Alexander Már er mjög efnilegur. Hér stýrir hann hvítu mönnunum gegn Nikulás Ými. Skákin var mjög spennandi og skemmtileg og notuðu báðir keppendur tímann sinn í botn sem er til fyrirmyndar. Nikulás Ýmir vann peð í byrjun, en missti svo hrók. Náði svo öflugri kóngsókn og hróknum til baka. Alexander varðist vel og af mikilli hugkvæmni. Á einum stað átti hann þráskákfléttu, en missti af henni og skákinni lauk með sigri Nikulásar.
Ljósmyndari: Halldór Grétar | Staður: Glersalurinn í stúkunni við Kópavogsvöll | Tekin: 5.7.2015 | Bætt í albúm: 5.7.2015
Athugasemdir
Engar athugasemdir hafa enn verið skráðar um þessa færslu.