Leita í fréttum mbl.is

EM: Hannes og Héðinn unnu í fimmtu umferð

Hannes var sá eini sem lagði meistarannStórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2583) og Héðinn Steingrímsson (2551) sigruðu báðir í fimmtu umferð EM einstaklinga sem fram fór í dag í Plovdid í Búlgaríu.   Héðinn sigraði þýska FIDE-meistarann Gernod Bechhuis (2350) en Hannes vann Grikkjann Ioannis Georgiadis (2394).   Héðinn hefur 3 vinninga en Hannes hefur 2½ vinning.  

Efstur með fullt hús er ísraelski stórmeistarinn Emil Sutovsky (2630).   Í kvennaflokki er alþjóðlegu meistararnir Viktorija Cmilyte (2466), Litháen, og Ekaterina Kovalevskaya (2421), Rússlandi, efstar með 4½ vinning.

Í sjöttu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Héðinn við armenska stórmeistarann Gabriel Sargissian (2643) en Hannes við georgíska alþjóðlega meistarann Davit Magalashvili (2462).  Hvorugur verður í beinni útsendingu.    

Alls taka 336 skákmenn þátt í opnum flokki og þar á meðal 185 stórmeistarar!   Hannes er  92. stigahæsti keppandinn en Héðinn sá 130. í stigaröðuninni.    

EM einstaklinga

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 167
  • Frá upphafi: 8764610

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 131
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband