Leita í fréttum mbl.is

Lenka vann í áttundu umferð

Lenka

Lenka Ptácníková (2259) vann Þjóðverjann Joern Borrink (2073) í áttundu og næstsíðustu umferð Czech Open, sem fram fór í Pardubice í Tékklandi í dag.  Henrik Danielsen (2526) gerði jafntefli við  rússneska FIDE-meistarann Ivan Bukavshin (2350).  Henrik hefur 4½ vinning og er í 90-.141. sæti en Lenka hefur 4 vinninga og er í 142.-197. sæti.   

Efstir með 6½ vinning eru stórmeistararnir Eldar Gasanov (2523), Úkraínu, og Dmitry Chuprov (2577) og Evgeny E. Vorobiov (2550), Rússlandi, Grzegors Gajewski (2575), Póllandi, og spænski alþjóðlegi meistarinn Marcos Llaneza (2468).

Í níundu og síðustu umferð, sem fram fer á morgun, teflir við Henrik við þýska stórmeistarann Lutz Espig (2346) en Lenka við bandaríska FIDE-meistarann Andrei Zaremba (2355).  

Alls tefla 339 skákmenn í efsta flokki Czech Open.  Þar á meðal 44 stórmeistarar, 5 stórmeistarar kvenna og 61 alþjóðlegur meistari.   Henrik er númer 21 stigaröðinni en Lenka númer 218. 

Czech Open


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 169
  • Frá upphafi: 8764612

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 133
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband