Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2015

Skákţáttur Morgunblađsins: Walter Browne setti svip sinn á skáklíf Íslendinga

Walther BrowneEinhver litríkasti skákmađur sem Bandaríkjamenn hafa eignast og tíđur gestur á skákmótum hér á landi, Walter Shawn Browne, lést 24. júní sl. 66 ára ađ aldri. Browne var ţá međal ţátttakenda á National open, skákmóti sem hann hafđi unniđ ellefu sinnum. Ţar voru orkuútlátin söm viđ sig; međan á mótinu stóđ tefldi hann fjöltefli, tók ađ sér skákkennslu og sat dágóđa stund viđ pókerborđiđ en ţar hafđi hann um dagana rakađ saman dágóđum skildingi. Ţannig hafđi hann alltaf lifađ lífinu. Svo lagđist hann til svefns í húsi vinar síns í Las Vegas og vaknađi ekki aftur.

Um tíma starfađi hann sem „gjafari“ viđ spilavíti í Las Vegas og kynntist ýmsum skrautlegum karakterum. Í bók sinni „The stress of chess and its infinite finesse“birtist mynd af honum međ Frank Sinatra, önnur međ Kenny Rogers. Ţegar skákferill hans er gerđur upp stendur eftir ađ hann vann fleiri mót en nokkur annar skákmađur vestra og er einhver minnisstćđasti stórmeistari sem greinarhöfundur hefur teflt viđ. Síđasta viđureign okkar var á Reykjavíkurskákmótinu í fyrra ţar sem hann var heiđursgestur. Ţar náđi ég loks fram hefndum eftir töp í Lone Pine '78, Reykjavík '80 og í New York '84. Yasser Seirawan tók í sama streng í viđtali um daginn og hikađi ekki viđ ađ kalla Browne sinn langerfiđasta andstćđing. Ađ tefla viđ Walter Browne var sérstök lífsreynsla ţví mađurinn bókstaflega skalf og nötrađi frá fyrstu mínútu til ţeirrar síđustu og dró jafnan ađ sér mikinn fjölda áhorfenda. Browne kom fyrst til Íslands veturinn 1978 og tefldi ţar á best skipađa Reykjavíkurskákmóti frá upphafi, skaust fram úr Bent Larsen á lokametrunum og varđ einn efstur. Hann bar Íslendingum alltaf vel söguna og eignađist hér marga vini.

Örlögin höguđu ţví svo ađ Walter Browne tók viđ ţví hlutverki sem beiđ Bobbys Fischers í Bandaríkjunum eftir einvígiđ í Reykjavík 1972. Browne nýtti sér út í ystu ćsar ţau tćkifćri sem opnast höfđu fyrir skákina eftir einvígiđ í Reykjavík. Hann varđ „sexfaldur skákmeistari Bandaríkjanna“ og sá titill varđ síđan ávallt tengdur nafni hans og ímynd. Burtséđ frá bćgslaganginum viđ skákborđiđ var hann hress og skemmtilegur náungi og einkar orđheppinn. Í frásögn minni af sögu Reykjavíkurmótanna frá viđburđum ársins 1986 stendur ţetta skrifađ: „Browne steig ţá í rćđustól og minnti á framtak sitt til eflingar hrađskákeppni á heimsvísu og útgáfu sína á tímariti helguđu hrađskákinni og bćtti svo viđ, ađ í einni hrađskák fćlist yfirleitt meiri hugsun en hjá bandarísku ruđningsliđi yfir heilt keppnistímabil.“

Á ferli sínum vann Browne tvisvar stórmótiđ í Wijk aan Zee í Hollandi. Í fyrra skiptiđ fór hann ómjúkum höndum um vin sinn frá Argentínu.

Walter Browne – Miguel Quinteros

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Bd7 4. Bxd7+ Dxd7 5. c4 Dg4

Eftir ţessa skák hefur peđsrániđ alltaf ţótt vafasamt.

6. O-O Dxe4 7. d4 cxd4 8. He1 Dc6 9. Rxd4 Dxc4 10. Ra3 Dc8 11. Bf4 Dd7 12. Rab5

Hótar 13. Rxd6+. Nú dugar ekki 12. ... e6 vegna 13 Rxe6! fxe6 14. Hxe6+! o.s.frv.

12. ... e5 13. Bxe5! dxe5 14. Hxe5+ Be7

GIUUAGAM15. Hd5! Dc8 16. Rf5 Kf8 17. Rxe7 Kxe7 18. He5+

- og svartur gafst upp. Tćrasta mátiđ kemur upp eftir 18. ... Kf6 19. Df3+! Kxe5 20. He1 mát.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu 

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 4. júlí 2015

Skákţćttir Morgunblađsins


Ungir skákmenn gerđu ţađ gott á Skákţingi Noregs - Aryan Tari skákmeistari Noregs

Norska meistaramótiđ 2015

Ungir og efnilegir skákmenn voru í ađalhlutverki á Skákţingi Noregs sem lauk í Osló í dag. Sigurvegari mótsins varđ Aryan Tari (2502) sem er ađeins 16 ára. Hann hlaut 7 vinninga í 9 skákum. Í öđru sćti varđ Johan Salomon (2424) sem er ađeins 18 ára og ţriđji varđ Kristian Stuvik Holm (2376) sem er 17 ára. Framtíđ Noregs er ţví nokkuđ björt. 

Í mótiđ vantađi allra sterkustu skákmenn Noregs (allt ólympíuliđiđ) en međal keppenda voru ţó ţrír stórmeistarar (Östenstad, Djurhuus og Gausel). Árangur hins unga Tari er ţví mikiđ. Ţrátt fyrir ungan aldur er hann ađeins sá ţriđji yngsti sem hampar titlinum en bćđi Agdestein og Carlsen urđu meistarar yngri en Tari.

Heimasíđa mótsins

 


Hjörvar vann í lokaumferđinni - endađi í 8.-16. sćti

Hjörvar SteinnStórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2559) vann ástralska alţjóđlega meistarann Justin Tan (2417) í tíundu og síđustu umferđ Benasque-mótsins á Spáni sem fram fór í morgun.

Hjörvar hlaut 7,5 vinning og endađi í 8.-16. sćti (10. sćti á stigum). 

Frammistađa Hjörvars samsvarađi 2580 skákstigum og hćkkar hann um 8 stig fyrir hana. Hjörvar hefur ţví endurheimt annađ sćti Íslendinga á stigalista FIDE. 

Indverski stórmeistarinn B. Adhiban (2627) sigrađi á mótinu en hann hlaut 8,5 vinning.

Jón Trausti Harđarson (2141) tapađi fyrir finnsku gođsögninni Heikki Westerinen (2313) í lokaumferđinni. Jón Trausti hlaut 5,5 vinning og endađi í 108.-158. sćti (133. á stigum). 

Alls tóku 412 skákmenn frá 37 löndum ţátt í mótinu. Ţar af voru 34 stórmeistarar. Hjörvar var nr. 13 í stigaröđ keppenda en Jón Trausti var nr. 123.

 


Sumarmótiđ mikla viđ Selvatn IX - Róbert sigrađi, Bragi og Gunnar komu nćstir

Selvatnsmótiđ   myndir af vettvangi   ESE 041

Skákhátíđin ađ sveitasetri ţeirra hjóna Guđfinns og Erlu Axels fór fram Í í fögru sumarveđri í fađmi náttúrunnar í Listaskálanum viđ Selvatn síđdegis á fimmtudaginn var (9. júlí). og stóđ langt fram á kvöld.  

Umgjörđ mótsins var eins og best verđur á kosiđ og einkar glćsileg. Mćttir voru 40 skákgarpar á öllum aldri til ađ láta ljós sitt sína og kosta kapps um ađ máta hvern annan eđa verđa sjálfir mát ella.

Selvatnsmótiđ   myndir af vettvangi   ESE 037

GRK bauđ mótsgesti velkomna, ESE setti mótiđ; KrSt kynnti styrktarađila ţess fjölmarga; Siggi Dan sló kröftuga tóna á píanóiđ til ađ fylla menn baráttuhug og Kristján Hreinsson fór međ gamanmál til ađ létta tapsárum mönnum lund.  Mikiđ var um dýrđir, hátíđarkvöldverđarhlađborđ undir beru lofti, glćsileg verđlaun og vinningahappdrćtti.

Eftir harđa keppni og margar ćsilegar baráttuskákir á öllum borđum stóđ Róbert  nokkur Lagerman uppi sem sigurvegari. Hann hlaut 9 vinninga af 11 mögulegum og  keppti fyrir Lögmannsstofu Jóns G. Briem sem styrktarađila. Bragi Halldórsson (KPMG) varđ annar og Gunnar Björnsson (Urđur) í ţriđja sćti.

Selvatnsmótiđ   myndir af vettvangi   ESE 038

Á eftir ţeim fylgdi svo fríđur flokkur skákkempna međ örlítiđ fćrri vinninga eins og gengur og sjá má á međf. mótstöflu. Ungmennaverđlaun hlaut hinn uppvaxandi meistari Gauti Páll Jónsson (Eldhús Sćlkerans) Ellismellur mótsins var Sverrir Gunnarsson 88 ára (Byko). Engin fór tómhentur heim.

Selvatnsmótiđ   myndir af vettvangi   ESE 024

Skákdeild KR, Gallerý Skák og Riddarinn sem stóđu sameiginlega fyrir mótinu  ţakka keppendum og stoltum stuđningsađilum framlag ţeirra til eflingar skáklífinu.

Selvatnsmótiđ   myndir af vettvangi   ESE

Myndaalbúm (ESE)


Ingvar vann - Sigurbjörn gerđi jafntefli viđ Macieja

Ingvar Ţór Jóhannesson (2372) vann pólska skákmeistarann Michal Karpus (2114) í fyrstu umferđ minningarmóts um Najdorf sem hófst í Varsjá í dag. Sigurbjörn Björnsson (2327) saumađi lengi vel ađ pólska stórmeistaranum Bartomiej Macieja (2586) en varđ ađ sćtta sig ađ lokum viđ jafntefli.

Ţađ eru hörkuskákir hjá báđum á morgun. Sigurbjörn mćtir stigahćsta keppenda mótsins, búlgarska stórmeistaranum Ivan Cheparinov (2683) en Ingvar teflir viđ pólska stórmeistarann Jacek Tomsczak (2579). Báđir verđa ţeir í beinni útsendingu en umferđin kl. 15.

Alls tefla 83 skákmenn í efsta flokki og ţar af eru 23 stórmeistarar. Ingvar er nr. 39 í stigaröđ keppenda en Sigurbjörn er nr. 52.

.


Hjörvar međ jafntefli viđ Deysi Cori - Jón Trausti á sigurbraut

Hjörvar SteinnStórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2559) gerđi jafntefli viđ Deyri Cori (2421), stórmeistara kvenna frá P, í níundu og nćstsíđustu umferđ Benasque-mótsins á Spáni.

Hjörvar hefur 6,5 vinning og er í 12.-40. sćti. Í lokaumferđinni sem fram fer á morgun teflir Hjörvar viđ ástralska alţjóđlega meistarann Justin Tan (2417). Skákin verđur sýnd beint og hefst umferđin kl. 7 í fyrramáliđ.

Jón Trausti Harđarson (2141) vann sína ţriđju skák í röđ og er kominn međ 5,5 vinning. Á morgun teflir hann viđ finnska stórmeistarann Heikki Westerinen (2313). 

Alls taka 412 skákmenn frá 37 löndum ţátt í mótinu. Ţar af eru 34 stórmeistarar. Hjörvar er nr. 13 í stigaröđ keppenda en Jón Trausti er nr. 123.

 


Ingvar mćtir Karpus á minningarmóti Najdorfs

Minningarmót um Miguel Najdorf hófst rétt í ţessu í Varsjá í Póllandi. FIDE-meistararnir Ingvar Ţór Jóhannesson (2372) og Sigurbjörn Björnsson (2327) eru međal keppenda.

Í fyrstu umferđ teflir Sigurbjörn viđ pólska stórmeistrann Bartomiej Macieja (2586) en Ingvar viđ Michal Karpus (2114). Hćgt er ađ fylgjast međ ţeim báđum í beinni.


Hjörvar teflir viđ Cori-systurina í dag

Hjörvar SteinnStórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2559) tapađi fyrir stórmeistaranum Jorge Cori (2623) í sjöundu umferđ Benasque-mótsins í gćr. Hjörvar fćr í dag tćkifćri til ađ jafna metin gegn Cori-fjölskyldunni ţví hann teflir viđ systur Jorge, Deysi Cori, í dag. Margir munu eftir ţeim systkinum sem tefldu á Reykjavíkurskákmótunum 2010 og 2011 í Ráđhúsinu.

Hjörvar hefur 6 vinninga og er í 12.-32. sćti. Jorge Cori er einn efstur međ 7 vinninga.

Skák Hjörvars gegn Deysi Cori verđur sýnd beint á vef mótsins sem og á Chessbomb. Hún hefst kl. 14.

Jón Trausti Harđarson (2141) vann sína ađra skák í röđ og er kominn međ 4,5 vinning.

Alls taka 412 skákmenn frá 37 löndum ţátt í mótinu. Ţar af eru 34 stórmeistarar. Hjörvar er nr. 13 í stigaröđ keppenda en Jón Trausti er nr. 123.

 


Skákir frá Yanofsky-mótinu 1947 og Euwe-mótinu 1948

Argentínumađurinn Eduardo Bauzá Mercére sendi ritstjóra í dag tölvupóst. Í tölvupóstum voru skákirnar Yanofsky-mótinu 1947 og Euwe-mótinu innslegnar. Ţessar skákir hafa ekki veriđ ađgengilegar í skákgagnagrunnum en finna mátti ţćr í gömlu íslenskum skáktímaritum. 

Bćđi ţessi mót eru afar merkileg. Segja má ađ Yanofsky-mótiđ sé fyrsta alţjóđlega mótiđ sem haldiđ hafi veriđ hérlendis. Međal keppenda auk Yanofsky var Robert Wade og svo sterkustu íslensku skákmennirnir á ţessum tíma. 

Yanofsky sigrađi á mótinu, Ásmundur Ásgrímsson varđ annar og Guđmundur S. Guđmundsson ţriđji.

Euwe-mótiđ er ekki síđur merkilegt ţví Euwe var fyrrum heimsmeistari í skák. Hann vann mótiđ en Guđmundur Pálmason og Ásmundur Ásgeirsson urđu í 2.-3. sćti.

Skákirnar fylgja međ sem viđ viđhengi. Bćđi sem PGN og einnig sem Chessbase-fćlar.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Íslandsmót skákmanna í golfi fer fram 8. ágúst

Golfarar

Íslandsmót skákmanna í golfi 2015 verđur haldiđ á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garđabćjar (GKG) laugardaginn 8. ágúst nk. Keppt verđur í tvíkeppni ţar sem árangur í golfi og skák er lagđur saman.

Viđ byrjum í Glersalnum í stúkunni viđ Kópavogsvöll kl 10 og teflum 9 umferđa hrađskákmót. Ađ ţví loknu fćrum viđ okkur á golfvöllin og tökum ţátt í einu glćsilegasta móti sumarsins sem er Bylgjan Open.  

Keppt verđur í opnum flokki, en einnig í unglingaflokki (grunnskólanemar).

Ef menn standa sig vel í golfmótinu, ţá er möguleiki ađ komast í gegnum niđurskurđinn og spila ţá annan hring á sunnudeginum. 

Núverandi Íslandsmeistari er Helgi Ólafsson.  Ţađ ţarf ađ fara ađ veita honum smá keppni! Íslands- og heimsmetiđ er 2391 stig og er ţađ í eigu Helga. 

Upplýsingar um fyrri mót eru á http://chess.is/golf 

Ţar munu líka birtast nánari upplýsingar ţegar nćr dregur móti.

Skákdeild Breiđabliks sér um framkvćmd Íslandsmóts skákmanna í golfi. 

Skráning: https://docs.google.com/forms/d/13xSiNcQ7_siuY1eEuZ-HvitqRFe4lKRXVKHZHjflwCw/viewform?usp=send_form

Skráđir keppendur: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1HLSblckSAkrmRVeMqsWjptgzblImBhld6-kne8x-LXc/edit?usp=sharing


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 22
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 155
  • Frá upphafi: 8765541

Annađ

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 126
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband