Leita í fréttum mbl.is

EM Hannes vann í sjöttu umferð

Hannes HlífarStórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2583) sigraði georgíska alþjóðlega meistarann Davit Magalashvili (2462) í sjöttu umferð EM einstaklinga sem fram fór í dag í Plovdid í Búlgaríu.  Héðinn Steingrímsson gerði jafntefli við hinn sterka armenska stórmeistarann Gabriel Sargissian (2643).  Báðir hafa þeir 3½ vinning og eru í 84.-142. sæti. 

Efstir með 5½ vinning eru stórmeistararnir Sergei Movsesian (2695), Slóvakíu, og Emil Sutovsky (2630), Ísrael. Í kvennaflokki er alþjóðlegu meistararnir Viktorija Cmilyte (2466), Litháen, Anna Ushenina (2474), Úkraínu, og Ekaterina Kovalevskaya (2421), Rússlandi, efstar með 5 vinninga.

Í sjöundu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Héðinn við georgíska stórmeistarann Mikheil Mchedlishvili (2635) og Hannes við spænska stórmeistarann Marc Dublan Narciso (2509).  Hvorugur verður í beinni útsendingu.    

Alls taka 336 skákmenn þátt í opnum flokki og þar á meðal 185 stórmeistarar!   Hannes er  92. stigahæsti keppandinn en Héðinn sá 130. í stigaröðuninni.    

EM einstaklinga

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 233
  • Frá upphafi: 8765185

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 136
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband