Leita í fréttum mbl.is

Björn sigraði stórmeistara - hálfum vinningi frá stórmeistaraáfanga

Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2390) sigraði rúmenska stórmeistarann Bela Badea (2495) í áttundu og næstsíðustu umferð alþjóðlega mótsins í Eforie í Rúmeníu.  Björn hefur 6 vinninga og er í 7.-13. sæti.  Björn þarf jafntefli í níundu umferð til að tryggja sér sinn fyrsta áfanga af stórmeistaratitli.  Þá teflir hann við rúmenska stórmeistarann Constantin Lupulescu (2593).    Skákin verður sýnd beint á vefsíðu mótsins og hefst kl. 13:30.

Mikael Jóhann Karlsson (1726) gerði jafntefli en Örn Leó Jóhannsson (1820) og Birkir Karl Sigurðsson (1442) töpuðu.    Mikael hefur 3,5 vinning, Örn hefur 3 vinninga og Birkir hefur 2 vinninga.

Ítalski stórmeistarinn Daniele Vocaturo (2493) er efstur með 7 vinninga.

181 skákmaður tekur þátt í þessu skákmóti.  Þar 17 stórmeistarar og 21 alþjóðlegur meistari.  Björn er númer 34 í stigaröð keppenda.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 26
  • Sl. sólarhring: 37
  • Sl. viku: 202
  • Frá upphafi: 8764604

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 163
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband