Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2015

Meistaramót Skákskóla Íslands hefst á föstudaginn - teflt í tveimur flokkum

Skákskóli ÍslandsMeistaramót  Skákskóla Íslands fyrir starfsárið 2014/2015 hefst föstudaginn 29. maí og lýkur 31. maí. Mótið fer fram í tveim styrkleikaflokkum og verður reiknað til alþjóðlegra og íslenskra stiga í báðum flokkunum.  Tímamörk eru þó mismunandi í flokknum.

Tefldar verða sex umferðir eftir svissneska kerfinu í báðum flokkum. 

Aðalstyrktaraðili mótsins að þessu sinni er GAMMA. 

Þátttökurétt hafa nemendur skólans og allir þeir sem tekið hafa þátt í námskeiðum á vegum skólans eða hlotið þjálfun á vegum skólans.  

Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). 

Að öðru leyti áskilur skólastjóri/mótsnefnd sér rétt til að bjóða völdum einstaklingum til þátttöku. 

 

Núverandi meistari  Skákskóla Íslands er Dagur Ragnarsson.   

Dagskrá mótsins verður með eftirfarandi hætti: 

Flokkur 1600 alþjóðleg elo – stig og ofar: 

  1. umferð: Föstudagurinn 29. maí kl. 16-20
  2. umferð: Föstudagurinn 29. maí kl. 20-00 
  1. umferð. Laugardagur 30. maí kl. 10-14
  2. umferð: Laugardagurinn 30. maí 15–19 
  1. umferð: Sunnudagurinn 31. maí kl.10-14
  2. umferð: Sunnudagurinn 31. maí kl.15-19 

Tímamörk í öllum umferðunum 90 30. 

Keppendur geta tekið ½ vinnings yfirsetu í fyrstu fjórum umferðunum en verða að tilkynna um yfirsetuna fyrir umferðina og áður en raðað er í næstu umferð.

Skákmenn sem eru með minna en 1600 elo- stig geta óskað eftir því að tefla í flokki stigahærri keppenda og mun mótsnefnd taka afstöðu til þess og skila niðurstöðu með góðum fyrirvara.   

Flokkur undir 1600– elo-stigum og stigalausir: 

  1. umferð: Föstudagurinn 29. maí kl. 18-20
  2. umferð: Föstudagurinn 29. maí kl. 20-22 
  1. umferð. Laugardagur 30. maí kl. 10-12
  2. umferð: Laugardagurinn 30. maí 15–17 
  1. umferð: Sunnudagurinn 31. maí kl. 10-12
  2. umferð: Sunnudagurinn 31. maí kl. 15-17

Tímamörk í öllum umferðunum 30 30.

Keppendur geta tekið ½ vinning yfirsetu í fyrstu fjórum umferðunum en tilkynna verður um yfirsetuna fyrir umferð og áður en raðað er í þá næstu.  

Verðlaun í flokki 1600 elo + 

  1. verðlaun: farmiði að verðmæti kr. 50 þús + uppihaldskostnaður á kr. 35 þús.
  2. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús. 
  3. – 5. sæti Vandaðar skákbækur.

Auk þess verða veitt stigaflokkaverðlaun í mótinu:

 

1800 – 2000 elo:

Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

 

1600-1800 elo:

Farmiði að verðmæti kr. 40 þús. 

Mótsstig úrskurða verði keppendur jafnir að vinningum nema í keppni um 1.  sæti. Þá skal teflt um titilinn Meistari Skákskóla Íslands 2015. 

Verðlaun í flokki 1600 elo og minna  og stigalausra: 

  1. verðlaun: farmiði að verðmæti kr. 40 þús:
  2. – 3. verðlaun: vandaðar skákbækur að eigin vali.

Hægt að sækja um styrki til SÍ til 31. maí

Þann 31. maí rennur út umsóknarfrestur um styrki til stjórnar SÍ. Styrktarreglur sambadnsins má nálgast hér að neðan:

Styrkjareglur SÍ

Aðalmarkmið styrkveitinga stjórnar Skáksambands Íslands til einstaklinga er að styðja við bakið á þeim skákmönnum sem sýnt hafa mestar framfarir, metnað og ástundun á síðustu 12 mánuðum, og þykja því líklegastir til að ná enn lengra í nánustu framtíð. Einnig er markmiðið að verðlauna fyrir afburðaárangur og hvetja þannig til afreka.

Styrkjum frá SÍ er ekki ætlað að styrkja hinn almenna skákáhugamann til farar erlendis, heldur einungis þá sem þykja skara fram úr. Sérstök áhersla er lögð á yngri skákmenn sem eru tilbúnir til að leggja á sig þjálfun til að standa sig á þeim mótum sem styrkbeiðni liggur fyrir um. 

Við allar úthlutanir á að vera lögð áhersla á jafnrétti kynjanna og að þeim stúlkum sem skarað hafa fram úr í hverjum aldursflokki sé gert kleift að afla sér reynslu á skákmótum erlendis til jafns á við stráka. Sams konar kröfur um ástundun, árangur og framfarir eru hins vegar gerðar til stúlkna og drengja, kvenna og karla, hvað styrkjaúthlutanir varðar

Viðmið við styrkúthlutanir

1.     Allir styrkþegar SÍ (ungir, alþjóðlegir og aðrir) þurfa að uppfylla eftirfarandi þrjú skilyrði:

  • Hafa teflt 50 kappskákir á síðustu 24 mánuðum fyrir árið 2010 og 60 skákir fyrir árið 2011 og síðar.
  • Hafa sýnt umtalsverðar framfarir á sl. 12 mánuðum, sem sjáist m.a. á árangri á skákmótum ársins, hækkun skákstiga og reglulegri þjálfun.
  • Hafa sýnt virkni í skákmótum innanlands.

2.     Ungir skákmenn (25 ára og yngri) hafa forgang þegar kemur að úthlutun ferðastyrkja. Eftirfarandi börn og unglingar njóta sérstaks forgangs:

  • Undir 12 ára: 2 stigahæstu og/eða þeir sem hækkað hafa mest á stigum undanfarna 12 mánuði (bæði í stráka- og stúlknaflokki)
  • 12-16 ára: 2 stigahæstu og/eða þeir sem hækkað hafa mest á stigum undanfarna 12 mánuði (bæði í stráka- og stúlknaflokki)
  • 16-20 ára: 2 stigahæstu og/eða þeir sem hækkað hafa mest á stigum undanfarna 12 mánuði (bæði í stráka- og stúlknaflokki)
  • 20-25 ára: 2 stigahæstu og/eða þeir sem hækkað hafa mest á stigum undanfarna 12 mánuði (bæði í stráka- og stúlknaflokki)

3.     Alþjóðlegir meistarar geta fengið ferðastyrki frá SÍ óháð aldri.

4.     Þeir sem þiggja stórmeistaralaun geta ekki fengið almenna ferðastyrki frá SÍ.

5.     Aðrir skákmenn geta fengið ferðastyrki ef þeir ná árangri sem samsvarar 2350 stigum eða meira ("performance") í móti sem styrkur er sóttur um. Ákvörðun um styrkveitingu er tekin eftir mót.

Umsóknareyðublöð og skil 

Allir sem sækja um styrk til SÍ þurfa að leggja fram umsókn á þar til gerðu rafrænu eyðublaði.

Rafræna eyðublaðið

Þar á að koma fram hvers vegna tiltekið skákmót er valið og hvers vegna viðkomandi telur að hann hafi rétt á styrk frá SÍ skv. ofangreindum skilyrðum.

Í umsókninni skal lögð fram æfingaáætlun þar sem þjálfun fyrir tiltekið mót og þátttaka á skákmótum næstu 3 mánuði er skýrð.

Ef umsókn er ófullnægjandi og ekki skilað á þann hátt sem að ofan greinir, er henni sjálfkrafa vísað frá. 

Styrkir SÍ eru afgreiddir þrisvar sinnum á ári. 10. febrúar, 10. júní og 10. október. Sækja þarf um styrkina í lok mánaðarins á undan. Ætlast er til að sótt sé um styrki áður en haldið er mót en ef góðar aðstæður valda því að sótt er um eftir á er tekið tillit til þess.

Sérstök styrkjanefnd, skipuð af stjórn SÍ, fer yfir allar umsóknir og gerir tillögur til stjórnar um afgreiðslu styrkja hverju sinni. 


Að jafnaði getur enginn fengið meira en 60.000 krónur á ári í styrk frá SÍ, nema þegar hann er fulltrúi Íslands á alþjóðlegum mótum erlendis. Ef einhver þykir skara sérstaklega fram úr á sl. 12 mánuðum er þó hægt að gera undantekningu á þessari reglu og hækka árlegan styrk til viðkomandi aðila. 

Skyldur styrkþega gagnvart SÍ: 

Að loknu móti skulu styrkþegar senda stutta frásögn til styrkjanefndar og skýra skák frá mótinu sem þeir hlutu styrk til að taka þátt í. Styrkjanefnd mun síðan birta greinina í einhverjum miðli skákhreyfingarinnar.

Ef stjórn SÍ fær áreiðanlegar upplýsingar um ósæmilega og vítaverða hegðun styrkþega á skákstað (t.d. áfengisnotkun á meðan á móti stendur) og ef styrkþegi hættir á skákmóti án löglegra forfalla, mun viðkomandi vera sviptur þeim styrk sem honum var veittur. Viðkomandi mun auk þess ekki koma til greina við úthlutun styrkja SÍ næstu 12 mánuði.

Styrkir eru borgaðir út eftir að skákmóti lýkur, þegar ljóst er að skyldur styrkþega hafa verið uppfylltar. 

 


Skákþáttur Morgunblaðsins: Hannes Hlífar með vinnings forskot - teflir við Jóhann í dag

P1040261Íslandsmeistarinn frá því í fyrra GuðHannes Hlífar Stefánsson hefur náð eins vinnings forystu í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands sem nú stendur yfir í sal Hörpunnar, Háuloftum. Hannes hefur hlotið 3 ½ vinning en næstir koma Hjörvar Steinn Grétarsson, Héðinn Steingrímsson og Henrik Danielsen með 2 ½ vinning. Baráttan hefur verið afar frískleg og jafnteflishlutfall lágt eða 33% en reglur keppninnar leyfa ekki að samið sé um jafntefli eftir innan við 30 leiki. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem vann Jóhann Hjartarson með góðri taflmennsku í 2. umferð, gat náð efsta sætinu þegar hann tefldi við Lenku Ptacnikovu í 3. umferð en lék af sér hrók í vænlegri stöðu og tapaði. Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason, sem tefldu á Íslandsþinginu síðast á tíunda áratug síðustu aldar, unnu báðir í gær og eru með 2 vinninga hvor. Æfingaleysi hefur lítillega gert vart við sig hjá þeim báðum; þannig missti Jóhann vinningsstöðu niður í tap í skák sinni við Braga Þorfinnsson í 3. umferð en eins og sakir standa eru þeir til alls líklegir á lokasprettinum. Keppendur eru 12 talsins og tefla allir við alla.

Skák Héðins og Hannesar Hlífars í 3. umferð var fyrirfram talin geta haft mikil áhrif á það hvernig baráttan um Íslandsmeistaratitilinn þróast. Á Íslandsþinginu fyrir ári vann Héðinn innbyrðis viðureign þeirra en nú snerist taflið við, Hannes tefldi af miklum krafti og vann sannfærandi sigur:

Skákþing Íslands 2015; 3. umferð:

Héðinn Steingrímsson – Hannes Hífar Stefánsson

Nimzo-indversk vörn

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 O-O 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 b5 7. cxb5 a6!?

Peðsfórnin í 6. leik er vel þekkt en svartur fygir henni yfirleitt eftir með því að leika 7. ... c6. Leikurinn virtist ekki koma Héðni mikið á óvart því hann svaraði að bragði.

8. f3 Rd5 9. Dd2 f5 10. e3 f4 11. e4?

Óákvæmur leikur. Eftir 11. exf4! Rxf4 12. Df2 er hæpið að svartur hafi nægar bætur fyrir peðið.

11. ... Re3! 12. Df2 Rxf1 13. Dxf1 d5 14. e5 axb5 15. b4 

15. ... c5! 16. dxc5 Rc6 17. Bb2 Hf5 18. Re2 Rxe5 19. Rxf4 Rc4 20. Rd3 e5!

Hótar 21. ... e4. Þungu fallstykki hvíts standa nú öll uppi í borði.

21. g4 Hf8

21. ... e4!? var freistandi en þessi leikur er öruggari þar sem hvítur getur varist með 22. gxf5 exd3 23. O-O-O! o.s.frv.

22. Bxe5 Rxe5 23. Rxe5 Dg5 24. Rd3 Bxg4 25. f4 Dh6

Góður reitur fyrir drottninguna sem hefur auga með f4-peðinu en 25. ... Hfe8+ 26. Kd2 Df5! vinnur strax því 27. He1 er svarað með 27. ... He4! o.s.frv.

26. Kd2 Bf5 27. h4 d4 28. Df3 Had8 29. Hhf1?

Meira viðnám veitti 29. Hae1.

29. ... Hfe8!

Og hvítur á enga vörn við hótuninni 30. ... He3.

30. Df2 He3 31. Rc1 De6 32. Hg1 He8 33. Df1 De4 34. Ha2 Hc3 35. Re2 Dd3 36. Dd3+

- og gafst upp um leið.

Fimmta umferð hefst kl. 17 í Hörpu í dag og þá teflir Jóhann Hjartarson við Hannes Hlífar, Hjörvar Steinn við Braga Þorfinnsson, Héðinn við Sigurð Daða, Einar Hjalti við Henrik Danielsen, Jón L. við Guðmund Kjartansson og Lenka við Björn Þorfinnsson.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.  

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 18. maí 2015.

Skákþættir Morgunblaðsins


Firmakeppni SA: Efling öflugust

Þegar júróvísjonaðdáendur sátu sem fastast við skjáinn á fimmtudagskvöldið til að fylgjast með hvort Ísland kæmist í úrslit öttu skákmeistarar kappi hver við annan í Íþróttahöllinni. Þar fór fram lokaumferðin í Firmakeppninni. 12 fyrirtæki höfðu unnið sér inn þátttökurétt í mótinu í sex undanrásum. Mótið var jafnt og sterkt. Enginn keppandi hlaut fullt hús og allir komust á blað.

Bestum árangri náði sjúkraþjálfunin Efling en Jón Kristinn Þorgeirsson tefldi fyrir það fyrirtæki. Tapaði hann aðeins einni skák en lagði aðra andstæðinga.

Öllum fyrirtækjum sem tóku þátt í firmakeppninni er hér með þakkað fyrir stuðninginn og Eflingu er óskað til hamingju með sigurinn.

Staða efstu átta fyrirtækjanna var sem hér segir:

  1. Efling, sjúkraþjálfun (Jón Kristinn Þorgeirsson)
  2. Rarik (Áskell Örn Kárason)

3.-4.Litla saumastofan (Sigurður Arnarson) og Krua Siam (Haraldur Haraldsson)

5.-6. Kraftbílar (Þór Valtýsson) og SBA (Sveinbjörn Sigurðsson)

  1. Kaffibrennslan (Kristinn P. Magnússon)
  2. Landsbankinn (Smári Ólafsson)
  3. -12. Rafeyri, Securitas, Olís og Tengir.

 


Vorhraðskákmót Ása fer fram á morgun

Æsir, skákfélag eldri borgara í Reykjavík halda sitt vorhraðskákmót á morgun þriðjudag kl 13.00 í Stangarhyl 4. Allir skákmenn, karlar 60+ og konur 50+ velkomnir. Tefldar verða níu umferðir með sjö mín. umhugsunartíma. 

Þá verða afhent verðlaun fyrir samanlagðan árangur á öllum skákdögum vetrarins.

Í tilefni dagsins höfum við kaffi hlé  og fáum okkur kaffi og með því hjá henni Hallfríði kaffikonunni okkar.


Héðinn Steingrímsson Íslandsmeistari í skák eftir sannfærandi sigur á Hjörvari

Hjörvar og Héðinn

Héðinn Steingrímsson er Íslandsmeistari í skák 2015 eftir sannfærandi sigur á Hjörvari Steini Grétarssyni í lokaumferð Íslandsmótsins í skák sem fram fer í Hörpu í dag. Héðinn hlaut 9,5 í 11 skákum sem er frábært skor í svo sterku móti. Frammistaða hans samsvaraði 2763 skákstigum og hækkar hann um 29 skákstig fyrir hana. Héðinn vann sjö síðustu skákirnar!

Ingvar Þór Jóhannesson skýrir skákina á ensku á heimasíðu mótsins.

Þetta er þriðji Íslandsmeistaratitill Héðins. Hann vann fyrst mótið árið 1990, sem þá fór fram í Höfn í Hornafirði, þá aðeins 15 ára. Það er met sem enn stendur og verður seint slegið. Hann endurtók leikinn árið 2011 á Eiðum. 

Hjörvar Steinn hlaut 8 vinninga og varð annar. Mjög góður árangur hjá Hjörvari einnig. Átta vinningar hafa oft dugað til vinnings á Íslandsmótinu en svo varð ekki í ár. 

Hannes Hlífar Stefánsson og Jón L. Árnason urðu jafnir í 3.-4. sæti með 6,5 vinning. Það er þegar ljóst þótt enn sé tveimur skákum ólokið í umferðinni. Mjög góður árangur hjá Jóni sem var að tefla á sínu fyrsta Íslandsmóti í 24 ár! Hannes, sem er sigursælastur allra í sögu Íslandsmótanna með 12 titla, hefði örugglega vilja gera betur. Hann var þó sá eini sem vann Héðin.

Einar Hjalti Jensson varð fimmti með 6 vinninga. Afar góður árangur hjá honum sem tryggði sér þar með sinn lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli.

Lokahóf mótsins fer fram í Smurstöðinni í Hörpu og verður milli 19-21 í kvöld. Þangað eru allir 18 og eldri velkomnir til að fagna nýjum Íslandsmeistara og til að hitta aðra skákáhugamenn og gera sér góðan dag. Tilboðsverð á barnum fyrir þá sem það kjósa. 

Ítarleg umfjöllun um Íslandsmótið verður í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.


Lokaumferðin hefst kl. 13 - hrein úrslitaskák Héðins og Hjörvars

Lokaumferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 13 í dag. Héðinn Steingrímsson er efstur með 8,5 vinning og Hjörvar Steinn Grétarsson er annar með 8 vinninga. Þeir mætast í dag í hreinni úrslitaskák og stýrir Hjörvar hvítu mönnunum. Hjörvar þarf sigur til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en Héðni dugar jafntefli.

Skákáhugamenn er hvattir til að fjölmenna í Hörpu og fylgjast með.

Hægt er að fylgjast með skákinni beint hér (með vefmyndavél)

Lokahóf mótsins fer fram í Smurstöðinni í Hörpu og verður milli 19-21 í kvöld. Þangað eru allir 18 og eldri velkomnir til að fagna nýjum Íslandsmeistara. Tilboðsverð verða á barnum fyrir skákáhugamenn.

 

 


Skákþáttur Morgunblaðsins: Jóhann, Hjörvar og Héðinn hófu Íslandsmótið með sigri

Íslandsmeistarinn frá því í fyrra Guðmundur Kjartansson hóf titilvörn sína með því að gera jafntefli við Henrik Danielsen í 1. umferð Íslandsmótsins sem hófst í Hörpu á uppstigningardag. Sigur Guðmundar í fyrra kom verulega á óvart og hann er til alls vís í keppni landsliðsflokksins í ár. Mótið í ár vekur einkum athygli fyrir þátttöku Jóhanns Hjartarsonar og Jóns L. Árnasonar sem hefja þarna undirbúning sinn fyrir EM landsliða sem fram fer hér á landi í nóvember. Þegar dregið var um töfluröð varð útkoman þessi:

1. Henrik Danielsen 2. Sigurður Daði Sigfússon 3. Jón L. Árnason 4. Héðinn Steingrímsson 5. Einar Hjalti Jensson 6. Jóhann Hjartarson 7. Lenka Ptacnikova 8. Hjörvar Steinn Grétarsson 9. Bragi Þorfinnsson 10. Björn Þorfinnsson 11. Hannes Hlífar Stefánsson 12. Guðmundur Kjartansson.

Jóhann, Héðinn og Hjörvar unnu fremur auðvelda sigra í 1. umferð en Hannes Hlífar lenti í tapstöðu:

Daði-Hannes

Sigurður Daði Sigfússon – Hannes Hlífar Stefánsson

Hér at hvítur gert út um taflið með 21. Rxh7+ Kc7 22. Bf6 Hg8 23. De2! Kannski hefur Sigurður ekki tekið eftir því að leiki svartur 23.... Dg4 er hægt að taka riddarann á e5 með skák. Hann valdi hinsvegar að þráleika með 21. Rg4+ Ke8 22. Rf6+ Kd8 23. Rg4+ og nagar sig sennilega í handarbökin fyrir það.

Því er við að bæta að Friðrik Ólafsson, sem skoðaði þessa stöðu heima hjá sér, kom strax auga á leik sem „skákreiknarnir“ voru ekki með: 21. De2! Eftir 21. ... h6 22. Be3 Db4 á hvítur nokkra góða kosti t.d. 23. Hf4! Db8 24. Bc5! Rd7 25. Hd4 og vinnur. Það sem er athyglisvert við þessa stöðu að svartur getur bókstaflega engu leikið, t.d. 25. ... Dc7 26. De1! og drottningin er á leið til b4 eða h4.

Aðstæður á 8. hæð Hörpunnar eru prýðilegar með stórfenglegu útsýni yfir Faxaflóann, Esjuna, Akrafjall og Skarðsheiði. Aðstaðan er hinsvegar óviðunandi frá sjónarhóli áhorfenda þar sem einungis eru sýndar fjórar skákir á sýningartjaldi {Aths. ritstj. - átti aðeins við í fyrstu umferð vegna tæknimála - eftir það voru allar skákir sýndar). Vonandi bætir mótshaldarinn úr því. Hinsvegar er hægt er að fylgjast með öllum skákum í beinni útsendingu á netinu.

Alls hafa fimm þátttakendur einhvern tímann orðið Íslandsmeistarar. Hjörvar Steinn Grétarsson sem er 22 ára gamall hefur nokkrum sinnum reynt og kannski kemur röðin að honum í ár. Ef ekki þá er bara að vera þolinmóður; sá sem á flesta titla, Hannes Hlífar Stefánsson, varð Íslandsmeistari fyrst í tólftu tilraun. Hjörvar vann sannfærandi sigur á Einari Hjalta sem kom inn í mótið á síðustu stundu en Þröstur Þórhallsson og Stefán Kristjánsson hættu við þátttöku:

Skákþing Íslands 2015; 1. umferð:

Einar Hjalti Jensson – Hjörvar Steinn Grétarsson

Hollensk vörn

1. d4 f5 2. c4 d6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3 g6 5. g3 Bg7 6. Bg2 0-0 7. 0-0 c6

Leningrad-afbrigði Hollensku varnarinnar nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir. Svona tefldi Shkariyar Makedyarov á Reykjavíkurskákmótinu í vetur.

8. b3 Ra6 9. Bb2 Dc7 10. d5 e5 11. dxe6 Bxe6 12. Rg5 Hae8 13. Rxe6 Hxe6 14. Dc2 Rc5 15. e3 Rfe4 16. Re2 Hee8 17. b4?

Ekkert lá á þessum leik. Gott er 17. Hfd1 eða 17. Rd4.

17.... Bxb2 18. Dxb2 Rd3! 19. Da3 Re5 20. Hfd1 Rxc4 21. Dxa7 d5 22. Dd4 Ra3 23. Hdc1 De7 24. Rf4 Ha8 25. Rd3 Rb5 26. Db2 Ha3!

Lokar á framrás a-peðið og nær yfirráðum yfir a-línunni.

27. Re1 Dg7 28. Dxg7 Kxg7 29. Rc2 Ha4 30. Bf1 Rbc3 31. Rd4 Hfa8

Einar-Hannes32. f3

Hann varð að reyna 32. b5.

32.... Hxa2 33. fxe4 Hxa1 34. Hxc3 fxe4 35. Kg2 H8a3 36. Hxa3 Hxa3 37. Kf2 Kf6 38. Be2 Ha2

Með tvö peð yfir á hrókurinn alls kostar við léttu menn hvíts.

39. b5 c5 40. Rb3 b6 41. Kf1 Hb2 42. Bd1 Hxh2 43. Be2 Hh1 44. Kf2 Hb1 45. Rd2 Hb2 46. Ke1 Ke5 47. Kd1 c4

– og hvítur gafst upp.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.  

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 16. maí 2015.

Skákþættir Morgunblaðsins


Héðinn með hálfan vinning í forskot - hrein úrslitaskák á morgun!

HéðinnStórmeistarinn Héðinn Steingrímsson hefur hálfan vinning í forskot á sinn helsta keppninaut, Stórmeistarann Hjörvar Stein Grétarsson fyrir síðustu umferð Íslandsmótsins í skák.

Héðinn vann í dag mjög góðan sigur á Lenka Ptacnikovu þar sem hann fórnaði peði fyrir mjög sterk færi og tefldi framhaldið af miklum krafti og vann sér inn vinning.

Á sama tíma lenti Hjörvar Steinn Grétarsson snemma í vandræðum og varð að lokum að gefa skiptamun gegn Jóni L. Árnasyni. Jón pressaði af krafti lengi vel en Hjörvar varðist af hörku. Varð úr að Jón náði ekki að gera sér liðsmuninn að góðu og jafntefli varð niðurstaðan eftir mikla baráttuvörn hjá Hjörvari.

Þessi niðurstaða þýðir einfaldlega að við fáum frábæra úrslitaskák á morgun þar sem Hjörvar stýrir hvítu mönnunum gegn Héðni og þarf að vinna til að tryggja sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Augljóslega mun önnur úrslit þýða að Héðinn verður Íslandsmeistari í þriðja skipti!

Skákirnar verða í beinni útsendinu á heimasíðu mótsins en jafnframt verður hægt að nálgast útsendingu vefmyndavélar frá skák þeirra félaga á heimasíðu mótsins. Við hvetjum samt sem flesta að mæta í Hörpuna og upplifa þessa miklu baráttu um titilinn!

Af öðrum skákum var það að frétta að Björn Þorfinnsson náði fram grimmilegum hefndum fyrir bróður sinn Braga. Björn var með algjörlega og gjörsamlega gjörtapað tafl en á einhvern óskiljanlegan hátt lék Henrik grátlega af sér og tapaði drottningunni. Henrik sá engu að síður spaugilegu hliðina á afleik sínum og gat ekki annað en hlegið eins og sást í beinni netútsendingu!

Bragi Þorfinnsson varð að draga sig úr leik vegna fjölskylduaðstæðna þannig að Sigurður Daði fékk frían vinning í umferð dagsins.

Guðmundur Kjartansson stóð mjög lengi höllum fæti gegn Hannesi Hlífari en eygði von þegar hann krafðist jafnteflis þegar hann taldi að sama staðan hefði komið upp þrisvar. Sú krafa reyndist ekki réttmæt en sem betur fer fyrir Guðmund varð jafntefli engu að síður niðurstaðan nokkrum leikjum síðar.

Miklar sviptingar voru einnig í skák hins nýbakaða alþjóðlega meistara Einars Hjalta Jenssonar og Jóhanns Hjartarsonar. Staðan var lengi vel í jafnvægi en Jóhann seldi sig dýrt við að reyna að knýja fram vinning. Á einum tímapunkti gekk það svo langt að staða hans var töpuð en Einar missti af tækifærinu og fékk þess í stað tapað tafl. Mikilvægur sigur fyrir Jóhann sem hafði tapað ótrúlegum fjórum skákum í röð.

Lokaumferðin hefst eins og áður segir klukkan 13:00 á 8. hæð í Hörpunni. Við hvetjum sem flesta til að mæta og kíkja á úrslitaskákina á morgun. Heitt á könnunni sem fyrr.

Standings_Rd10


Hjörvar og Héðinn enn jafnir eftir níu umferðir

hjorvar_sigurdur.jpg

Stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson og Héðinn Steingrímsson slást enn um sigurinn á Íslandsmótinu í skák. Þeir eru í forystu á mótinu með 7,5 vinning af 9 mögulegum eftir umferð kvöldsins og næstu menn hafa 5 vinninga og geta ekki náð þeim að vinningum.

Hjörvar var fyrri til að leggja sinn andstæðing með snörpum sigri á Sigurði Daða Sigfússyni. Hjörvar fórnaði skiptamun fyrir góða sókn og Sigurður lék mjög illa af sér í kjölfarið og varð að leggja niður vopn.

Skák Héðins varð öllu meira spennandi. Héðinn stýrði svörtu gegn Jóhanni Hjartarsyni og úr varð snarpur slagur í Sikileyjarvörn. Jóhann virtist standa ögn betur á stórum köflum í skákinni og hafði peði yfir og betri tíma. Héðinn hafði hinsvegar sín færi og smátt og smátt saxaði á tíma Jóhanns. Jóhann opnaði kóngsstöðu sína þegar hann var kominn með verri tíma og lenti í erfiðleikum sem hann hafði ekki tíma til að glíma við.

Jón Loftur Árnason vann sína aðra skák í röð er hann þjarmaði jafnt og þétt að Lenku Ptacnikovu sem er annars búin að eiga gott mót. Jón náði með því Hannesi að vinningum og er í 3-4. sæti. Jón og Lenka verða bæði í eldlínunni á morgun þegar þau etja kappi við forystusauðina. Jón L. hefur hvítt á Hjörvar á meðan Héðinn stýrir hvítu gegn Lenku.

Af öðrum skákum má nefna að Björn Þorfinnsson og Hannes Hlífar gerðu tíðindalítið jafntefli en þeir Henrik Danielsen og Einar Hjalti Jensson unnu sigra og bættu stöðu sína í mótinu. Henrik hafði betur gegn Bragi Þorfinnssyni eftir að hafa haft gjörtapað tafl en Einar tefldi góða skák gegn Guðmundi Kjartanssyni.

Sigurinn tryggði jafnframt Einari Hjalta alþjóðlegan meistaratitil en hann náði með þessum úrslitum sínum síðasta áfanga að titlinum og hafði þegar náð tilsettu stigalágmarki. Skak.is óskar Einari innilega til hamingju með þennan árangur!

Standings_Rd9

Fjörið og spennan heldur áfram um helgina. Mikil dramatík hefur verið í mörgum skákum og ljóst er að þeir Hjörvar og Héðinn mun þreyta úrslitaskák á sunnudeginum sama hvernig fer á laugardeginum. Við minnum að gefnu tilefni á að umferðir hefjast klukkan 13:00 um helgina. Heitt er á könnunni og útsýnið fallegt á 8. hæð í Hörpunni!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 174
  • Frá upphafi: 8764617

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 138
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband