12.2.2017 | 22:11
Guðmundur Peng sigurvegari á Bikarsyrpu helgarinnar
Fjórða mótið af fimm í Bikarsyrpu TR fór fram um líðandi helgi og sá hópur rétt um 30 glæsilegra skákkrakka um að halda uppi stemningunni í Skákhöll Taflfélags Reykjavíkur. Líkt og tvö undangengin mót skiptist mótahaldið upp í opinn flokk og stúlknaflokk. Í opna flokknum voru keppendur 25 talsins og var ánægjulegt að sjá hluta þeirra vera að spreyta sig í fyrsta sinn í Bikarsyrpunni ásamt þeim sem reyndari voru. Stúlknaflokkurinn samanstóð af fimm efnilegum skákstelpum þar sem ein leikskólamær lét sig ekki um muna að etja kappi við eldri og reyndari stúlkur.
Ekki var nóg með að barn á leikskólaaldri tæki þátt í stúlknaflokknum heldur var jafnaldri hennar á meðal þátttakenda í opna flokknum. Þau Jósef Omarsson og Wihbet Goitom Haile, sem bæði eru á sjötta aldursári, eiga sannarlega hrós skilið fyrir að taka þátt í skákmóti á borð við Bikarsyrpuna í ljósi ungs aldurs.
Þá að gangi mótsins. Sem fyrr segir voru keppendur 25 talsins og gaman var að sjá áframhaldandi aukningu í þátttöku óreyndari og stigalausra keppenda sem hafði fækkað nokkuð í liðnum mótum. Bikarsyrpan er nefnilega hugsuð fyrir byrjendurnir líka, þ.e. krakka sem hafa farið í gegnum fyrstu stig skákarinnar og langar að stíga næstu skref. Það er alls ekkert skilyrði að vera kominn með skákstig eða þá að vera útlærður í að skrifa niður skákirnar Bikarsyrpan er meðal annars hugsuð til þess að hjálpa hinum ungu skákmönnum við að öðlast meiri færni í þessum efnum.
Mörg börn sem þegar eru orðin margreynd á sviði skáklistarinnar mynduðu hóp þeirra sterkari í flokknum og var Daníel Ernir Njarðarson (1365) þeirra stigahæstur en hann er nú á sínu síðasta "löggilda" ári í Bikarsyrpunni þar sem framhaldsskólinn er handan við hornið. Næstir í röðinni, og nokkuð yngri, voru Guðmundur Peng Sveinsson (1267) og þá Kristján Dagur Jónsson og Árni Ólafsson, báðir með 1224 Elo-stig.
Það lá því fyrir hjá þeim sem til þekkja að baráttan yrði hörð, enda varð sú raunin. Í fyrstu umferð voru flest úrslit eins og búast mátti við en þó ber að nefna jafntefli Gylfa Más Harðarsonar við Árna þar sem Gylfi stóð síst lakar þegar þeir félagar slíðruðu sverðin. Gylfi sýnir skákgyðjunni mikinn áhuga og er það einungis tímaspursmál hvenær hann birtist á Fide-listanum góða haldi hann áfram góðri ástundun.
Í annarri umferð vann í öllum tilfellum sá stigahærri þann stigalægri og fjöldi spennandi viðureigna leit dagsins ljós hjá þeim keppendum sem státa ekki af alveg eins mikilli reynslu. Strax í þriðju umferð fóru sterkustu skákmennirnir að mætast þar sem m.a. Daníel Ernir hafði betur gegn Sindra Snæ Kristóferssyni (1207) og Guðmundur knésetti hina eitilhörðu Batel Goitom Haile (1205). Og já, Batel er eldri systir fyrrnefndrar Wihbet tvær svakalegar þar á ferð.
Guðmundur og Daníel leiddu því með fullt hús að loknum þremur umferðum og í fjórðu umferð mættust einmitt þeir félagar. Úr varð virkilega spennandi orrusta þar sem Daníel var skiptamun yfir í endatafli en vel staðsettir og snaróðir riddarar Guðmundar tryggðu honum jafntefli að lokum. Á sama tíma rann æði á Magnús Hjaltason (1205) sem sigraði Árna og þar með var sá fyrrnefndi kominn upp að hlið Guðmundar og Daníels með 3,5 vinning.
Á þessum tímapunkti var spennan strax orðin mjög mikil og stutt í næstu keppendur. Í fimmtu umferð lagði Daníel Magnús á meðan Guðmundur hafði betur gegn Adam Omarssyni (1070) og voru þeir því aftur orðnir einir efstir, nú með 4,5 vinning hvor. Fjórir keppendur önduðu ofan í hálsmál (þó ekki bókstaflega enda væri það furðulegt) þeirra og því ljóst að þeir máttu ekki misstíga sig.
Þá kom að sjöttu umferð sem reyndist í hæsta máta söguleg því hún bauð upp á eina lengstu baráttuna í sögu Bikarsyrpunnar. Var þar um að ræða rimmu Batel og Breiðablikspiltsins, Gunnars Eriks Guðmundssonar (1148). Þegar allt virtist stefna í sigur hinnar fyrrnefndu þar sem hvor keppanda hafði hrók og riddara en Batel tveimur peðum meira (að sjálfsögðu höfðu bæði kóng enda myndi annað ekki samrýmast alþjóðlegum skákreglum) var skyndilega komin upp jafnteflisleg staða eftir að Gunnar varðist vel og náði einu peði til baka.
Staðan fyrir lokaumferðina var því þannig að Guðmundur var einn efstur með 5,5 vinning en næstur með 4,5 vinning kom Daníel Ernir. Fimm keppendur fylgdu með 4 vinninga og því ljóst að allt gat gerst í lokaumferðinni. Í henni stýrði Guðmundur svarta liðinu gegn Árna og í tvísýnu endatafli lék Guðmundur af sér manni og gaf skákina í kjölfarið. Daníel Ernir gerði hinsvegar jafntefli við Gunnar Erik og því hélt Guðmundur efsta sætinu.
Guðmundur Peng sigraði því með 5,5 vinning en í öðru sæti með 5 vinninga varð Árni, jafnmarga vinninga og Daníel Ernir sem hlaut 3. sætið. Magnús lauk einnig leik með 5 vinninga en aðeins sjónarmunur var á þessum þremur eftir stigaútreikning.
Í stúlknaflokknum tefldu allar við alla og þar reyndist Iðunn Helgadóttir sterkust og vann alla sína andstæðinga. Í fyrstu umferð lagði hún hina ungu Wihbet en á sama tíma hafði Elsa Kristín Arnaldardóttir betur gegn Soffíu Berndsen. Önnur umferð fól í sér spennandi orrustu á milli Elsu og Iðunnar annarsvegar og hinsvegar Karenar Ólafar Gísladóttur og Soffíu. Svo fór að Iðunn og Soffía höfðu betur og voru því komnar í forystu. Í þriðju umferð sigraði Iðunn Karen en Elsa vann rimmuna við Wihbet. Iðunn landaði svo sigrinum í fjórðu umferð gegn Soffíu en í fimmtu og síðustu umferð tryggði Elsa sér annað sætið með sigri á Karen. Lokastaðan var sú að Iðunn hlaut efsta sætið með 4 vinninga, Elsa Kristín varð önnur með 3 vinninga og næst með 2 vinninga var Soffía.
Enn einu móti Bikarsyrpunnar er því lokið þar sem allir keppendur eiga það sameiginlegt að hafa verið iðnir við að stunda skákina og sækja skákæfingar. Slíkt skilar sér alltaf að lokum og erum við strax farin að hlakka til fimmta og síðasta móts syrpunnar sem fer fram helgina 17.-19. mars. Takk kærlega fyrir þátttökuna og sjáumst í mars!
Nánar á heimasíðu TR (myndskreytt frásögn)
Lokastaðan og öll úrslit (Chess-Results)
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 92
- Frá upphafi: 8778323
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.