Leita í fréttum mbl.is

Að bæta úr skák - Viðtal við Hermann Aðalsteinsson

Eftirfarandi viðtal eftir Orra Pál Ormarsson við Hermann Aðalsteinsson, formann Skákfélagsins Hugins, birtist í sunnudagsmogganum 10. maí sl.

-----------

Hermann bóndi með bikarinn

Árið 2005 stofnaði Hermann Aðalsteinsson, fiskeldisfræðingur og bóndi, ellefu manna skákfélag norður í Reykjadal. Áratug og tveimur sameiningum síðar telur félagið 370 manns og fagnaði á dögunum sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli. Hermann er að vonum að rifna úr stolti yfir þessum góða árangri skákfélagsins Hugins og lofar að áfram verði teflt til sigurs, auk þess sem hlúð verði vandlega að grasrótinni. 

Skákfélagið Huginn reit nafn sitt á rollu íslenskrar skáksögu með sigri á nýloknu Íslandsmóti skákfélaga. Fylgt var fimm ára búnaðaráætlun Hermanns Aðalsteinssonar, fjárbónda og formanns félagsins, er hann lagði fram á skerplu árið 2010, ásamt 200 lausavísum um strategíska hugsun í skák og ágæti framsóknarmennsku. Fengu sauðamenn í sveit Goðans sáluga skýr fyrirmæli um að hampa sigurverðlaunum á Íslandsmótinu á 10 ára afmæli félagsins árið 2015, félaginu til framdráttar og Framsóknarflokknum til dýrðar, auk þess sem þeim var gert að læra lausavísurnar utanbókar. Hermann vissi sem var að á tímum endalauss bölmóðs og upphafningar lágmenningar með gosi í Eyjafjallajökli í ofanálag, væri nauðsyn að blása liðsmönnum nýjum metnaði í brjóst.“

Þannig kemst einn félagsmanna í skákfélaginu Hugin, Jón Þorvaldsson, að orði í pistli á heimasíðu félagsins, skakhuginn.is, í tilefni af fræknum sigri Hugins á Íslandsmóti skákfélaga fyrr í vor.

Hermann Aðalsteinsson mætir sjálfur í Hádegismóa til að gera grein fyrir afrekinu – vopnaður einhverjum stærsta bikar sem ég hef um ævina séð. Ekki svo að skilja að formaður Hugins beri bikarinn með sér allt sem hann fer, hann var beðinn um mæta með hann í viðtalið vegna myndatökunnar. Hermann býr norður í Reykjadal en er staddur í stuttri heimsókn hér syðra. Sonur hans, Jón Aðalsteinn, er að taka þátt í skákmóti á Selfossi. Eins og þeir feðgar færa taflmennina, færa taflmennirnir þá. 

Tefldi mikið í grunnskóla

Hermann er fæddur árið 1968 og ólst upp í Bárðardal. Faðir hans kenndi honum ungum mannganginn og tefldi Hermann töluvert í æsku, ekki síst eftir að hann hóf nám við lítinn heimavistarskóla í sveitinni. „Það voru engar tölvur á þeim tíma og fyrir vikið var mikið teflt í frístundum og spilaður fótbolti,“ segir Hermann en eftir það vék skákin fyrir öðrum hugðarefnum, námi og starfi. 

Það var síðan fyrir rúmum áratug að Hermann vakti taflmennina upp af værum blundi. Hann var þá sestur að í Reykjadal og uppgötvaði sér til ánægju að fleiri skákáhugamenn voru í sveitinni. „Við byrjuðum að hittast hálfsmánaðarlega, einhverjir átta karlar og héldum æfingar og mót fyrir okkur sjálfa. Þetta var árið 2004 og ári síðar stofnuðum við formlegt félag sem nefnt var Goðinn,“ segir Hermann.

Spurður um nafngiftina upplýsir Hermann að hópurinn hafi komið saman í nágrenni Goðafoss og þangað sé nafnið sótt. „Það er nú ekki flóknara,“ segir hann brosandi. Fyrir sex árum flutti hópurinn sig yfir til Húsavíkur, þar sem teflt er í húsakynnum verkalýðsfélagsins Framsýnar.

Tíu meðlimi þarf til að fá aðild að Skáksambandi Íslands og Hermann og félagar ákváðu að hafa vaðið fyrir neðan sig, ellefu menn stofnuðu félagið. „Ég átti svo sem ekki von á því að við yrðum teknir gildir en við fengum aðild,“ segir hann.

Við þetta færðist líf í tuskurnar og Hermann fór að leita uppi menn nyrðra sem höfðu verið að tefla áður fyrr. Það gekk svona og svona. „Ég komst að því að sumir voru dánir og aðrir fluttir burt en fann þó fjóra eða fimm menn á Húsavík sem mér tókst að plata til að byrja aftur að tefla. Ég vissi að félagið myndi fljótt deyja drottni sínum tækist okkur ekki að auka breiddina. Sem betur fer tókst það en af þessum ellefu stofnfélögum Goðans erum við bara tveir virkir í dag.“ 

Nýliðun og heimasíða

Hermann gerði sér grein fyrir því að ekki væri nóg að draga gamlar kempur á flot, heldur yrði að tryggja stöðuga nýliðun. Þess vegna efndi hann til námskeiða í grunnskólum, á Húsavík, Laugum og Stórutjörnum, og sinnir því starfi enn. „Til að byrja með var lítið kennsluefni til en það hefur lagast, þökk sé Smára Rafni Teitssyni, skákmanni frá Akureyri.“ 

Næsta verkefni Goðans var að opna heimasíðu og var það gert gegnum Moggabloggið á mbl.is. „Þá fór boltinn að rúlla fyrir alvöru,“ segir Hermann en bloggið vakti greinilega athygli – og það í öðrum landsfjórðungum.

„Í mig hringdi dularfullur maður í Hafnarfirði, Jón Þorvaldsson. Honum fannst greinilega áhugavert að það væri svona mikið líf í skákíþróttinni á landsbyggðinni og óskaði eftir því að gerast félagi í Goðanum. Við höfðum sett okkur skýrar reglur um að enginn fengi aðild að félaginu utan héraðsins nema öll stjórnin veitti einróma samþykki sitt og tókum okkur rúman umhugsunarfrest. Jón hefur eflaust ekki vitað hvaðan á hann stóð veðrið. Síðan hleyptum við honum inn, fyrstum íbúa á höfuðborgarsvæðinu og sjáum ekki eftir því. Jón er ekki bara liðtækur skákmaður heldur líka vel tengdur í skáksamfélaginu og fljótlega fóru öflugir menn að streyma inn í félagið,“ segir Hermann en Jón fékk strax til liðs við Goðann Einar Hjalta Jensson, mjög sterkan skákmann, skákkennara og núverandi þjálfara kvennalandsliðsins. 

Hló að stórum áformum

Goðinn tók fyrst þátt í Íslandsmótinu veturinn 2007-08, sendi eina sveit til keppni. Þeim var fjölgað í tvær árið 2010. Hermann segir engin heimsyfirráð hafa verið í kortunum en Jón hafi haft stóra drauma og hvatt til þess að stefnt yrði að Íslandsmeistaratitli árið 2015. „Ég hló bara að því á þeim tíma enda var það algjörlega óraunhæft. Við höfðum engan mannskap í slík afrek.“ 

Það breyttist þó hratt. Fyrstu stórmeistararnir, Þröstur Þórhallsson og Helgi Áss Grétarsson, gengu til liðs við Goðann árið 2010 og að sögn Hermanns var félagið við það að springa úr vaxtarverkjum.

Haustið 2012 var næsta skref tekið, þegar Goðinn sameinaðist skákfélaginu Mátum, sem samanstóð af Akureyringum búsettum á höfuðborgarsvæðinu. Var það fyrsta sameining skákfélaga hér á landi í langan tíma. „Þarna bættist okkur góður liðsauki, Pálmi Pétursson, Magnús Teitsson, Arnar Þorsteinsson, Jón Árni Jónsson og margir fleiri,“ rifjar Hermann upp.

Þegar hér var komið sögu taldi skákfélagið Goðinn-Mátar rúmlega eitt hundrað félaga og gekk í daglegu tali undir nafninu GM sem á einkar vel við, enda enska skammstöfunin fyrir stórmeistara, Grand Master.

GM náði prýðilegum árangri á Íslandsmótinu veturinn 2012-13, hafnaði í fjórða sæti í 1. deild. Veturinn áður var Goðinn í 2. deild. 

Fengu á sig ellefu kærur

Þetta varð eini veturinn sem GM tók þátt í Íslandsmótinu því sumarið 2013 sameinaðist félagið öðru af stóru skákfélögunum í Reykjavík, Helli. Einhverjir töldu þann gjörning raunar ólögmætan og kvörtuðu til Skáksambands Íslands. „Þetta var mjög umdeilt, skömmu áður en Íslandsmótið hófst og við fengum á okkur hvorki fleiri né færri en ellefu kærur. Þeim var öllum vísað frá. Það voru engar reglur sem bönnuðu sameininguna en eftir á að hyggja hefur hún eflaust orkað tvímælis.“ 

Veturinn 2013-14 tefldi hið nýja félag, GM Hellir, fram níu sveitum á Íslandsmótinu og hafnaði A-liðið í öðru sæti 1. deildar.

Kosið var um nafn og merki hins sameinaða félags á aðalfundi 2014 og varð skákfélagið Huginn fyrir valinu, eftir öðrum af hröfnum Óðins.

Fyrir nýliðinn vetur gengu stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson og Stefán Kristjánsson til liðs við Hugin, auk þess sem félagið kvaddi á vettvang tvo erlenda stórmeistara, svo sem heimilt er samkvæmt reglum. Mest voru það Gavin Jones frá Englandi og Robin van Kampen frá Hollandi en einnig hefur Kanadamaðurinn Eric Hansen teflt fyrir Hugin. Hann ku vera af dönskum ættum.

Bæði A og B-lið Hugins tefldu í 1. deild í vetur og varð A-liðið Íslandsmeistari. „Ég er auðvitað mjög stoltur af þessum árangri,“ segir Hermann. „Það er ekki lítið mál að manna sextán borð í 1. deild Íslandsmótsins en þetta gekk eins og í sögu. Við erum með gríðarlega góðan mannskap.“ 

370 skráðir félagar

Hermann, Jón Þorvaldsson og Vigfús Ó. Vigfússon, varaformaður Hugins, eru liðsstjórar og sjá að mestu um liðsvalið enda segir formaðurinn það of mikið verk fyrir einn mann. Sjálfur teflir hann á Íslandsmótinu og var í F-liði Hugins í vetur. 

370 skákmenn eru skráðir í Huginn, þar af um 200 virkir. Spurður hvort það sé ekki mikið mál að stýra svo stóru félagi að norðan hristir Hermann höfuðið. „Nei, það hefur ekki vafist fyrir mér. Ég sé um starfið fyrir norðan og Vigfús ber hitann og þungan af starfinu hérna fyrir sunnan. Við höfum verið með skákkennslu fyrir börn í Mjóddinni og í samstarfi við skákdeild Breiðabliks í Stúkunni í Kópavogi. Síðan fer ég áfram í skólana fyrir norðan. Það er nauðsynlegt að halda ungviðinu við efnið.“

Hann segir frekari stækkun eða sameiningar ekki á döfinni. „Félagið er mátulega stórt eins og það er en í ljósi sögunnar er líklega best að segja sem minnst um það mál.“

Hann brosir.

Hermann segir Hugin að sjálfsögðu stefna að því að verja Íslandsbikarinn að ári. Langur vegur sé þó framundan og aldrei að vita nema breytingar verði gerðar á keppnisfyrirkomulaginu á aðalfundi Skáksambandsins sem haldinn verður í lok þessa mánaðar. Það geti haft áhrif. „En auðvitað stefnum við að því að halda okkur á toppnum. Þar viljum við vera.“

Segi frá hlutunum eins og þeir eru

Hermann Aðalsteinsson er fiskeldisfræðingur að mennt og vann í hálfan annan áratug við það fag, hér og þar, eins og hann segir. Á Tálknafirði, Ólafsfirði og Húsavík. Frá árinu 1998 hefur hann á hinn bóginn verið kúa- og sauðfjárbóndi í Lyngbrekku í Reykjadal.

„Ég kynntist konunni,“ svarar hann sposkur á svip spurður um tildrög þess að hann sneri sér að búskap. Lyngbrekka er sumsé æskuheimili eiginkonu hans, Hildigunnar Jónsdóttur, og tóku þau Hermann við búinu af foreldrum hennar.

„Ég ólst sjálfur upp á kúa- og sauðfjárbúi í Bárðardalnum og vissi nákvæmlega út í hvað ég væri að fara. Ef til vill átti þetta alltaf fyrir mér að liggja en það var ágætt að hafa prófað annað á undan. Ég þekki fyrir vikið kosti og galla þess að vera á almennum vinnumarkaði,“ segir hann. 

Frelsi og binding

Hermann bóndi í fjárhúsinu

Búið er ekki stórt, tólf kýr og um hundrað fjár. Þá eru þar smærri dýr á borð við hænsni og kanínur, en Hermann fullyrðir að Hildigunnur beri ábyrgð á þeim. „Þetta eru um hundrað hænur, íslenskar. Við eigum alltaf nóg af eggjum og mjólk.“ 

Frelsi og binding vegur salt í búskapnum, sérstaklega þegar menn eru með kýr. „Það er mikil binding að vera með kýr og maður kemst ekki auðveldlega frá búinu, þarf alltaf að fá einhvern til að leysa sig af. Mjaltirnar stýra öllu. Kýr mjólka sig víst ekki sjálfar. Á móti kemur að maður hefur mikið frelsi milli mjalta til að bregða sér frá eða sinna öðrum hugðarefnum.“

Hermann og Hildigunnur eiga fjögur börn, tvær dætur, sem fluttar eru að heiman, og tvo syni sem ennþá eru í grunnskóla. Sá eldri er að klára tíunda bekkinn, teflir af miklum þrótti og tekur þátt í mótum. „Stelpurnar tefldu líka meðan þær voru í skóla en eru hættar því núna, hvað sem síðar verður. Yngri sonurinn hefur ekki heillast af skákinni,“ segir Hermann.

Frómt frá sagt segir Hermann búskap og skák ekki fara vel saman. Vegna bindingar taki hann sjálfur ekki þátt í mótum eins og hann vildi gera. „Slíkt þarf að plana með góðum fyrirvara.“

Þegar þau hjónin bregða sér af bæ leysir systir Hildigunnar, sem býr á Akureyri, þau venjulega af hólmi. Ætti hún ekki að eiga heiðursaðild að skákfélaginu Hugin?

Heldur úti fréttavef

Hermann á sér annað áhugamál, fréttaskrif, en hann hefur undanfarin sex ár haldið úti fréttavefnum 641.is – fréttir úr Þingeyjarsýslu. Hann viðurkennir að það áhugamál fari alls ekki vel með búskapnum heldur. „Ég fæ gjarnan símtöl þar sem ég er spurður hvers vegna ég sé ekki búinn að skrifa um þetta og hitt og svara því þá til að ég hafi bara verið í fjósi.“ 

Hann hlær.

„Mér fannst vanta svona vef á svæðið, það er bara miðill á Húsavík. Ég var alltaf að bíða eftir því að einhver annar gerði þetta en þegar það gerðist ekki lét ég slag standa. Ég sé ekki eftir því, þetta er býsna skemmtilegt og hefur mælst ágætlega fyrir,“ segir Hermann en vefurinn er fyrst og fremst ætlaður dreifbýlinu sunnan Húsavíkur en þar búa á bilinu 1.500 til 2.000 manns á stóru landflæmi.

Hermann kveðst skrifa um allt sem snertir svæðið, stórt og smátt. Allt frá hannyrðum upp í eldgos. „Það var mjög gaman að fara að gosinu í Holuhrauni síðasta haust. Ég fór síðast að Kröflueldum þegar ég var strákur.“ 

Ekki alltaf auðvelt

641.is segir ekki bara fréttir, heldur skifar umsjónarmaðurinn einnig leiðara. „Ég hef meðal annars verið gagnrýninn á sveitarstjórnina okkar í leiðurum fyrir að halda íbúum ekki upplýstum um það sem hún er að gera, sérstaklega í vetur. Það er ekki auðvelt að standa í þessum skrifum í svona litlu samfélagi og ég viðurkenni að ég hef orðið fyrir ónæði af þeim sökum, nú síðast í vikunni. Ég held að lesendur séu farnir að átta sig á því að 641 segir frá hlutum eins og þeir eru.“

 

Oft er sagt að fjölmiðlar séu fjórða valdið og Hermann fellst á það. „Samstöðulistinn er með fimm menn af sjö í sveitarstjórninni og minnihlutinn má sín lítils. Það er mjög byggðatengt hvernig menn kjósa.“

Spurður hvort hann sé á leið í pólitík sjálfur skellir Hermann í góm. „Nei, ég fer ekki út í þann sandkassa. Hef einfaldlega ekki tíma í það, þá þyrfti ég líka að hætta með vefinn. Ég læt mér nægja að vera í stjórn Héraðssambands Þingeyinga, þar er í nógu að snúast. Það er alltaf nóg að gera í sveitinni.“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 32
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 178
  • Frá upphafi: 8764528

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 136
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband