Leita í fréttum mbl.is

Hannes vann í sjöundu umferð í Chennai

chennaiStórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2579) vann indverska alþjóðlega meistarann P Karthieyan (2380) í sjöundu umferð alþjóðlega mótsins sem fram fór í Chennai í dag.   Henrik Danielsen (2519) og Guðmundur Kjartansson (2379) gerðu báðir jafntefli   Henrik við Indverjann Shaikh Mohammad Nubairshah (2113) og Guðmundur við Indverjann Pratik Patil (2111).  Henrik og Hannes eru í 9.-22. sæti með 5,5 vinning en Guðmundur er í 88.-142. sæti með 4 vinninga.

Ísraelski stórmeistarinn Evgeny Postny (2592) er efstur með 6,5 vinning.

Í áttundu umferð, sem fram fer næstu nótt og hefst kl. 4:30, teflir Hannes við stórmeistarann Niaz Murshed (2436), Henrik við indverska alþjóðlega meistarann P D S Girninath (2362) og Guðmundur við Indverjann Mureli Karthikeyan (2096). Skákir Henriks og Hannesar verða sýndar beint.

Í mótinu taka 329 skákmenn þátt og þar af 23 stórmeistarar.   Hannes er nr. 7 í stigaröð keppenda, Henrik nr. 16 og Guðmundur nr. 49.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 80
  • Sl. sólarhring: 80
  • Sl. viku: 246
  • Frá upphafi: 8764689

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 150
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband