Leita í fréttum mbl.is

Henrik vann í næstsíðustu umferð

chennai 1Henrik Danielsen (2519) vann alþjóðlega meistarann Das Debashis (2406) í 10. og næstsíðustu umferðar alþjóðlega mótsins í Chennai í Indlandi sem fram fór síðustu nótt.   Guðmundur Kjartansson gerði jafntefli við Indverjann A K Jagadeesh (2093) en Hannes Hlífar Stefánsson (2580) tapaði fyrir indverska alþjóðlega meistarann Sundar Shyam (2443).    Henrik er í 9.-17. sæti með 7½ vinning, Hannes er í 33.-63. sæti með 6½ vinning og Guðmundur er í 104.-134. sæti með 5½ vinning.

Efstir með 8½ vinning eru Ísraelsmennirnir Tamir Nabaty (2565) og Alon Greenfeld (2557) og Úkraínumennirnir Alexander Areschchenko (2671) og Martyn Kravtsiv (2566).

Í 11. og síðustu umferð, sem fram fer næstu nótt og hefst kl. 4:30, teflir Henrik við áðurnefndan Shyam, Hannes teflir við indverska alþjóðlega meistarann Khosla Shiven (2358) og Guðmundur við C R G Krishna (2296).  Skák Henriks verður sýnd beint.   

Á mótinu taka 329 skákmenn þátt og þar af 23 stórmeistarar.   Hannes er nr. 7 í stigaröð keppenda, Henrik nr. 16 og Guðmundur nr. 49.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 29
  • Sl. sólarhring: 59
  • Sl. viku: 196
  • Frá upphafi: 8764041

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 159
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband