Leita í fréttum mbl.is

EM: Héðinn og Hannes töpuðu

Hannes var sá eini sem lagði meistarannStórmeistararnir Héðinn Steingrímsson (2551) og Hannes Hlífar Stefánsson (2583) töpuðu báðir sínum skákum í sjöundu umferð EM einstaklinga sem fram fór í Plovdid í Búlgaríu í dag.  Héðinn fyrir georgíska stórmeistaranum Mikheil Mchedlishvili (2635) en Hannes fyrir spænska stórmeistarann Marc Dublan Narciso (2509).  Báðir hafa þeir 3½ vinning og eru í 146.-200. sæti. 

Efstir með 6 vinninga eru stórmeistararnir Sergei Movsesian (2695), Slóvakíu, Emil Sutovsky (2630), Ísrael, og Pavel Tregubov (2629), Rússlandi.  

Frídagur er á morgun en í áttundu umferð, sem fram fer á þriðjudag, teflir Hannes við búlgarska stórmeistarann Evgeni Janev (2472) og Héðinn við austurríska alþjóðlega meistarann Siegried Baumegger (2440).   Hvorugur verður í beinni útsendingu.    

Alls taka 336 skákmenn þátt í opnum flokki og þar á meðal 185 stórmeistarar!   Hannes er  92. stigahæsti keppandinn en Héðinn sá 130. í stigaröðuninni.    

EM einstaklinga

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 226
  • Frá upphafi: 8765178

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 129
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband