Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, maí 2010

Eljanov sigrađi á FIDE Grand-mótinu í Astrakhan

EljanovÚkraínski stórmeistarinn Pavel Eljanov (2751) sigrađi á FIDE Grand Prix-mótinu sem lauk í Astrakhan í Rússlandi í dag.  Eljanov hlaut 8 vinninga í 13 skákum og var vinningi fyrir ofan nćstu menn.

Í 2.-6. sćti urđu Ruslan Ponomariov (2733), Úkraínu, Dmitry Jakovenko (2725) og Evgeny Alekseev (2700), Rússlandi, og Aserarnir Shakhriyar Mamedyarov (2763) og Teimor Radjabov (2740).  

Ţetta var loka Grand Prix-mótiđ í ţessari 6 móta lotu.  Aronain og Radjabov áunnu sér rétt til tefla í áskorendakeppni sem mjög líklega fer fram í London 2012 ţar sem teflt er um réttinn til ađ mćta Anand í heimsmeistaraeinvígi.

Auk Arioian og Radjabov hafa eftirtaldir áunniđ sér rétt: Gelfand, Topalov, Kamsky, Carlsen og Kramnik.  Auk ţess fá mótshaldarar eitt sćti og ţví er enskur skákmađur líklegur sem áttundi keppandinn.

Lokastađan:

RankNameRtgFEDPts
1Eljanov Pavel2751UKR8
2Ponomariov Ruslan2733UKR7
3Jakovenko Dmitry2725RUS7
4Mamedyarov Shakhriyar2763AZE7
5Alekseev Evgeny2700RUS7
6Radjabov Teimour2740AZE7
7Leko Peter2735HUN6,5
8Gashimov Vugar2734AZE6,5
 Wang Yue2752CHN6,5
10Gelfand Boris2741ISR6
11Svidler Peter2735RUS6
12Ivanchuk Vassily2741UKR5,5
13Inarkiev Ernesto2669RUS5,5
14Akopian Vladimir2694ARM5,5

 

 


Sverrir međ jafntefli viđ stórmeistara

Sverrir ŢorgeirssonSverrir Ţorgeirsson (2218) gerđi jafntefli viđ stórmeistarann Manuel Rivas Pastor (2536) í 3. umferđ  35. minningarmótsins um Paul Keres sem nú er í gangi í Vancouver í Kanada.  Í 4. umferđ tapađi hins vegar Sverrir fyrir Katerina Rohonyan (2329) sem er stórmeistari kvenna.  Sverrir hefur 2˝ vinning og er í 7.-14. sćti.  Mótinu lýkur međ tveimur umferđum í dag.  

Alls tefla 33 skákmenn í efsta flokki og ţar á međal einn stórmeistari, einn alţjóđlegur meistari og einn stórmeistari kvenna.  Sverrir er áttundi stigahćsti keppandinn.

Heimasíđa mótsins


Sverrir byrjar vel í Vancouver

Sverrir ŢorgeirssonSverrir Ţorgeirsson (2218) byrjar ákaflega vel á 35. minningarmótinu um Paul Keres sem nú er í gangi í Vancouver í Kanada.  Ađ loknum tveimur umferđum hefur Sverrir fullt hús og hefur m.a. sigrađ stigahćsta keppendann, alţjóđlega meistarann, Georgi Orlov (2516) en í fyrstu umferđ vann Sverrir stigalágan andstćđing.  Sverrir er efstur ásamt ţremur öđrum.

Alls tefla 33 skákmenn í efsta flokki og ţar á međal einn stórmeistari, einn alţjóđlegur meistari og einn stórmeistari kvenna.  Sverrir er áttundi stigahćsti keppandinn.

Heimasíđa mótsins


Skákţáttur Morgunblađsins: Anand vann úrslitaskákina og er verđugur heimsmeistari

Ţrátt yfir ýmsar hrakspár og viđvaranir, m.a. vegna ţess ađ hann lét sig hafa ţađ ađ tefla á heimavelli andstćđings, tókst heimsmeistaranum Wisvanathan Anand ađ leggja Venselin Topalov ađ velli, 6 ˝ : 5 ˝. Hann vann tólftu og síđustu skákina međ svörtu eftir ćsispennandi viđureign sem var sjónvarpađ beint í Indlandi og Búlgaríu. Topalov virtist vera ađ bćta sig á lokakafla einvígisins en í úrslitaskákinni ćtlađi hann sér um of. Hann var međ hvítt og gat sennilega fengiđ jafntefli snemma tafls, hafnađi ţví en tók stuttu síđar ţá furđulega áhćttu ađ opna upp á gátt fyrir sameinađa atlögu biskups og drottningar Anands eftir hornalínunni h1-a8. Honum tókst aldrei ađ koma skipulagi á varnir sínar eftir ţađ og mátti játa sig sigrađan eftir 56 leiki.


Menn eru almennt sammála um ađ einvígiđ hafi veriđ vel teflt og spennandi. Hver einasta skák var tefld í botn og ber ekki síst ađ ţakka ţađ hinum annálađa baráttukrafti Topalovs.

Ef litiđ er til skáksögunnar má hiklaust telja viđureign ţeirra međal fimm mögnuđustu heimsmeistaraeinvígjanna í flokki međ Tal og Botvinnik í Moskvu 1960, Fischer og Spasskí í Reykjavík 1972, Karpov og Kortsnoj í Baguio 1978 og Kasparov og Karpov í New York og Lyon 1990 -´91. Kannski mćtti fjölga skákum í slíku einvígi en tímarnir eru breyttir. Ţađ er ţó athyglisvert ađ ađeins einu sinni hefur sigurvegari heimsmeistaraeinvígis veriđ undir eftir 12 skákir allt frá ţví ađ Steinitz og Zukertort tefldu fyrst um titilinn áriđ 1886.

Anands beiđ snúin prófraun ţegar hann gekk til tafls sl. ţriđjudag. Val á byrjun undir ţessum kringumstćđum er eins og hvert annađ lotterí og hann kaus ađ fara leiđ sem Emanuel Lasker, heimsmeistari 1896-1921, beitti stundum og hefst međ leiknum 7. ... Re4. Síđar lumađi hann á tiltölulega nýjum snúningi, 16. ... Rf6.

Sofia 2010; 12. einvígisskák:

Venselin Topalov - Wisvanathan Anand

Drottningarbragđ

1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 0-0 7. e3 Re4 8. Bxe7 Dxe7 9. Hc1 c6 10. Be2 Rxc3 11. Hxc3 dxc4 12. Bxc4 Rd7 13. 0-0 b6 14. Bd3 c5 15. Be4 Hb8 16. Dc2 Rf6 17. dxc5 Rxe4 18. Dxe4 bxc5 19. Dc2 Bb7 20. Rd2 Hfd8 21. f3 Ba6 22. Hf2 Hd7 23. g3 Hbd8 24. Kg2 Bd3 25. Dc1 Ba6 26. Ha3 Bb7 27. Rb3

Topalov vill ekki ţrátefla

27. ... Hc7 28. Ra5 Ba8 29. Rc4 e5 30. e4 f5 31. exf5??

Ótrúleg fífldirfska miđađ viđ hvađ mikiđ var undir. Hvítur heldur jafnvćginu međ 27. Rd2.

27. ...e4! 32. fxe4 Dxe4+ 33. Kh3 Hd4 34. Re3 De8! 35. g4 h5 36. h4 g5+ 37. fxg6

Hann gat einnig reynt 37. Kxg5 en svartur vinnur međ 37. ... Hg7+ 38. Kh4 hxg4 sem hótar m.a. 39. .... g3+.

37. ... Dxg6 38. Df1 Hxg4+ 39. Kh3 He7

Hótar 40. ... Hxe3+! 41. Hxe3 Hh4+! 42. Kxh4 Dg4 mát.

10-05-16.jpg( Sjá stöđumynd)

40. Hf8+ Kg7 41. Rf5+ Kh7 42. Hg3 Hxg3+ 43. hxg3 Dg4+ 44. Kh2 He2+ 45. Kg1 Hg2+ 46. Dxg2 Bxg2 47. Kxg2

Ţetta er alveg vonlaust en hinn kosturinn var tapađ peđsendatafl: 47. Hf7+ Kg6 48. Hg7+ Kxf5 49. Hxg4 hxg4! 49. Kxg2 Ke4 og svartur vinnur g3-peđiđ á leikţvingun, t.d. 50. Kf2 Kd3 51. b3 Kd2 52. Kf1 Ke3 53. Kg2 Ke2 54. Kg1 Kf3 55. Kh2 Kf2 o.s.frv.

47. ... De2+ 48. Kh3 c4 49. a4 a5 50. Hf6 Kg8 51. Rh6+ Kg7 52. Hb6 De4 53. Kh2 Kh7 54. Hd6 De5 55. Rf7 Dxb2+ 56. Kh3 Dg7!

- og Topalov gafst upp.

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í sunnudagsmogganum, 16. maí  2010.

Skákţćttir Morgunblađsins


Ađalfundur SÍ fer fram 29. maí

Ađalfundur Skáksambands Íslands 2010 fer fram 29. maí nk. í Faxafeni 12.  Fundurinn hefst kl. 10.    Forseti SÍ, Gunnar Björnsson, gefur kost á sér til endurkjörs.  Tveir stjórnarmenn, Magnús Matthíasson, núverandi varaforseti, og Stefán Freyr Guđmundsson, varastjórnarmađur, gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarmennsku.

Fjölda lagabreytingatillaga liggur fyrir og fylgja međ sem viđhengi.  Tillögurnar verđa auk ţess betur kynntar á Skákhorninu um helgina.

 


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Meistaramót Skákskóla Íslands

Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsáriđ 2009/2010 hefst föstudaginn 28. maí. Tefldar verđa sjö umferđir eftir svissneska kerfinu. Ţátttökurétt hafa allir nemendur skólans og allir ţeir sem tekiđ hafa ţátt í námskeiđum á vegum  skólans eđa hlotiđ ţjálfun á vegum skólans.  

Núverandi meistari Skákskólans er Sverrir Ţorgeirsson. 

Ţátttökuréttur:

  • Allir nemendur skólans og ţeir sem tekiđ hafa ţátt í námskeiđum á vegum skólans.
  • Ađ öđru leyti áskilur skólastjóri/mótsnefnd sér rétt til ađ bjóđa völdum einstaklingum til ţátttöku.

Dagskrá mótsins verđur međ eftirfarandi hćtti:

Umferđafjöldi: Sjö umferđir. Í ţrem fyrstu umferđunum verđa tefldar atskákir en fjórar lokaumferđirnar eru kappskákir.

 

Tímamörk: Atskákir 25 10  ţ.e 25 mínútur ađ viđćttum 10 sekúndum fyrir hvern leik. 

Kappskákir: 1 ˝ klst. á 30 leiki fyrir hvorn keppenda og síđan 15 10 til ađ ljúka skákinni ţ.e. 15 mínútur og 10 sekúndur í viđbót á hvorn leik

Fyrirkomulag: Svissneska kerfiđ.

Skákstig: Mótiđ verđur reiknađ til skákstiga, en ţrjár fyrstu umferđirnar til At-skákstiga.

Verđlaun:

A:

1. verđlaun:

Meistaratitill Skákskóla Íslands 2009/2010 og farandbikar. Einnig  flugfar m/Flugleiđum á Evrópuleiđ* og uppihalds kostnađi kr. 30 ţús.

2. verđlaun: Flugfarmiđi á leiđum Flugfélags Íslands innanlands.  

3. - 5. verđlaun: Vandađar skákbćkur.

Sérstök stúlknaverđlaun:

Farmiđi á leiđum Flugfélags Íslands innanlands.

 

Aldursflokkaverđlaun. 

1. Tvenn verđlaun fyrir ţá keppendur sem ná

bestum árangri í hópi 14 ára og yngri

2. Tvenn verđlaun fyrir ţćr

stúlkur sem bestum árangri ná í mótinu.

Verđlaun fyrir keppendur 12 ára og yngri.

1. - 3. verđlaun: Vandađar skákbćkur.

 

* Mótshaldarinn áskilur sér rétt til ađ finna hagstćđasta fargjald sem hćgt er ađ fá enda verđi tilkynnt um ferđir međ góđum fyrirvara. 

 

B:

 

Dagskrá:

  • 1. umferđ: Föstudagurinn 28.maí kl. 18  
  • 2. umferđ: Föstudagurinn 28.maí kl. 19
  • 3. umferđ. Föstudagurinn 28.maí kl. 20.
  •  
  • 4. umferđ: Laugardagurinn 29. maí kl. 10-14  
  • 5. umferđ: Laugardagurinn 29. maí 15 - 19
  •  
  • 6. umferđ: Sunnudagurinn 30. maí kl. 10.-14.
  • 7. umferđ: Sunnudagurinn 30. maí kl. 15-19.

 

* Hljóti einhver stúlka 1. eđa 2. verđlaun mun 2. sćti međal stúlkna gilda til sérstakra stúlknaverđlauna.

 

Verđlaunaafhending fer fram strax ađ móti loknu.

Ţátttöku skal tilkynna í síma SÍ 5689141 eđa á netfangiđ siks@simnet.is eđa helol@simnet.is

Mótsnefnd áskilur rétt til ađ gera breytingar á fyrirfram bođađri dagskrá.


Íslandsmót kvenna - a-flokkur

Íslandsmót kvenna 2010 - A flokkur fer fram dagana 10. - 16. júní n.k. og verđur teflt í Faxafeni 12, Reykjavík.  Gert er ráđ fyrir 8 - 10 manna lokuđum flokki.  Valiđ verđur eftir alţjóđlegum stigum ef fleiri en 10 gefa kost á sér.  Tvćr hafa ţegar unniđ sér ţátttökurétt: Lenka Ptacnikova sem Íslandsmeistari 2009 og Hrund Hauksdóttir sem sigurvegari B-flokks 2009.

Tímamörk:   90 mín. á fyrstu 40 leiki + 15 mín. til ađ ljúka skákinni + 30 sek. á leik.

Dagskrá:        

  • Fimmtud. 10. júní       kl. 18.00          1. umferđ
  • Föstud. 11. júní          kl. 18.00          2. umferđ
  • Laugard. 12. júní        kl. 11.00          3. umferđ
  • Laugard. 12. júní        kl. 17.00          4. umferđ
  • Sunnud. 13. júní         kl. 11.00          5. umferđ
  • Sunnud. 13. júní         kl. 17.00          6. umferđ
  • Mánud. 14. júní          kl. 18.00          7. umferđ
  • Ţriđjud. 15. júní          kl. 18.00          8. umferđ
  • Miđvikud. 16. júní      kl. 18.00          9. umferđ


Dagskrá breytist verđi keppendur fćrri en 9.

Verđlaun:       

  • 1. 40.000.-
  • 2. 25.000.-
  • 3. 15.000.-

Tilkynna skal ţátttöku til Skáksambands Íslands í síma 568 9141 eđa email: skaksamband@skaksamband.is fyrir 1. júní nk.


Íslandsmót kvenna - b-flokkur

Íslandsmót kvenna 2010 - B flokkur mun fara fram dagana 11. - 14. júní nk.  Teflt verđur í Faxafeni 12, Reykjavík og 1. umferđ hefst föstudaginn 11. júní kl. 18.00. 

Fyrirkomulag:  Tefldar verđa 7 umferđir (gćti breyst eftir fjölda ţátttakenda), 45 mín. + 30 sek. á leik.

Öllum stúlkum/konum er heimil ţátttaka.  Sigurvegari mótsins vinnur sér rétt til setu í A-flokki ađ ári.  Ţátttaka tilkynnist fyrir 5. júní í síma 568 9141 eđa međ tölvupósti- skaksamband@skaksamband.is


Heimsókn á Bitru

Ţeir Gunnar Björnsson, Magnús Matthíasson og Arnar Valgeirsson skruppu austur ađ Bitru á miđvikudaginn og fćrđu fyrirmyndarföngunum ţar ţrjú skáksett og klukkur auk nokkurra skákbóka.

Hrókurinn og Skáksamband Íslands fćrđu gjöfina í sameiningu.
Bitra er fyrir austan Selfoss og ţar eru tólf manns í afplánun, en verđa vćntanlega átján innan skamms, ţar sem tiltölulega stutt er síđan stađurinn var tekinn í gagniđ sem fangelsi. Ţar dvelja nú fyrirmyndarfangar enda engar girđingar, nema andlegar ţar sem ekki ţykir borga sig ađ fara í burtu í óleyfi.
 
Piltunum ţremur var tekiđ međ kostum og kynjum, bođiđ í kaffi og köku og svo var skellt í fjögurra umferđa mót ţar sem mönnum gekk misvel eins og gengur.
Tekiđ var loforđ af ţremenningunum um ađ koma aftur viđ fyrsta tćkifćri og endurtaka leikinn, enda nokkrir vaskir skákmenn ađ Bitru.

En allir voru sáttir og glađir, ţó kannski ekki allir ţví er forsetinn og varaforsetinn óku til Reykjavíkur til ađ ná á hrađskákmót öđlinga var svolítiđ dimmt yfir VP Magnúsi sem hugđi á grimmilegar hefndir ţađ kvöldiđ....

Jóhann í frambođi til stjórnar Evróska skáksambandsins

Jóhann HjartarsonStórmeistarinn Jóhann Hjartarson er í frambođi til stjórnar Evrópska skáksambandsins.    Jóhann er í  frambođsliđi forseta Ţýska skáksambandsins, Pr. Robert von Weizsäcker (sem er sonur fyrrverandi forseta Ţýskalands).  Ađrir í frambođsliđi Weizsäcker eru Nigel Short, Ivan Sokolov og Úkraínumađur (nafn óstađfest).  

Á blađamannafundi í Berlín í morgun, ţar sem ţessi tíđindi voru tilkynnt, voru m.a. Kasparov og Karpov viđstaddir.

Ađrir sem hafa lýst yfir frambođi í forsetastól ECU eru Boris Kutin, Slóveníu, núverandi forseti, Ali Nihat, forseti tyrkneska sambandsins og Silvio Danilov, varaforseti búlgarska skáksambandsins. 

Fréttin verđur uppfćrđ síđar í dag og myndir birtar. 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 144
  • Frá upphafi: 8765550

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 117
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband