann kemur ekki ađ tómum kofunum hjá Anand.

12. ... c5!

Hvađ er nú ţetta? B5-peđiđ er valdlaust og h7-peđiđ einnig. Anand hafđi notađ óvenjumikinn tíma á byrjunina. Var hann ađ rifja upp gamlar niđurstöđur eđa setti hann leikrit á sviđ til ađ blekkja Aronjan?

13. Rxh7

Best samkvćmt ofurforritinu „Houdini".

13. ... Rg4!?

Einu sinni voru svona leikir kallađir sprikl. „Houdini" var lengi ađ samţykkja hugmyndina

14. f4!?

Betra er 14. h3 Bh2+! 15. Kh1 Dh4 (hótar 16. ... Dxh3) 16. d5! Hfd8 17. Be2 međ flókinni stöđu. „Houdini" heldur áfram: 17. .... Bb8 18. bxg4 Re5 19. Bd1 b4! og stađan er í dínamísku jafnvćgi.

14. ... cxd4 15. exd4?

Tapleikurinn. Hann varđ ađ leika 15. Rxf8 Bxf8 16. h3 dxc3 17. hxg4 Rf6 og svarta stađan er ekki lakari. En nú kemur eftirminnilegur leikur.

15. ... Bc5!! 16. Be2

Ţađ var úr vöndu ađ ráđa, 16. Rxf8 gekk ekki vegna 16. ... Bxd4+ 17. Kh1 Dh4 og mátar og 16. dxc5 Rxc5 er heldur ekki gćfulegt.

gcnq70eb.jpg16. .... Rde5!

Kynngimagnađur leikur sem byggist á hugmyndinni 17. fxe5 Dxd4+ 18. Kh1 Dg1+! 19. Hxg1 Rf2 mát. Ţá dugar 17. dxc5 skammt vegna 17. .... Dd4+ 18. Kh1 Rf2+ 19. Hxf2 (eđa 19. Kg1 Rh3+ 20. Kh1 Dg1+! 21. Hxg1 Rf2 mát) Dxf2 međ óverjandi máthótun.

16. ... Rde5 17. Bxg4 Bxd4+ 18. Kh1 Rxg4 19. Rxf8 f5!

Enn einn snilldarleikurinn sem hótar 20. ... Dh4. Aronjan er varnarlaus.

20. Rg6 Df6 21. h3 Dxg6 22. De2 Dh5! 23. Dd3

Hann gat reynt 23. Hf3 en ţá kemur 23. ... Rf2+! 24. Kh2 (ekki 24. Hxf2 Dxh3+ 25. Kg1 Dxg2 mát) 24. ... Bxf3 25. Dxf3 Dxf3 26. gxf3 Rd3 og endatafliđ er gjörtapađ á hvítt.

23. ... Be3!

Línurof bćtist hér viđ önnur stef. Aronjan á enga haldgóđa vörn gegn hótuninni 24. .... Dxh3+ og gafst upp.

Helgi Ólafsson

helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 20 janúar 2013.

Skákţćttir Morgunblađsins


Oliver Aron hrađskákmeistari Reykjavíkur

Oliver AronOliver Aron Jóhannesson er hrađskákmeistari Reykjavíkur en mótiđ fór fram í dag. Oliver var jafn Birni Freyr Björnssyni og Ögmundi Kristinssyni ađ vinningum en hlaut titilinn eftir stigaútreikning. 26 skákmenn tóku ţátt í mótinu. Ólafur S. Ásgrímsson var skákstjóri.

Lokastađan:

 1-3  Óliver Aron Jóhannesson,                   11       43.0
      Björn Freyr Björnsson,                     11       41.0
      Ögmundur Kristinsson,                      11       38.0
  4   Omar Salama,                               10.5     45.5
  5   Dagur Ragnarsson,                          10       34.0
 6-8  Mikael Jóhann Karlsson,                    8.5      46.5
      Vignir Vatnar Stefánsson,                  8.5      41.5
      Birkir Karl Sigurđsson,                    8.5      34.5
9-11  Arnaldur Loftsson,                         8        42.5
      Kristján Örn Elíasson,                     8        37.5
      Elsa María Kristínardóttir,                8        36.5
 12   Dagur Kjartansson,                         7.5      42.5
13-14 Gauti Páll Jónsson,                        7        44.0
      Sigurjón Haraldsson,                       7        29.5
15-16 Jakob Alexander Petersen,                  6.5      36.5
      Guđmundur Gunnlaugsson,                    6.5      30.5
17-20 Kjartan Másson,                            6        39.0
      Björn Hólm Birkisson,                      6        33.0
      Bárđur Örn Birkisson,                      6        26.5
      Ísak Logi Einarsson,                       6        23.5
 21   Kristófer Ómarsson,                        5.5      36.0
 22   Andri Steinn Hilmarsson,                   5        32.5
 23   Bjarki Arnaldarson,                        4        30.0
 24   Sindri Snćr Kristófersson,                 3.5      25.0
 25   Pétur Jóhannesson,                         2.5      26.5
 26   Ívar Andri Hannesson,                      0        27.0

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 206
  • Frá upphafi: 8764980

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 153
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband