Leita í fréttum mbl.is

Jón Viktor öruggur sigurvegari Nóa Síríus-mótsins

P1030820

Jón Viktor Gunnarsson (2433) kom sá og sigrađi á Nóa Síríus mótinu – Gestamóti Hugins og Breiđabliks sem lauk í gćrkveldi. Jón hlaut 7 vinninga í 8 skákum. Annar sigur Jóns á örfáum vikum en hann vann einnig Skákţing Reykjavíkur fyrir skemmstu.

P1030815

Karl Ţorsteins (2456) varđ annar međ 6 vinninga en Karl sem er afar fátíđur gestur á skákmótum, lćtur sig aldrei vanta á Gestamótiđ.

Sex keppendur urđu jafnir í 3.-8. sćti međ 5,5 vinning og hlaut Dagur Ragnarsson (2059) bronsiđ eftir stigaútreikning. Enn ein rósin í hnappagat ţessa unga og efnilega skákmanns sem hefur rađađ inn skákstigunum síđustu mánuđi.

Jafnir Degi en lćgri á stigum urđu Ţröstur Ţórhallsson (2433), Guđmundur Gíslason(2315), Jón Trausti Harđarson (2067), Jóhann Ingvason (2126) og Björgvin Jónsson(2353).

P1030814Lenka Ptácníková hlaut kvennaverđlaunin

Ýmiss aukaverđlaun voru veitt. Lenka Ptácníková(2270) hlaut kvennaverđlaunin, Karl hlaut viskuverđlaunin (50+), Dagur hlaut verđlaun unglinga á menntaskólaaldri og Gauti Páll Jónsson(1871), hlaut verđlaun grunnskólanemenda.

Guđmundur Halldórsson (2219) og Halldór Grétar Einarsson (2187) urđu hnífjafnir eftir ţrefaldan stigaútreikning hvor yrđi skákmeistari Breiđabliks. Var ţá gripiđ til hlutkestis og ţar hafđi Guđmundur vinninginn – dró hvíta peđiđ!

P1030809 Gauti Páll Jónsson hlaut verđlaun grunnskólanemenda og vann 100 stig! 

Gestamótiđ tókst afar vel. Ungu mennirnir sem fengu bođ í mótiđ nýtt tćkifćri sitt vel. Dagur ţá manna best ţví hann hćkkar um 115 stig! Gauti Páll hćkkar um 100 stig, Jón Trauti um 65 stig og Agnar Tómas Möller, einn lykilstarfsmanna GAMMA, helsta stuđningsađila Reykjavíkurskákmótsins, um 57 stig.

untitled (4)Dagur Ragnarsson (t.v.) hćkkađi mest – 115 stig!

Mótsstjórar voru Jón Ţorvaldsson og Halldór Grétar Einarsson en skákstjórar voruVigfús Ó. Vigfússon og Gunnar Björnsson.

P1030808Mótsstjórnin. Frá vinstri: Jón Ţorvaldsson, Gunnar Björnsson, Halldór Grétar Einarsson og Vigfús Vigfússon

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 70
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 236
  • Frá upphafi: 8764679

Annađ

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 145
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband